Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 5. febrúar 2026 07:30 Keir Starmer, til hægri, og Peter Mandelson á meðan allt lék í lyndi. Carl Court/Pool Photo via AP, file Þrýstingur eykst nú á Keir Starmer forsætisráðherra Breta en lægra settir þingmenn í Verkamannaflokki hans eru sagðir afar ósáttir við hvernig foringi þeirra tók á máli Peters Mandelsons fyrrverandi ráðherra og sendiherra Breta í Bandaríkjunum sem nú hefur verið rekinn úr flokknum.
Það er gert í ljósi nýjustu Epstein skjalanna sem sýna náin tengsl Mandelsons við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Starmer sagði í breska þinginu í gær að hann hefði vitað af tengslum Mandelsons við Epstein en að hann hafi hinsvegar ekki gert sér grein fyrir hversu djúpt þau hafi rist. Þá segir Starmer að Mendelson hafi ítrekað logið til um sambandið við Epstein, bæði áður en hann var skipaður sendiherra og á meðan hann gegndi stöðunni. „Ég sé eftir því að hafa skipað hann,“ sagði Starmer á breska þinginu í gær. Þingmenn Íhaldsflokksins gagnrýna Starmer nú harðlega og nokkrir þingmenn Verkamannaflokksins hafa einnig látið í sér heyra. Þannig sagði þingmaðurinn Barry Gardiner í gærkvöldi aðspurður hvort forsætisráðherrann ætti að segja af sér vegna málsins, að hann hann ætti í það minnsta að hugsa vandlega hvað væri þjóðinni fyrir bestu.
Bretland Mál Jeffrey Epstein Tengdar fréttir Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Bandaríski auðjöfurinn og mannvinurinn Bill Gates segist sjá eftir hverri mínútu sem hann varði með auðjöfrinum og barnaníðingnum Jeffrey Epstein. Hann segir kolrangt að hann hafi notað Epstein til að hafa mök við konur og hafi smitast af kynsjúkdómi. Það sé þvæla og Gates segist ekki vita hvað Epstein gekk til með því að skrifa það niður í tölvupósta sem hann sendi aldrei út. 4. febrúar 2026 15:38 Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Lögregluyfirvöld á Bretlandseyjum hafa hafið rannsókn á framgöngu stjórnmálamannsins Peter Mandelson, sem er grunaður um að hafa lekið opinberum gögnum og viðkvæmum upplýsingum til athafna- og kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epstein. Mandelson, þá viðskiptamálaráðherra, er meðal annars grunaður um að hafa lekið upplýsingum um samtöl ráðamanna í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008. 4. febrúar 2026 08:42 Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein „Persónulega, þá er það erfitt fyrir mig þegar þessi smáatriði koma í ljós, skilurðu? Því þá vakna minningar um afar erfiða tíma í hjónabandinu mínu,“ sagði Melinda French Gates, fyrrverandi eiginkona Bill Gates, þegar hún var spurð út í tölvupósta sem hafa vakið athygli í Epstein-skjölunum. 4. febrúar 2026 07:08 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira
Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Bandaríski auðjöfurinn og mannvinurinn Bill Gates segist sjá eftir hverri mínútu sem hann varði með auðjöfrinum og barnaníðingnum Jeffrey Epstein. Hann segir kolrangt að hann hafi notað Epstein til að hafa mök við konur og hafi smitast af kynsjúkdómi. Það sé þvæla og Gates segist ekki vita hvað Epstein gekk til með því að skrifa það niður í tölvupósta sem hann sendi aldrei út. 4. febrúar 2026 15:38
Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Lögregluyfirvöld á Bretlandseyjum hafa hafið rannsókn á framgöngu stjórnmálamannsins Peter Mandelson, sem er grunaður um að hafa lekið opinberum gögnum og viðkvæmum upplýsingum til athafna- og kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epstein. Mandelson, þá viðskiptamálaráðherra, er meðal annars grunaður um að hafa lekið upplýsingum um samtöl ráðamanna í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008. 4. febrúar 2026 08:42
Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein „Persónulega, þá er það erfitt fyrir mig þegar þessi smáatriði koma í ljós, skilurðu? Því þá vakna minningar um afar erfiða tíma í hjónabandinu mínu,“ sagði Melinda French Gates, fyrrverandi eiginkona Bill Gates, þegar hún var spurð út í tölvupósta sem hafa vakið athygli í Epstein-skjölunum. 4. febrúar 2026 07:08