Seðlabankinn ósammála Daða Má Árni Sæberg skrifar 4. febrúar 2026 10:53 Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði- og peningastefnu hjá Seðlabankanum, kynnti Peningamál í morgun. Vísir/Vilhelm Í nýju riti Peningamála Seðlabanka Íslands segir að nýlegt verðbólguskot sé fyrst og fremst að rekja til hækkunar á opinberum gjöldum og þjónustu um áramót. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur aftur á móti vísað slíku á bug og sagt verðbólguaukningu tilkomna vegna álagningar annarra en ríkisins.
Samhliða yfirlýsingu peningastefnunefndar, um ákvörðun um óbreytta stýrivexti, gaf Seðlabanki Íslands út nýja útgáfu Peningamála. Í ritinu birtist ítarleg greining á framvindu og horfum í efnahagsmálum sem vaxtaákvarðanir peningastefnunefndar Seðlabankans byggjast á. Með útgáfunni leitast bankinn einnig við að standa reikningsskil gerða sinna gagnvart stjórnvöldum og almenningi. Horfur batnað Í Peningamálum segir að hagvöxtur í helstu viðskiptalöndum hafi mælst 1,9 prósent á þriðja fjórðungi síðasta árs, sem sé heldur meira en gert var ráð fyrir í nóvemberspá Peningamála. Enn sé þó töluverður munur á hagþróun milli einstakra ríkja. Líklegt sé að áframhaldandi óvissa um alþjóðaviðskipti haldi aftur af vexti efnahagsumsvifa og hagvaxtarhorfur hafi lítið breyst. Kynningu á Peningamálum má sjá í spilaranum hér að neðan: Alþjóðleg verðbólga hafi minnkað að undanförnu og áfram sé búist við að hún hjaðni enn frekar í ár þrátt fyrir að þjónustuverðbólga hafi víða haldist mikil. Landsframleiðsla hér á landi hafi aukist um 1,5 prósent milli ára á fyrstu þremur fjórðungum síðasta árs, sem sé meira en gert var ráð fyrir í nóvember. „Frávikið má einkum rekja til endurskoðunar Hagstofu Íslands á áður birtum tölum. Á móti vegur að nú er talið að hagvöxtur hafi verið minni á síðasta fjórðungi ársins en áætlað var, einkum vegna lakari þróunar fjármunamyndunar og minna framlags utanríkisviðskipta. Á hinn bóginn jókst einkaneysla meira en gert var ráð fyrir. Talið er að hagvöxtur á árinu 2025 í heild hafi verið 1,3% eða 0,4 prósentum meiri en spáð var í nóvember. Horfur fyrir árið í ár hafa einnig batnað og búist er við að landsframleiðsla aukist um 2% milli ára. Á móti er gert ráð fyrir að hagvöxtur verði minni á næsta ári en talið var í nóvember eða 2,2%. Horfur fyrir árið 2028 hafa hins vegar lítið breyst.“ Undirliggjandi verðbólga minni en mæld Í ritinu segir að störfum sé hætt að fjölga og atvinnuleysi þokist áfram upp. Vísbendingar séu um að atvinnuhorfur hafi versnað enn frekar undanfarið. Talið sé að atvinnuleysi aukist áfram og verði að meðaltali 4,8 prósent í ár en taki að minnka á ný á næsta ári. Líkt og í nóvember sé talið að slaki hafi myndast í þjóðarbúinu í fyrra og að hann verði viðvarandi út spátímann. Verðbólga hafi mælst að meðaltali 4,2 prósent á fjórða ársfjórðungi í fyrra, sem hafi verið lítillega minna en spáð var í nóvember. Verðbólga hafi síðan aukist töluvert og mælst 5,2 prósent í janúar. „Aukninguna má einkum rekja til áhrifa hækkunar á ýmsum opinberum gjöldum og þjónustu auk hækkunar matvöruverðs. Undirliggjandi verðbólga var 4,5% í janúar og hefur aukist minna en mæld verðbólga. Verðbólguvæntingar haldast jafnframt yfir markmiði.“ Þessi greining Seðlabankans rímar illa við fullyrðingar Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, á Alþingi daginn sem ný verðbólgumæling var kynnt. „Það kemur í ljós að áhrifin eru nákvæmlega í samræmi við það sem fjármálaráðuneytið spáði og að hækkunin sem er að verða núna á verðbólgu er vegna annarra þátta. Það er hækkunar á eldsneytisverðinu sjálfu, álagningu eldsneytis eða annarra slíkra þátta og álagningu á bifreiðar. Það er auðvitað slæmt. Þegar breytingar eru notaðar til þess að réttlæta hækkanir,“ sagði hann. Óvissa áfram mikil Í Peningamálum segir að talið sé að verðbólga minnki á ný á komandi mánuðum og að hún verði fimm prósent á fyrsta ársfjórðungi, sem sé töluvert meira en gert var ráð fyrir í nóvember. Lakari upphafsstaða geri það að verkum að hún verði einnig meiri á næstu fjórðungum en þá var spáð. Talið sé að verðbólga fari ekki undir þrjú prósent fyrr en í byrjun næsta árs og verði komin í grennd við markmið um mitt árið. Markmið Seðlabanka Íslands er að verðbólga mælist 2,5 prósent. „Óvissa um alþjóðlegar efnahagshorfur er áfram mikil sér í lagi vegna viðvarandi óvissu um framvindu alþjóðaviðskipta og aukinnar spennu í alþjóðastjórnmálum. Þá er óvíst hversu hratt verðbólga hjaðnar í markmið hér á landi. Svo virðist sem löskuð kjölfesta verðbólguvæntinga og kostnaðarhækkanir á undanförnum misserum hafi leitt til þess að verðbólga hefur verið þrálátari en ella. Á hinn bóginn gætu atvinnuskilyrði versnað meira en gert er ráð fyrir í grunnspánni sem myndi hægja á efnahagsumsvifum og gæti leitt til þess að verðbólga minnki hraðar.“
Efnahagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Seðlabankinn Verðlag Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira