Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 11. febrúar 2026 10:13 Byssan mun hafa verið af gerðinni Glock 9mm. Myndin er úr safni. Getty Lucy Harrison, 23 ára bresk kona frá Warrington í Cheshire, var skotin til bana þann 10. janúar í fyrra þegar hún var í heimsókn hjá föður sínum í Prosper, nærri Dallas í Texas í Bandaríkjunum. Faðir Harrison er sagður hafa skotið dóttur sína í bringuna með þeim afleiðingum að hún lést, eftir að feðginin hafi átt í rifrildi um Donald Trump Bandaríkjaforseta.
BBC greinir frá málinu í gær og vitnar í rannsóknargögn um dánarorsök. Lucy Harrison er sögð hafa verið í heimsókn hjá föður sínum, Kris Harrison, í Texas og að fyrr sama dag og hún var skotin til bana hafi feðginin átt í rifrildi um Bandaríkjaforseta. Lögregla hafi rannsakað málið sem manndráp, en ekkert sakamál hafi verið höfðað gegn Kris þar sem dómstóll hafi neitað að ákæra hann, eins og því er lýst í umfjöllun BBC. Í rannsóknargögnum um dánarorsök sé að finna vitnisburð Sam Litter, kærasta Lucy, sem hafi lýst „stóru rifrildi“ um Trump sem á þeim tíma var að búa sig undir að taka við embætti Bandaríkjaforseta öðru sinni. Litter sem var með Lucy Harrison í för þegar þau heimsóttu fjölskyldu hennar yfir hátíðarnar segir að kærasta sín hafi oft verið leið í garð föður síns þegar hann talaði um að hann ætti byssu. Þá herma gögn málsins einnig að Kris Harrison hafi flutt til Bandaríkjanna þegar dóttir hans var barn og að hann hafi sótt áfengismeðferð vegna fíknar. Hann hafi með yfirlýsingu viðurkennt að hafa fallið á áfengisbindindi daginn sem dóttir hans lést. Litter segir að um morguninn 10. janúar í fyrra að kærastan hans spurt föður sinn þegar þau rifust um Trump „hvernig myndi þér líða ef ég væri stelpan í þessum aðstæðum og það hafi verið brotið á mér kynferðislega?“ Faðirinn hafi svarað á þá leið að hann ætti tvær aðrar dætur sem byggju hjá honum, svo það myndi ekki valda honum neitt miklu uppnámi. Dóttirin hafi verið mjög miður sín og hafi hlaupið upp á efri hæð hússins. Síðar sama dag, um hálfri klukkustund áður en parið ætlaði að leggja af stað út á flugvöll, hafi Lucy verið í eldhúsinu þegar faðir hennar hafi sótt hana og leitt hana inn í svefnherbergi á jarðhæðinni. Síðan segist Litter hafa heyrt háværan hvell og svo hafi faðirinn Kris öskrað eftir konu sinni, Heather. Sjálfur lýsir faðirinn atburðarrásinni á nokkuð annan veg, en hann segist hafa ætlað að sýna dóttur sinni byssuna eftir að þau hafi horft saman á fréttir um glæpi með skotvopn. Hann hafi tekið Glock 9 millimetra hálfsjálfvirka handbyssu úr skáp inni í herbergi en þegar hann hafi lyft byssunni hafi hann allt í einu heyrt háan hvell. „Ég skildi ekki hvað gerðist. Lucy féll allt í einu niður,“ er haft eftir Kris um atburðinn. Sjálfur segist hann ekki muna hvort fingur hans hafi snert gikkinn.
Skotvopn Bandaríkin Bretland Donald Trump Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Sjá meira