Eins og gæludýr sem borðar og borðar en fitnar ekki neitt Rakel Sveinsdóttir skrifar 20. febrúar 2026 07:01 Það er gaman að heyra Sigrúnu Eddu Eðvarðsdóttur segja frá því hvernig umhverfisvænar lausnir bættust við eins og af tilviljun í vörusölu Umbúðagerðarinnar í Hafnarfirði. Annars vegar jarðgerðisvélar og hins vegar sænskir pokar. Vísir/Vilhelm „Þetta var eins og að vera með gæludýr á heimilinu sem borðaði og borðaði en fitnaði ekki neitt,“ segir Sigrún Edda Eðvarðsdóttir og hlær þegar hún rifjar upp prufutækið sem þau hjónin fengu heim til sín af jarðgerðarvél, sem þau vildu prófa og sjá hvort og hvernig virkaði áður en fyrirtækið þeirra, Umbúðagerðin, tæki tækið í sölu.
Jarðgerðarvélin umrædda virkar í raun eins og vél sem moltar allan lífrænan úrgang. Sem þýðir að í staðinn fyrir að setja lífræna úrganginn í pappírspoka eins og nú er gert á mörgum heimilum eða fötu, er lífræni úrgangurinn settur í vélina sem einfaldlega „borðar“ úrganginn þannig að hann á endanum hverfur eða verður að moltu á um sólarhring. Það skemmtilega er sagan á bak við aðdragandann að því að Umbúðagerðin er nú með umræddar vélar til sölu hjá sér. því það var svo sannarlega óvænt stefna og það sama á við um aðrar heimilislausnir sem hjónin rákust á í Svíþjóð síðar. Þann 26. febrúar stendur sjálfbærnihópur FKA fyrir Hringrásardegi. Af því tilefni fjallar Atvinnulífið um umhverfismálin í gær og í dag. Dagskrá Hringrásardagsins má sjá hér. Fjölskyldufyrirtækið byrjaði í bílskúrnum heima en er í dag starfrækt í dag í 800 fm húsnæði í Hafnarfirði. Eiginmaður Sigrúnar, Eyþór Páll Hauksson, rekur fyrirtækið Prentmiðlun á meðan Sigrún Edda og sonur þeirra hjóna, Bjarni Geir, sjá um rekstur Umbúðagerðarinnar.Vísir/Vilhelm Fjölskyldufyrirtækið góða Sigrún Edda lýsir Umbúðagerðinni sem dæmigerðu fjölskyldufyrirtæki. Sem byrjaði í bílskúrnum heima. Eiginmaðurinn, Eyþór Páll Hauksson, rekur fyrirtækið Prentmiðlun og sjálf sér hún um rekstur Umbúðagerðarinnar ásamt Bjarna Geir, syni þeirra hjóna. Í dag eru bæði fyrirtækin starfrækt undir sama þaki í um 800 fermetra gamalli vélsmiðju við Reykjavíkurveg 70 í Hafnarfirði. „Það má segja að hringrásarhugsunin hafi verið alltumlykjandi í rekstri Umbúðagerðarinnar frá upphafi enda erum við með mikið af gömlum húsgögnum og munum í versluninni sem við höfum sankað að okkur héðan og þaðan og endurnýtt,“ segir Sigrún í afslöppuðu spjalli þar sem talið berst meira að segja að forláta búðarkassa og afgreiðsluborðum frá því í eldgamla daga úr versluninni Drangey.“ Samtalið í dag snýst hins vegar um heimilislausnirnar sem Sigrún Edda ætlar að segja frá á hringrásardegi FKA, Lausnir sem báðar féllu til af tilviljun. „Við hófum eigin framleiðslu í Hafnarfirði árið 2021 þegar við ákváðum að setja á laggirnar kassagerð,“ segir Sigrún Edda og bætir við: „Margir gera sér enn ekki grein fyrir því að það er löngu liðin tíð að Kassagerð Reykjavíkur sé í rekstri og að framleiða pappakassa. Við sáum því ákveðin tækifæri í að framleiða kassa sem og aðrar pappaumbúðir hér á Íslandi en við erum í mikilli samkeppni við innfluttar pappaumbúðir sem keyptar eru inn í miklu magni með tilheyrandi fjárbindingu og lagerhaldi.“ Sigrún Edda segir að þótt umhverfismálin hafi svo sem ekki verið einhver sérstakur útgangspunktur í upphafi rekstrarins sé staðan í raun þannig í dag að umhverfismálin séu allt um kring; viðskiptavinir þeirra leita eftir umhverfisvænum lausnum, birgjar bjóða fram umhverfisvænni vörur en áður og svo framvegis. Í miðju covid fór Sigrún Edda að velta fyrir sér sorpmálunum út frá breytingum og nýjum tunnum fyrir lífrænan úrgang og fleira. Enda kostnaðarliður í öllum rekstri. „Og það var þá sem ég rakst á þessar jarðgerðarvélar,“ segir Sigrún og brosir. „Þetta var nýjung í heiminum en sala á þessum vélum hófst á heimsvísu árið 2022. „Í haust fórum við hjónin og heimsóttum framleiðandann í Suður Kóreu en þar voru samankomnir söluaðilar víða að úr heiminum en segja má að við höfum haft það flest sammerkt að hafa fjárfest töluvert í fræðslu um hvernig þessar vélar virka og hvað aðskilur þær frá öðrum vélum sem hafa verið á markaði fram að þessu,“ segir Sigrún en útskýrir að þær séu þó bæði hagkvæmar og einfaldar í notkun. „En þetta er svo ný hugsun. Í raun ertu að molta allan úrgang heima í eldhúsi. Í Suður Kóreu fær fólk styrk til að kaupa svona tæki til að minnka allt umfang strax og eins til að hvetja fólk til ræktunar. Skiljanlega. Því eftir að maður hefur heimsótt landið þá skilur maður hagkvæmnina í þessu fyrir utan hvað það eru mörg háhýsi í Suður Kóreu og enginn sem hefur ánægju af því að vera að fara með lífræna úrganginn sinn, jafnvel lyktandi, niður lyftuna með öðru fólki til að henda úrganginum í rétta tunnu.“ Vélin góða sem bara borðar og borðar án þess að fitna og býr til moltu á um sólahring. Sigrún Edda segir vélina stundum minna á að vera með gæludýr heima fyrir. Nema þegar farið er í frí því þá þarf bara að slökkva á vélinni sem svæfir örverurnar sem að öllu jafnaði borða lífræna úrganginn af heimilinu.Vísir/Vilhelm Fleiri tækifæri bætast við Sigrún Edda segir að framleiðsla vélanna hafi hafist 2022 og þar sem þetta sé svo nýtt af nálinni hafi þau viljað prófa tækið sjálf til að átta sig á því hvort þessi nýja umhverfislausn væri að virka áður en þau færu að selja hana öðrum. Í fyrra ákváðu þau síðan að skella sér til Svíþjóðar og heimsækja fyrirtæki þar sem selur sömu jarðgerðarvélar en hafði verið að selja stærri vélar til fyrirtækja sem við höfðum áhuga á að fá að heimsækja og sjá ávinninginn með eigin augum. „Okkur langaði til að kynna okkur hvernig þeir standa að málum og mér fannst til dæmis mjög áhugavert að sjá hvernig þeir nýta sjálfir jarðgerðarvélar fyrir sinn rekstur þannig að úr verður molta sem þeir nota til að rækta ýmislegt,“ segir Sigrún og nefnir þar enn eina viðbót sem víða er notuð. Í heimsókninni í Svíþjóð rákust hjónin hins vegar á óvænt tækifæri: CoolSaver- lausnir fyrir heimili sem Sigrún ætlar að segja frá á FKA-deginum í næstu viku líka. Enda auka þeir ekki aðeins á líftíma grænmetis eða minnka ísinn í frystinum, heldur eru þetta lausn sem Svíarnir þekkja vel og hafa gert um árabil. „Maður tekur alveg eftir því að fólk sem hefur verið í Svíþjóð og kemur hingað í búðina þekkir vöruna,“ segir Sigrún Edda og útlistar ágæti púðanna í notkun. Þannig að í raun bættust við tvær umhverfislausnir í reksturinn hjá ykkur af tilviljun má segja? „Já,“ svarar Sigrún Edda og hlær. „Fyrst komu jarðgerðisvélarnar, síðan sænsku pokarnir og fleira má svo sem telja sem skýrir út hvers vegna við erum allt í einu farin að reka verslun líka. Ég svo sannarlega sá það ekki fyrir mér fyrir nokkrum árum síðan.