Njarðvík vann nýliðana í framlengingu og Stólarnir sóttu sigur til Þorlákshafnar Ágúst Orri Arnarson skrifar 11. febrúar 2026 21:17 Brittany Dinkins setti tvo þrista undir lok leiks og sendi leikinn í framlengingu. Hulda/Vísir Njarðvík vann 85-73 sigur gegn Ármanni í framlengdum leik og Tindastóll vann 87-79 á útivelli gegn Hamar/Þór í 17. umferð Bónus deildar kvenna í körfubolta.
Ármann leit út fyrir að ætla að vinna Njarðvík í kvöld en nýliðarnir köstuðu frá sér sigrinum á lokamínútunum. Ármannskonur voru sex stigum yfir þegar 30 sekúndur voru eftir af leiknum, en þá setti Brittany Dinkins þrist fyrir Njarðvík og minnkaði muninn. Jónína Þórdís Karlsdóttir klikkaði svo á tveimur vítum í næstu sókn Ármanns og Brittany jafnaði fyrir Njarðvík með öðrum þristi þegar 16 sekúndur voru eftir. Ármannskonur klikkuðu bæði á þriggja stiga skoti og sneiðskoti í síðustu sókn leiksins. Með jafna 67-67 stöðu þurfti þá að draga til framlengingar. Ármann skoraði ekki nema sex stig gegn átján hjá Njarðvík í framlengingu, orka nýliðanna var alveg á þrotum og Njarðvík fagnaði 85-73 sigri. Með þessum sigri jafnaði Njarðvík topplið KR og Hauka að stigum en öll þrjú efstu liðin hafa unnið tólf og tapað fimm leikjum. Marta og Madison tryggðu Tindastólssigur Hamar/Þór og Tindastóll háðu harða baráttu en heimakonur í Þorlákshöfn voru með forystuna þegar fjórði leikhlutinn gekk í garð. Stólarnir áttu hins vegar meira eftir af orku undir lok leiks og sigldu fram úr fjórða leikhluta. 79-87 sigur Tindastóls varð að lokum staðreynd. Marta Hermida og Madison Sutton fóru mikinn á þeim kafla fyrir Tindastólskonur. Marta var líka langstigahæst í leiknum með 34 stig. Madison fylgdi henni eftir í stigasöfnun með 20 stig og greip flest fráköst allra, 12 talsins. Roselis Silva sá um að dreifa spilinu og gaf 10 stoðsendingar. Hjá Hamar/Þór var Jadakiss Nashi Guinn framlagshæst, með 20 stig, 4 fráköst og 5 stoðsendingar. Hamar/Þór er í neðsta sæti deildarinnar með fjögur stig en Tindastóll er í 8. sæti með tólf stig.
Bónus-deild kvenna UMF Njarðvík Ármann Tindastóll Hamar Þór Þorlákshöfn Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira