Efins um Pargo-skiptin: „Held að þetta sé ekki rétt hjá þeim“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. janúar 2026 23:04 Jeremy Pargo hefur komið víða við á löngum ferli. Hann verður fertugur 17. mars næstkomandi. vísir/anton Sú ákvörðun Grindavíkur, toppliðs Bónus deildar karla í körfubolta, að skipta um Bandaríkjamann kom sérfræðingum Bónus Körfuboltakvölds á óvart. Jeremy Pargo er mættur aftur til Grindavíkur og kemur í stað Khalils Shabazz.
Greint var frá þessum breytingum í gær. Pargo lék með Grindavík seinni hluta síðasta tímabils. Þá var hann með 25,7 stig og 7,3 stoðsendingar að meðaltali í deildarkeppninni en 16,4 stig og 7,4 stoðsendingar að meðaltali í leik í úrslitakeppninni. „Ég held að þetta sé ekki rétt hjá þeim. Hann er ári eldri en hann var í fyrra en töluvert léttari segja menn en ég á eftir að sjá það. Svo á hann eftir að slípast með hinum. Hann verður örugglega góður en ég held að þeir vinni ekki titilinn bara út af honum,“ sagði Magnús Þór Gunnarsson í Bónus Körfuboltakvöldi í gær. Klippa: Bónus Körfuboltakvöld - umræða um Jeremy Pargo Hlynur Bæringsson spilaði gegn Pargo á síðasta tímabili, meðal annars í eftirminnilegu einvígi Stjörnunnar og Grindavíkur í undanúrslitum. „Hann er ógeðslega góður í körfu. Þú sérð það á honum, þegar þú spilar við hann, að hann er skör fyrir ofan þessa deild, maður sá að hann hafði verið það einhvern tímann. En eins og Maggi segir er hann fertugur og menn geta fallið helvíti hratt á þessum aldri. Þetta er áhætta og það er örugglega ekki algengt að lið sem er þetta örugglega í efsta sætinu skipti um leikmann. Maður hefði haldið að það lið væri bara á toppnum og liði vel. Þetta er mjög sérstakt. Það er smá panikk í þessu,“ sagði Hlynur. „Pargo er nauthraustur sem Shabazz er ekki. Hann getur gefið þeim meiri sveigjanleika í vörninni þótt hann sé orðinn þetta gamall. Það er einhver vinkill sem þeir eru mögulega að skoða því Shabazz var veikleiki í vörn og einhæfari að einhverju leyti. En þetta er samt áhætta út af aldrinum en þeir eru örugglega með mjög góðar heimildir fyrir því að hann sé í toppstandi.“ Miklu betri en Shabazz Hlynur segir samt að þessi skipti Grindvíkinga gætu heppnast. „Þótt ég sé mjög efins með þetta er Jeremy Pargo - ef hann hefur náð að sigra föður tíma og er ekki orðinn eldri en í fyrra, öfugt við okkur hina - töluvert betri leikmaður en Shabazz. Miklu betri sendingamaður, getur klárað betur upp við körfuna og betri varnarmaður og miklu sterkari,“ sagði Hlynur. „Ég skil þetta að einhverju leyti. Það er bara þessi aldur,“ sagði Hlynur en Pargo er fæddur 1986. Hann lék um tíma í NBA-deildinni í Bandaríkjunum. Grindavík er með sex stiga forskot á toppi Bónus deildarinnar. Liðið hefur unnið fjórtán af sextán leikjum sínum á tímabilinu. Umræðuna úr Bónus Körfuboltakvöldi má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Bónus-deild karla UMF Grindavík Körfuboltakvöld Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Fleiri fréttir Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Sjá meira