“ Verslun Umbúðagerðarinnar ber öll merki hringrásarhugsunarinnar því þar má sjá mikið af gömlum húsgögnum sem fjölskyldan hefur sankað að sér og endirnýtt. Meira að segja forláta búðarkassa og afgreiðsluborð frá því í eldgamla daga úr versluninni Drangey.Vísir/Vilhelm Að þora að þróast Sigrún segir einfaldast að skilja tækni jarðgerðarvélanna með því að líkja þeim saman við súrdeig. Allir sem þekkja súrdeig vita að þar þarf að geyma gerilinn sjálfan því í honum lifa örverurnar sem síðan borða sykrurnar í hveitinu og svo framvegis. Í jarðgerðarvélinni eru í raun lifandi örverur sem þú gefur að borða alltaf þegar þú hendir lífrænum úrgangi.“ Ólíkt gæludýrinu heima fyri, er minna mál að fara í frí. „Því þá einfaldlega slekkur þú á tækinu því á meðan þú ert í fríi fá örverurnar ekkert að borða og þær sofna bara á meðan,“ útskýrir Sigrún Edda. Sigrún segir skemmtilegt til þess að hugsa að reksturinn sem þau hjónin fóru af stað með í bílskúrnum heima árið 2014 hafi leitt til þess að nú séu þau með kassagerðarframleiðslu í 800 fermetra húsnæði og verslun í Hafnarfirði og nú byrjuð að kenna fólki og fyrirtækjum hvernig hægt er að nýta sér nýja tækni til að draga úr umhverfisáhrifum. „Þegar við opnuðum kassagerðina vorum við ekki með neina viðskiptavini. Lentum meira að segja í smá veseni því í Covid gengu stórir viðskiptavinir fyrir hjá birgjunum erlendis en við redduðum okkur: Maður þekkir mann og annan,“ segir Sigrún og hlær. „Ég rakst á jarðgerðsvélarnar þegar ég var sjálf að leita lausna fyrir mitt fyrirtæki. En út á þetta ganga fjölskyldufyrirtæki oft. Þetta eru allt fyrirtæki sem eru að reyna að finna leiðir til að fjölda eggjunum í körfunni,“ segir Sigrún og bætir við: „Okkur hefur tekist það ágætlega Meðal annars með því að bæta við nokkrum umhverfisvænum vörum í hlaðborðið okkar og vera tilbúin til að kenna fólki og fyrirtækjum að nýta sér nýja tækni.“
Sjálfbærni Sorphirða Umhverfismál Tengdar fréttir Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum „Ég á eðlilega mjög erfitt með að henda einhverju!“ segir Jana Maren Óskarsdóttir eigandi Hringekjunnar og brosir. 19. febrúar 2026 07:00 „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Íslendingar eru eflaust að flytja meira út af þekkingu og reynslu í grænum lausnum en marga grunar um. Það er liður í því að styðja við vöxt íslenskra fyrirtækja erlendis, auka útflutning og efla samkeppnishæfni þjóðarinnar. 28. janúar 2026 07:00 Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Það er mjög gaman að upplifa ástríðu Benedek Regoczi fyrir hafið en Benedek er verkefnastjóri nýsköpunar hjá Sjávarklasanum. 29. janúar 2026 07:00 „Hvernig hefðu amma og afi gert þetta?“ „Við heyrum af því að Íslandsstofa er kannski að leggja gríðarlega fjármuni í auglýsingaherferðir þar sem Ísland er auglýst sem þessi hreina og fallega náttúruperla sem Ísland er. Við gerum út á þennan hreinleika og erum stolt af þeirri ímynd sem Ísland hefur skapað sér,“ segir Soffía Sigurgeirsdóttir, einn eigenda ráðgjafafyrirtækisins Langbrók. 12. mars 2025 07:00 Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Það reyndist erfiðara fyrir Grace Achieng frá Keníu að fá gott starf við hæfi á Íslandi, en að vera uppgötvuð af Vogue fyrir íslensku fatalínuna sína, Gracelandic. 21. nóvember 2024 07:01 Mest lesið Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Viðskipti innlent Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Viðskipti innlent Eins og gæludýr sem borðar og borðar en fitnar ekki neitt Atvinnulíf Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Viðskipti innlent Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum Atvinnulíf Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Viðskipti innlent Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Viðskipti innlent G-vítamín eru litlu skrefin sem breyta miklu Samstarf Fleiri fréttir Eins og gæludýr sem borðar og borðar en fitnar ekki neitt Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum Samfélagsmiðlar á vinnutíma: Hversu oft og hvers vegna Vann hjá Amazon, með áhyggjur af Trump, reynslu af Rússum en kominn heim Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Glæpamenn í fjarvinnu Svartir sauðir: „Stjórnendur þurfa að hafa kjarkinn til að ræða fjarvistir vegna veikinda“ „Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Þessir þrír drepa alla góða fundi „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Okkar eigin Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Breytingar í vinnunni: Hvað þýðir þetta fyrir mig? Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Vera sem varð til eftir gott vinkonuspjall á sunnudegi Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Danir lengra komnir í að nýta spuna á vinnustöðum Leigja frekar en að kaupa: „Ég þarf ekki að eiga allt“ 996 vinnuvikan að ryðja sér til rúms á ný (72 klukkustundir) Sjá meira
Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum „Ég á eðlilega mjög erfitt með að henda einhverju!“ segir Jana Maren Óskarsdóttir eigandi Hringekjunnar og brosir. 19. febrúar 2026 07:00
„Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Íslendingar eru eflaust að flytja meira út af þekkingu og reynslu í grænum lausnum en marga grunar um. Það er liður í því að styðja við vöxt íslenskra fyrirtækja erlendis, auka útflutning og efla samkeppnishæfni þjóðarinnar. 28. janúar 2026 07:00
Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Það er mjög gaman að upplifa ástríðu Benedek Regoczi fyrir hafið en Benedek er verkefnastjóri nýsköpunar hjá Sjávarklasanum. 29. janúar 2026 07:00
„Hvernig hefðu amma og afi gert þetta?“ „Við heyrum af því að Íslandsstofa er kannski að leggja gríðarlega fjármuni í auglýsingaherferðir þar sem Ísland er auglýst sem þessi hreina og fallega náttúruperla sem Ísland er. Við gerum út á þennan hreinleika og erum stolt af þeirri ímynd sem Ísland hefur skapað sér,“ segir Soffía Sigurgeirsdóttir, einn eigenda ráðgjafafyrirtækisins Langbrók. 12. mars 2025 07:00
Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Það reyndist erfiðara fyrir Grace Achieng frá Keníu að fá gott starf við hæfi á Íslandi, en að vera uppgötvuð af Vogue fyrir íslensku fatalínuna sína, Gracelandic. 21. nóvember 2024 07:01
Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent
Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent