Jafnrétti er ekki „aukaverkefni“ Arnar Gíslason, Joanna Marcinkowska og Sveinn Guðmundsson skrifa 9. febrúar 2026 12:01 Sumum finnst að jafnrétti sé „alveg að koma“ hér á Íslandi, og kannski ekki furða. Við höfum jafnréttislög, jafnréttisáætlanir, og jafnréttisnefndir. Samt heyrum við – aftur og aftur – sögur af fólki sem upplifir útilokun, vantrú á kerfinu, óöryggi eða einfaldlega að rödd þeirra fái ekki sama vægi og raddir annarra. Þegar fólk missir trú á að hlustað sé á það, þá bregst traustið sem samfélög byggja á. Þess vegna skiptir jafnrétti máli. Ekki bara sem frasar eða falleg orð, heldur sem hluti af hversdagslífinu: Hver fær að tilheyra? Hver er „eðlilegur“ og hver þarf stöðugt að útskýra sig, eða taka á móti athugasemdum sem annað fólk fær aldrei? Háskólar eru hluti af samfélaginu, og þeir móta það líka. Þar lærir fólk að verða sérfræðingar og leiðtogar, og þar verða til hugmyndir sem hafa áhrif langt út fyrir veggi skólans. Ef háskólar tryggja ekki jafnræði missum við ekki bara fólk út úr námi og starfi – við missum líka hæfileika og fjölbreytt sjónarhorn. Í því samhengi eru Jafnréttisdagar háskólanna settir upp sem vettvangur fyrir ólík sjónarhorn og ólíka nálgun. Dagskráin minnir á að jafnrétti er ekki bara slagorð heldur spurningar sem þarf að svara, og að jafnrétti er samspil margra þátta á borð við kyn, fötlun, uppruna, tungumál, stétt, kynhneigð, aldur, trú og heilsu. Sumum finnst jafnréttisumræða stundum þreytandi, og upplifa að hún sé endalaus og að alltaf sé verið að „leiðrétta“ eitthvað. En kannski er það merki um að umræðan sé að virka: hún truflar vanann. Hún krefst þess að við spyrjum spurninga sem við höfum ekki þurft að spyrja áður, sérstaklega fyrir þau sem hafa alltaf passað inn. Jafnrétti er ekki lokastaða sem við náum og getum síðan slakað á. Það er viðhaldsvinna sem krefst bæði stefnu og aðgerða, en líka breytinga á kerfinu og hversdagslegra ákvarðana. Háskólar geta – og eiga – að vera staðir þar sem sú vinna er tekin alvarlega, ekki bara í febrúar heldur allt árið. Jafnréttisdagar minna okkur á að jafnrétti er ekki sérviðburður, heldur samfélagssáttmáli. Sá sáttmáli er aðeins trúverðugur ef við þorum að ræða hann af hreinskilni, hlusta þegar samtalið krefst sjálfsskoðunar og breyta þegar reynslan segir okkur að við þurfum að gera betur. — Jafnréttisdagar háskólanna 2026 fara fram 9.–12. febrúar og eru samstarfsverkefni allra háskóla á Íslandi. Dagskrána má finna á jafnrettisdagar.is. Höfundar starfa í jafnréttis- og inngildingarteymi Háskóla Íslands Arnar Gíslason, Joanna Marcinkowska, Sveinn Guðmundsson Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jafnréttismál Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar