Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Árni Sæberg skrifar 23. janúar 2026 15:12 Kaflinn sem um ræðir nær frá Miklubraut að hringtorginu við Hamrahlíð og Eskihlíð. Vísir/Egill Samhliða umfangsmiklum veituframkvæmdum í Lönguhlíð í Reykjavík fær gatan nýtt útlit. Miðeyjan hverfur og sérstakir hjólastígar verða beggja vegna götunnar. Gangstéttir verða næst lóðamörkum en hjólastígarnir verða einstefnustígar upp við gangstéttarnar. Heildarkostnaður framkvæmdanna nemur ríflega milljarði króna. „
Langahlíð fær nýtt útlit og verður falleg borgargata með fyrirhuguðum framkvæmdum sem hefjast í vor. Markmið breytinganna er að bæta aðstæður fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og gera umhverfið öruggara og vistlegra. Framkvæmdirnar verða á svæðinu frá Eskitorgi að Miklubraut,“ segir í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar. Gróður beggja megin Í hönnuninni verði hönnuninni innleiddar blágrænar ofanvatnslausnir sem draga úr álagi á fráveitukerfi og hreinsa ofanvatn en það þýði að gróður verður beggja vegna götunnar, á milli götu og stíga. Svona er Langahlíð í dag.Reykjavíkurborg Drápuhlíð vestan Lönguhlíðar verði einnig endurnýjuð, bæði veitukerfi og gata. Þar hafi endanleg útfærsla ekki enn verið ákveðin en framundan sé samstarf við slembivalinn hóp íbúa í formi vinnustofu. Hönnun gæti tekið breytingum frá því sem áður hefur verið kynnt eftir frekara samtal við íbúa. 1.170 milljónir króna Farið verði í sameiginlegt framkvæmdaútboð með Veitum. Áætlaður kostnaður Reykjavíkurborgar sé 525 milljónir króna en heildarkostnaðaráætlun hljóði upp á 1.170 milljónir króna. Borgarráð hafi samþykkt á fundi sínum fimmtudaginn 22. janúar að heimila umhverfis- og skipulagssviði að hefja innkaupaferli vegna framkvæmdanna. Svona verður Langahlíð að loknum framkvæmdum, fyrir utan það að hjólastígurinn verður ekki rauður.Reykjavíkurborg Áætlað sé að framkvæmdir hefjist í apríl og þær standi út árið 2027. Þegar verktaki verður kominn til leiks verði framkvæmdirnar útfærðar nánar. Veitur og Reykjavíkurborg muni, þegar nær dregur, vinna að því saman að upplýsa nærumhverfið um hjáleiðir og aðrar raskanir sem óhjákvæmilega fylgi stórum framkvæmdum.
Reykjavík Skipulag Borgarstjórn Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Sjá meira