Ný forgangsröðun í Kópavogi Jónas Már Torfason skrifar 7. febrúar 2026 10:45 Í dag fer fram flokksval hjá Samfylkingunni í Kópavogi. Í framboði er öflugur hópur með fjölbreytta reynslu og bakgrunn sem hefur átt í virku samtali við Kópavogsbúa undanfarnar vikur. Í samtölum við bæjarbúa heyrir maður fljótt sameiginlegt stef. Þótt fólk sé stolt af bænum sínum virka bæjaryfirvöld eins og þau séu á sjálfstýringu. Ákvarðanir eru teknar út frá hagsmunum kerfisins frekar en fólksins í bænum. Kópavogsbúar vita lítið um hvað er í gangi og það er erfitt að sækja sér upplýsingar. Útkoman í Excelskjalinu virðist mikilvægari en áhrifin á fólkið í bænum. Það þarf sannarlega að huga að rekstri bæjarins og að hann skili sér réttu megin við núll. En þegar svigrúm myndast þarf að forgangsraða í þágu öflugrar þjónustu. Ég hef rætt við fjölskyldufólk sem borgar hæstu leikskólagjöld á landinu um hver mánaðarmót og skilur ekki hvers vegna er verið að „skattleggja barneignir“. Ég hef heyrt frá fólki sem upplifir algjört samráðsleysi í skipulagsmálum þar sem áætlanir þróunaraðila eru látnar hafa forgang fram yfir þarfir og vilja íbúa. Ég hef rætt við eigendur lítilla fyrirtæki sem þurfa að hlaupa á milli stofnana og úttektaraðila sem tala ekki saman og benda hvert á annað. Við kennara sem kvarta sáran yfir skorti á úrræðum fyrir börn með sérþarfir og heyrt frá aðstandendum fatlaðra einstaklinga í bænum sem eru að bugast yfir biðlistum. Frá eldri borgurum sem hafa einangrast frá því þau hættu að vinna og upplifa að ekkert hafi beðið þeirra eftir að starfsævinni lauk. Við hlustum og höfum heyrt skýrt ákall um breytta forgangsröðun. Við ætlum okkur að svara kallinu. Samfylkingin er mætt til leiks í Kópavogi. Til að mynda meirihluta um nýja forgangsröðun. Meirihluta sem veit hvað á að vera í fyrsta sæti: öflug þjónusta sem auðveldar bæjarbúum daglegt líf. Það þarf ekki mikið til að gott verði best, og ég óska eftir umboði jafnaðarmanna í Kópavogi til að leiða flokkinn til nýrrar forystu í bænum. Höfundur býður sig fram til oddvitasætis Samfylkingarinnar í Kópavogi. Flokksval fer fram í dag þann 7. febrúar, milli klukkan 9 og 17 á xs.is . Kosningarétt hafa Kópavogsbúar sem eru skráðir stuðningsmenn eða flokksfélagar í Samfylkingunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samfylkingin Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar