Tína rusl til að komast á Reyki Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 25. febrúar 2026 21:51 Unnur Elísabet Björnsdóttir, Katrín Orradóttir, Hanna Kaðlín Magnúsdóttir, Ari Helgason og Dagur Atli Grönvold ætla að safna rusli til að komast á Reyki. Aðsend Krakkar í sjöunda bekk í Laugalækjarskóla fundu upp á nýrri leið til að safna fyrir ferðalagi þeirra í skólabúðirnar á Reykjum. Þau ætla að verja degi í að týna rusl í almenningsrýmum hverfisins og safna áheitum.
Á fundi nemendanna veltu þeir og foreldrar vöngum yfir hvernig væri best að safna peningum fyrir ferðalagið. „Það vildi enginn vera að þvinga óþarfa hluti upp á fólk og að fara í það að selja eitthvað sem enginn þarf þegar markmiðið er að fólk vilji aðallega styrkja krakkana,“ segir Ariana Katrín Katrínardóttir, móðir stúlku í skólanum. Hugmyndin hafi vaknað eftir að eitt foreldrið, sem gekk á fundinn, minntist á hversu mikið rusl væri í Laugardalnum. Þannig vaknaði sú hugmynd að krakkarnir myndu tína rusl í fjáröflunarskyni, sem væri einnig mun umhverfisvænna heldur en að selja klósettpappír eða lakkrís. „Krakkarnir tóku vel í það að hafa svona stóran dag þar sem þau munu ganga skipulega um hverfið. Við foreldrarnir skiptum þeim í hópa og hólf,“ segir Ariana. „Við hugsuðum líka með okkur að þó að við gætum ekki safnað miklu værum við samt að skila einhverju til samfélagsins.“ Íþróttafélagið Þróttur kom til móts við krakkana og verður eins konar samkomustaður. Að auki ætla forsvarsmennirnir að bjóða hópnum í kakó að tínslunni lokinni. Ariana tekur fram að þótt það verði snjór yfir öllu um helgina verði ekki hætt við heldur valinn annar dagur.
Grunnskólar Reykjavík Sorphirða Mest lesið Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Erlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent Bílvelta austan við Hvalnes Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Sjá meira