Reykjavík er hvorki gjaldþrota né ofurþétt Guðni Freyr Öfjörð skrifar 14. febrúar 2026 12:31 Oft er sagt Það tekur stuttan tíma að segja lygar og lengri tíma að mæta þeim. Reykjavík er falleg borg. Hún er miklu fallegri en hún var þegar ég flutti til Reykjavíkur fyrir 15 árum Miðborgin er orðin ótrúlega nútímaleg, litrík og lifandi, og mannlífið hefur tekið miklum breytingum til hins betra. Samt finnst mér eins og það hafi orðið einhvers konar tískufyrirbæri síðustu ár að tala borgina niður, eins og allt sé hér í rúst. Þetta er ekki séríslenskt fyrirbæri. Svipuð orðræða hefur sést víða erlendis þar sem höfuðborgir og stórborgir eru málaðar upp sem kaos, óreiða og samfélagslegt hrun. Í mörgum löndum hefur verið rannsakað hvernig stjórnmálaumræða, sérstaklega í pólitískri skautun, stillir höfuðborgum og stórborgum upp sem tákni hnignunar eða óreiðu. Það er ekki tilviljun. Umræðan hefur verið mótuð markvisst og endurtekin nógu oft til að hljóma eins og sannleikur og oft til að afvegaleiða frá eigin sveitarfélögum. Í vikunni kynnti Miðflokkurinn í Reykjavík oddvita sinn, Ara Edwald. Samkvæmt Ara á nú heldur betur að taka til í rekstri Reykjavíkurborgar, því reksturinn sé í svo slæmum málum. Hætta eigi við mikilvæg langtímaverkefni eins og Borgarlínuna og setja borgina í einhvern rekstrarham þar sem hún er meðhöndluð eins og fyrirtæki. En borg er ekki fyrirtæki hún er samfélag. Við skulum því ekki láta glepjast af einföldum lausnum. Markmiðið virðist vera að færa sameiginlega innviði og eignir almennings yfir til einkaaðila, sem oft eru tengdir þessum sömu flokkum. Við ættum að vera búin að læra af þessu. Við höfum séð þessa hugmyndafræði áðu, að einkavæða gróðann og ríkisvæða tapið. Við megum ekki leyfa því að gerast aftur. Þau vilja einkavæða Félagsbústaði og veikja óhagnaðardrifin leigufélög eins og Bjarg með því að færa eignir Bjargs í hendur fjárfesta. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, hefur jafnframt lýst því yfir að hún vilji selja borgarfyrirtæki, eins og Orkuveituna, bílastæðahúsin, malbikunarstöðina, Ljósleiðarann og Carbfix. Með öðrum orðum, Það á að selja allt, helst hratt og ódýrt. Við megum ekki leyfa því að gerast. Þetta er eru okkar sameiginlegu eignir. Við munum öll eftir eftir REI málinu Staðreyndir um fjárhag Reykjavíkurborgar Um fjárhag borgarinnar hefur verið máluð upp mynd eins og allt sé í rugli. Ein sú lífseigasta í íslenskri umræðu í dag er að Reykjavíkurborg sé á barmi gjaldþrots. Hún er endurtekin aftur og aftur þar til hún hljómar eins og staðreynd. Vandinn er bara sá að tölurnar segja allt aðra sögu. Reykjavíkurborg skilaði tæplega 5 milljarða króna afgangi í rekstri síðasta ár. Það er viðsnúningur upp á nærri tíu milljarða frá árinu áður og langt umfram áætlanir. Skuldahlutfall borgarinnar er að lækka, veltufjárstaðan er sú sterkasta á höfuðborgarsvæðinu og skuldir á hvern íbúa eru meðal þeirra lægstu. Þetta er einfaldlega ekki mynd af sveitarfélagi á leið í þrot. Það sem gleymist líka reglulega eða viljandi í umræðunni er að Reykjavík axlar verkefni sem önnur sveitarfélög gera ekki í sama mæli. Borgin greiðir um 35% meira í félagsþjónustu á hvern íbúa en meðaltal sveitarfélaga og hýsir um 78% allra félagslegra íbúða á höfuðborgarsvæðinu. Tvær af hverjum þremur almennum íbúðum sem byggðar hafa verið með stofnframlögum eru í Reykjavík. Með öðrum orðum: borgin ber stærstan hluta félagslegrar og velferða ábyrgðar svæðisins og stendur samt fjárhagslega vel. Það er líka rangt að halda því fram að þetta sé vegna skattahækkana. Útsvar hækkaði ekki; tekjur færðust einfaldlega frá ríki til sveitarfélaga. Fasteignaskattaprósenta er auk þess lægri en fyrir áratug og meðal þeirra lægstu á landinu. Þegar allar lykiltölur eru skoðaðar skuldahlutfall, veltufé frá rekstri, veltufjárhlutfall og skuldir á íbúa kemur í ljós að fjárhagsstaða Reykjavíkur er, ásamt Kópavogi, sú sterkasta á höfuðborgarsvæðinu. Samt lifir sagan um „gjaldþrota borg“. Af hverju? Vegna þess að hún er pólitískt gagnleg. Ef lygin er endurtekin nógu oft verður hún að tilfinningu og tilfinningar eru oft sterkari en staðreyndir í umræðunni. Reykjavík er ekki að fara á hausinn. Hún