Funda um stofnun innlendrar greiðslumiðlunar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. febrúar 2026 07:06 Bretar hyggjast taka upp nýja greiðslumiðlun árið 2030. Getty/John Keeble Stjórnendur banka og fjármálafyrirtækja á Bretlandseyjum munu funda á fimmtudaginn um stofnun nýrrar innlendrar stofnunar, sem myndi sjá um greiðslumiðlun í landinu ef vandamál koma upp með miðlun Visa og Mastercard.
Hugmyndin hefur verið uppi um nokkurra ára skeið en hótanir Donald Trump Bandaríkjaforseta eru sagðar hafa sannfært menn um mikilvægi innlendrar greiðslumiðlunarlausnar. Um það bil 95 prósent allra kortagreiðslna á Bretlandseyjum fara í gegnum fyrirtæki í eigu Visa og Mastercard. „Ef Mastercard og Visa yrðu tekin úr sambandi myndi það senda okkur aftur til 1950, áður en kortagreiðslur tók yfir í breska hagkerfinu, þegar fyrirtæki reiddu sig alfarið á reiðufé,“ hefur Guardian eftir heimildarmanni. „Að sjálfsögðu þurfum við innlenda greiðslumiðlun.“ Aurore Lalucq, formaður efnahagsmálanefndar Evrópuþingsins, varaði við því á dögunum að Evrópuríkin reiddu sig alfarið á bandarískar greiðslulausnir. Trump gæti hreinlega slökkt á kerfinu. Greiðslumiðlunin yrði samvinnuverkefni stjórnvalda og fjármálageirans en unnin í samstarfi við Visa og Mastercard. Meðal annarra fyrirtækja sem koma að verkefninu eru Barclay's, Santander UK, NatWest, Nationwide og Lloyds Banking Group. Stefnt er að því að taka kerfið í notkun árið 2030. Hér má finna ítarlega umfjöllun Guardian um málið.
Bretland Greiðslumiðlun Mest lesið Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira