Íslandsmeistari í ólympískum lyftingum þremur vikum eftir að hún missti fóstur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. febrúar 2026 09:31 Guðný Björk Stefánsdóttir með Íslandsmeistarabikarinn og gullið um hálsinn. @gudnybjorkstefans Íslenska lyftingakonan Guðný Björk Stefánsdóttir fagnaði sigri á Íslandsmóti í ólympískum lyftingum í gær en sigur hennar var stærri en margir gerðu sér grein fyrir.
Guðný Björk vann sinn flokk, -77 kílóa flokk, en varð einnig Íslandsmeistari í heildarkeppni með 256,697 Sinclair stig. Guðný lyfti samtals 209 kílóum, 91 kílói í snörun og 118 kílóum í jafnhendingu. Hún lyfti 23 kílóum meira en næsta kona. Þórbergur Ernir Hlynsson vann heildarkeppnina hjá körlunum með því að lyfta 325 kílóum og fá 362,741 Sinclair stig. Hér má finna öll úrslit á mótinu. Eftir sigurinn í gær greindi Guðný frá sérstökum undirbúningi sínum fyrir þetta mót. Í raun hafði hún ekki ætlað að keppa á mótinu en örlögin gripu í taumana. Var tilbúin í að leggja skóna á hilluna „Ég komst að því að ég væri ólétt í lok árs 2025 og var tilbúin í að leggja skóna á hilluna í bili og stíga inn í draumahlutverkið að verða mamma,“ skrifaði Guðný Björk. „Við vorum í skýjunum með þetta allt saman en fyrir þremur vikum vorum við svo rifin niður á jörðina þegar það byrjaði að blæða sem endaði með fósturmissi. Við erum mjög heppin með fólkið okkar sem hefur staðið þétt við bakið á okkur í gegnum mjög erfiðar vikur,“ skrifaði Guðný. Mikið andlegt og líkamlegt áfall „Þrátt fyrir mikið andlegt og líkamlegt áfall var ég strax mjög ákveðin í að keppa og í raun gaf þetta mér einhvern auka kraft og ég ætlaði mér að gera allt sem ég gæti til að mæta og gera mitt allra besta,“ skrifaði Guðný. Nú ætlar hún sér stóra hluti á tímabilinu og hefur sett stefnuna á Smáþjóðaleikana á Íslandi, Evrópumeistaramótið í Georgíu og heimsmeistaramótið í Kína. „Okkar tími mun koma en núna er allur fókus á íþróttinni sem ég elska og ég er spennt fyrir keppnistímabilinu sem er fram undan,“ skrifaði Guðný. Hún segir þetta það erfiðasta sem hún hefur gengið í gegnum en vildi deila sögu sinni ef það hjálpaði einhverjum. „Ég vildi deila þessu ef það hjálpar einhverjum að heyra að þið eruð ekki einar af því það hjálpaði mér, knús á allar sem hafa misst, þetta er klárlega það erfiðasta sem ég hef gengið í gegnum,“ skrifaði Guðný. View this post on Instagram A post shared by Guðný Björk Stefánsdóttir (@gudnybjorkstefans)
Lyftingar Mest lesið Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þrír líklegustu dottnir úr leik „Betra liðið tapaði” „Ég er ríkmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Alcaraz fann til með Sinner Doncic flytur félag til Rómar „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Óskar Hrafn á hælana? Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Árangurinn vinnur gegn kvíðanum Sjá meira