er að fjárfesta í innviðum, félagslegri þjónustu, velferðarþjónustu og húsnæði og gera það á meðan reksturinn er að batna á meðan önnur sveitarfélög gera minna að því. Kannski er kominn tími til að ræða stöðu borgarinnar út frá raunveruleikanum, ekki áróðri. Það er merkilegt hvað sumar hugmyndir lifa lengi jafnvel þegar þær eru einfaldlega rangar. Ábyrgð færð yfir á sveitarfélögin Það sem þarf líka að ræða heiðarlega í þessari umræðu er ábyrgð ríkisins. Á síðustu áratugum, sérstaklega frá 9. og inn á 10. áratuginn, færðust sífellt fleiri verkefni frá ríki til sveitarfélaga. Leikskólamál og stór hluti félagslegra húsnæðismála urðu í auknum mæli á ábyrgð sveitarfélaga, á sama tíma og verkamannabústaðakerfið var lagt niður og áherslan færð frá félagslegri uppbyggingu yfir á markaðslausnir. Við það minnkaði framboð af almennu og óhagnaðardrifnu húsnæði verulega. Margir telja að sú stefna, ásamt lítilli uppbyggingu félagslegs húsnæðis næstu áratugi, hafi lagt grunn að þeirri stöðu sem húsnæðismarkaðurinn glímir við í dag. Afleiðingin er sú að sveitarfélög, sérstaklega höfuðborgin, standa í dag undir verkefnum sem í raun eru samfélagslegir grunninnviðir menntun yngstu barnanna og húsnæðisöryggi viðkvæmra hópa án þess að tekjustofnar hafi alltaf þróast í takt við aukna ábyrgð. Þess vegna snýst umræðan ekki aðeins um rekstur borgarinnar, heldur um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Ef við ætlum að leysa leikskóla- og húsnæðisvanda til lengri tíma þarf ríkið að taka stærri þátt í þessum málaflokkum á ný, í stað þess að sveitarfélögin beri ein þyngstu byrðina. Í dag er lóðasala ein stærsta tekjulind margra sveitarfélaga, einfaldlega vegna þessa fyrirkomulags. Það er ekki heilbrigt, skapar ranga hvata og leiðir til vandamála sem við sjáum nú svart á hvítu. Að mínu mati þurfum við að endurhugsa þetta fyrirkomulag. Borg sem æxlar ábyrgð á meðan hin sveitarfélög sitja hjáFyrir neðan má sjá graf sem sýnir uppbyggingu óhagnaðardrifinna íbúða hjá Bjargi og tölur fjölda félagsíbúða samanburði við önnur sveitarfélög (athugið að ekki eru öll sveitarfélög með í samanburðinum). Þar kemur skýrt fram að Reykjavík hefur farið fyrir uppbyggingu á þessu sviði og er langt á undan öðrum sveitarfélögum hvað fjölda íbúða varðar. Athygli vekur að Kópavogur, sem er næststærsta sveitarfélag landsins, hefur enn ekki afhent Bjargi lóð til uppbyggingar. Það vekur spurningar um hvernig ábyrgð og þátttaka sveitarfélaga í uppbyggingu óhagnaðardrifins húsnæðis skiptist á höfuðborgarsvæðinu og hvers vegna sú umræða hefur verið tiltölulega lítil í opinberri umræðu. Hér sést skýrt að Reykjavík er hluti af lausninni. Lokaorð Reykjavík er ekki gjaldþrota. Hér er heldur engin „ofurþétting“ í gangi. Reykjavík er í raun ein af dreifðari höfuðborgum Evrópu, og sú þétting byggðar sem nú á sér stað snýst fyrst og fremst um að leiðrétta skipulag sem mótaðist á tímum þegar borgir voru byggðar nánast alfarið í kringum einkabílinn. Ef borg á að virka vel sem borg þarf ákveðna þéttleika. Rannsóknir í borgarskipulagi sýna að þéttari byggð styður betur við almenningssamgöngur, lækkar kostnað sveitarfélaga og íbúa og dregið úr umferðarþunga. Það er ekki verið að reyna að breyta Reykjavík í einhverja aðra borg, heldur að þróa hana áfram á forsendum nútímans. Svo er það þessi mýta sem maður heyrir oft: „Reykjavík verður alltaf bílaborg, við getum ekki breytt henni í Kaupmannahöfn.“ Nei enda engin að tala um að breyta Reykjavík í Kaupmannahöfn. En ég vil samt minna á að Reykjavík var heldur ekki amerísk bílaborg en okkur tókst samt að breyta henni í ameríska bílaborg. Þess vegna getum við líka breytt henni aftur í borg fyrir fólk. Hagsmunahægrinu er alveg sama þótt það taki sér far með menningarstríðinu Heimildir um fjárhag Reykjavíkurborgar Höfundur er Pírati. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Samgöngur Guðni Freyr Öfjörð Píratar Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hinseginfræðsla á ekki heima í leik- og grunnskólum Hlynur Áskelson,Baldur Borgþórsson,Sigfús Aðalsteinsson Skoðun Enn verið að svindla á ellilífeyrisþegum Björn Leví Gunnarsson Skoðun Biðin bitnar á börnunum Þorvaldur Davíð Kristjánsson,Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Stöldrum við Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Með páskaegg á andlitinu Þorsteinn Sæmundsson Skoðun Mútur eða séríslensk aðför? María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp Skoðun Að tala og tilheyra Baldur Sigurðsson Skoðun Austurland má ekki sitja eftir Berglind Harpa Svavarsdóttir Skoðun „Elskið óvini yðar“ – Óhugsandi siðfræði Jesú Dr. Sigurvin Lárus Jónsson Skoðun Offramboð af raforku, ekki orkuskortur Guðmundur Hörður Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Um mannréttindi allra kvenna Tatjana Latinović skrifar Skoðun Svo mikill hagvöxtur og svo mikil framför! - Tími nýfrjálshyggjunnar Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Ef við erum öll almannavarnir – hver fer þá með forræðið? Jón Svanberg Hjartarson skrifar Skoðun Markvissar aðgerðir til að styrkja landamæri Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Biðin bitnar á börnunum Þorvaldur Davíð Kristjánsson,Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Að tala og tilheyra Baldur Sigurðsson skrifar Skoðun Með páskaegg á andlitinu Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Austurland má ekki sitja eftir Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Enn verið að svindla á ellilífeyrisþegum Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun „Elskið óvini yðar“ – Óhugsandi siðfræði Jesú Dr. Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Stöldrum við Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hraðbanki fyrir fjármagnseigendur? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Óseðjandi útvistunarblæti Samfylkingar og Vinstrisins (2/3) Orð Vinstrisins á móti verkum Guðröður Atli Jónsson skrifar Skoðun Mútur eða séríslensk aðför? María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp skrifar Skoðun Kæri Hitler frændi Þorvaldur Logason skrifar Skoðun Forvarnir eru fjárfesting – ekki sparnaður Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Traust fæst ekki með orðum einum saman – Verkalýðsfélög eru fyrirmyndir Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Óskað eftir aðhaldi á frasahlið ríkisstjórnarinnar Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Hjólum í þetta Óli Örn Eiríksson skrifar Skoðun Baðlónabullið - stjórnvöld hlaupast undan ábyrgð Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Hinseginfræðsla á ekki heima í leik- og grunnskólum Hlynur Áskelson,Baldur Borgþórsson,Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Ef þú átt rætur í Grindavík - þá getur þú haft áhrif á framtíð hennar Ásrún Helga Kristinsdóttir skrifar Skoðun Bylting í bráðaþjónustunni? Unnur Ósk Stefánsdóttir skrifar Skoðun Offramboð af raforku, ekki orkuskortur Guðmundur Hörður Guðmundsson skrifar Skoðun Stríðandi viðhorf Sjálfstæðismanna til tjáningarfrelsis Ágúst Elí Ásgeirsson skrifar Skoðun Á Landskjörstjórn að gera athugasemdir við spurninguna? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Málfrelsi, meiðyrði og mútugreiðslur Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Frá hruni til hávaxta – hvað lærðum við eiginlega? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Skjaldborg um bílaeigendur? Jean_Rémi Chareyre skrifar Skoðun Kerfisbreytingar mega ekki bitna á börnum Steinunn Bergmann skrifar Sjá meira
Hinseginfræðsla á ekki heima í leik- og grunnskólum Hlynur Áskelson,Baldur Borgþórsson,Sigfús Aðalsteinsson Skoðun
Skoðun Svo mikill hagvöxtur og svo mikil framför! - Tími nýfrjálshyggjunnar Davíð Aron Routley skrifar
Skoðun Óseðjandi útvistunarblæti Samfylkingar og Vinstrisins (2/3) Orð Vinstrisins á móti verkum Guðröður Atli Jónsson skrifar
Skoðun Traust fæst ekki með orðum einum saman – Verkalýðsfélög eru fyrirmyndir Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar
Skoðun Hinseginfræðsla á ekki heima í leik- og grunnskólum Hlynur Áskelson,Baldur Borgþórsson,Sigfús Aðalsteinsson skrifar
Skoðun Ef þú átt rætur í Grindavík - þá getur þú haft áhrif á framtíð hennar Ásrún Helga Kristinsdóttir skrifar
Hinseginfræðsla á ekki heima í leik- og grunnskólum Hlynur Áskelson,Baldur Borgþórsson,Sigfús Aðalsteinsson Skoðun