Innanbúðarátök á stjórnarheimilinu Sigurður Páll Jónsson skrifar 2. febrúar 2026 19:29 Kosningasvik ríkisstjórnarinnar gagnvart hinum dreifðu byggðum ríður ekki við einteyming. Strandveiðimõnnum var lofað 48 dõgum á hverju sumri og hlaut Flokkur fólksins brautargengi vegna þeirra innistæðulausu loforða. Síðustu tvõ sumur hafa bátar verið stõðvaðir um miðjan júlí vegna þess að potturinn tæmdist. Samt reynir ráðherrann að útbúa reglugerð þannig að bara sumir mega veiða en ekki aðrir. Atvinnuvegaráðherra gafst upp og afhenti inviðaráðherranum kalekin. Sá ágæti ráðherra tók úr sambandi reglugerð fyrir línuívilnun, skel og rækjubætur, byggðakvóta til að auka við strandveiðar. Þar með eru byggðir hringinn í kringum landið í uppnámi. Brothættar byggðir sem hafa treyst á fyrrnefndar bætur um ára raðir. Allt reynt til að kítta upp í kosningasvik sem bitna á bláeygðum strandveiðimõnnum. Í síðustu viku mælti formaður atvinnuveganefndar fyrir frumvarpi um afnám aflamarks í grásleppu. Þar með að fella niður lõg sem samþykkt voru fyrir tveimur árum. Núverand lõgum voru unnin þannig að landinu var skipt í svæði og hvert svæði hafði sinn kvóta byggða á veiðireynslu báta og ekki er hægt að færa aflamark á milli svæða. Hver bátur getur aldrei fengið meira en 1,5 % af heildar aflamarki grásleppu. Að hámarki getur hver bátur, miðað við raðgjõf síðustu ára fengið um 65 tonn af grásleppu í kvóta á ári. Þetta vilja stjórnvõld afnema með þessu frumvarpi formanns atvinnuveganefndar og færa til fyrri vegar með dagakerfi sem fáir vilja og alls ekki þeir sem stundað hafa þessar veiðar undanfarin ár. Ekkert hefur verið hlustað á rõk þeirra sem mótmæla frumvarpinu um afnám aflamarks kerfis. Greinilegt er að vegna svika Flokks fólksins við strandveiðimenn um õrugga 48 daga, ætla hinir stjórnarflokkarnir að stinga ,, dúsu “ upp í munn Flokks fólksins og samþykkja afnám aflahlutdeildar á grásleppu gegn betri vitund! Framganga ríkisstjórnar Kristrúnar Frostasóttur gagnvart dreifðum sjávarbyggðum er byggð á þekkingarleysi og frekju einstakra stjórnar þingmanna sem fá að vaða um á skítugum skónum í leiðangri sínum gegn atvinnugrein sem þrátt fyrir allt borgar veiðigjõld af fiskveiðum hér við land. Slíkur skattur þekkist ekki hjá õðrum þjóðum sem stunda fiskveiðar. Höfundur er trillukarl og fyrrverandi þingmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Páll Jónsson Mest lesið Þjóðarvarnarráðið hefur verið kallað saman af minna tilefni! Davíð Bergmann Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson Skoðun Orðspor og ímynd bíður hnekki Haukur Hinriksson Skoðun Ekki ert þú nú mikill maður Kristján Loftsson Kristján Logason Skoðun Spyrjið ykkur: Fyrir hvern vinnur íslenska krónan? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Samvinna auðlindagreina styrkir allra hag Þorsteinn Másson Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Sævar Helgi horfir heima Atli Viðar Thorstensen skrifar Skoðun Skiptir stærðin máli? Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Samvinna auðlindagreina styrkir allra hag Þorsteinn Másson skrifar Skoðun Ekki ert þú nú mikill maður Kristján Loftsson Kristján Logason skrifar Skoðun Spyrjið ykkur: Fyrir hvern vinnur íslenska krónan? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Þjóðarvarnarráðið hefur verið kallað saman af minna tilefni! Davíð Bergmann skrifar Skoðun Orðspor og ímynd bíður hnekki Haukur Hinriksson skrifar Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki skrifstofa heldur framkvæmd Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Sjá meira
Kosningasvik ríkisstjórnarinnar gagnvart hinum dreifðu byggðum ríður ekki við einteyming. Strandveiðimõnnum var lofað 48 dõgum á hverju sumri og hlaut Flokkur fólksins brautargengi vegna þeirra innistæðulausu loforða. Síðustu tvõ sumur hafa bátar verið stõðvaðir um miðjan júlí vegna þess að potturinn tæmdist. Samt reynir ráðherrann að útbúa reglugerð þannig að bara sumir mega veiða en ekki aðrir. Atvinnuvegaráðherra gafst upp og afhenti inviðaráðherranum kalekin. Sá ágæti ráðherra tók úr sambandi reglugerð fyrir línuívilnun, skel og rækjubætur, byggðakvóta til að auka við strandveiðar. Þar með eru byggðir hringinn í kringum landið í uppnámi. Brothættar byggðir sem hafa treyst á fyrrnefndar bætur um ára raðir. Allt reynt til að kítta upp í kosningasvik sem bitna á bláeygðum strandveiðimõnnum. Í síðustu viku mælti formaður atvinnuveganefndar fyrir frumvarpi um afnám aflamarks í grásleppu. Þar með að fella niður lõg sem samþykkt voru fyrir tveimur árum. Núverand lõgum voru unnin þannig að landinu var skipt í svæði og hvert svæði hafði sinn kvóta byggða á veiðireynslu báta og ekki er hægt að færa aflamark á milli svæða. Hver bátur getur aldrei fengið meira en 1,5 % af heildar aflamarki grásleppu. Að hámarki getur hver bátur, miðað við raðgjõf síðustu ára fengið um 65 tonn af grásleppu í kvóta á ári. Þetta vilja stjórnvõld afnema með þessu frumvarpi formanns atvinnuveganefndar og færa til fyrri vegar með dagakerfi sem fáir vilja og alls ekki þeir sem stundað hafa þessar veiðar undanfarin ár. Ekkert hefur verið hlustað á rõk þeirra sem mótmæla frumvarpinu um afnám aflamarks kerfis. Greinilegt er að vegna svika Flokks fólksins við strandveiðimenn um õrugga 48 daga, ætla hinir stjórnarflokkarnir að stinga ,, dúsu “ upp í munn Flokks fólksins og samþykkja afnám aflahlutdeildar á grásleppu gegn betri vitund! Framganga ríkisstjórnar Kristrúnar Frostasóttur gagnvart dreifðum sjávarbyggðum er byggð á þekkingarleysi og frekju einstakra stjórnar þingmanna sem fá að vaða um á skítugum skónum í leiðangri sínum gegn atvinnugrein sem þrátt fyrir allt borgar veiðigjõld af fiskveiðum hér við land. Slíkur skattur þekkist ekki hjá õðrum þjóðum sem stunda fiskveiðar. Höfundur er trillukarl og fyrrverandi þingmaður.
Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar