Við þurfum betri döner í Reykjavík Björn Teitsson skrifar 23. janúar 2026 08:22 Einn vinsælasti skyndibiti Evrópu er döner kebap. Augljóslega á sá réttur ættir sínar að rekja til Tyrklands en sú útgáfa sem hefur notið mestrar hylli var fundinn upp í Vestur-Þýskalandi í kringum 1970. Það er aðeins á reki hvort fyrsta útgáfan af „Döner im Brot“ hafi birst í Reutlingen í Baden-Württemberg eða í svokallaðri „Imbiss“-sjoppu við Zoologischer Garten í Vestur-Berlín sem var rekin af Kadir Nurman, tyrkneskum innflytjanda sem var einn af hundruðum þúsunda „gestaverkamanna“ sem áttu sinn þátt í að knýja áfram vesturþýska efnahagsundrið á seinni hluta 20. aldar. Í dag eru vinsældir dönersins í Þýskalandi slíkar að þar í landi eru um 18 þúsund döner-staðir, en til samanburðar eru veitingastaðir McDonalds-keðjunnar „einungis“ um 1400 talsins. Þeir Íslendingar sem hafa dvalið eitthvað í Þýskalandi þekkja og kunna líklega mjög vel að meta döner. Og spyrja sig um leið eftir að aftur til Íslands er komið: „Hvers vegna er ekki svona góður döner hér?“ Sjálfur hef ég gengið með þá hugmynd í maganum að best væri að bjóða einfaldlega Þjóðverjum af tyrkneskum uppruna að koma hingað til lands til að reka slíka staði. Þeir einir sem hafa reynsluna og tilfinninguna fyrir þessu meistaraverki matarsögunnar gætu framkallað slíka snilld hér. Þessi viðskiptahugmynd er hér með lögð á borðið fyrir hvern sem vill. Af hverju getum við ekki rekið leikskólakerfi sem er ómyglað? Verandi miðaldra maður sem býr í Reykjavík, með háskólapróf og Volvo á bílastæðinu, þekki ég marga Íslendinga sem hafa búið í Svíþjóð. Persónulega myndi ég aldrei nenna að búa þar. Þjóð sem er sjúk í reglur og býr yfir, að því er virðist, algeran fanatisma í að „hafa ekki of gaman“, þjóð þar sem meðalmanneskjan er óþolandi falleg og jafnaldrar mínir af sama kyni klæðast jafnvel léttum ullarpeysum sem þeir binda yfir axlir með póló-bol undir, já, svoleiðis þjóð getur varla verið skemmtileg. En eitt hafa þeir þó. Gott leikskólakerfi. Þar sem allt virðist ganga upp og aldrei er vesen. Ég hef heyrt óþolandi mikið um þetta frá, tja, öllum sem ég þekki sem hafa búið í Svíþjóð. Í vetur hef ég verið eitt fjölmargra foreldra sem hefur þurft að þola lokun leikskóla innan hverfis. Raunar var leikskóli dóttur minnar beinlínis í bakgarðinum hjá mér, í um 100 metra fjarlægð frá heimilinu. Það voru lífsgæði sem verða ekki metin til fjár. Síðan Hagaborg var lokað hef ég hins vegar ekki séð einn einasta einstakling vinna í því að gera húsið aftur starfhæft. Í vor verður ár síðan byggingunni var lokað. Á meðan hafa börnin sem þar voru verið send út og suður. Eða austur réttara sagt. Í Ármúla. Og þessvegna byrja dagarnir mínir í umferðinni, aukabíll á götum borgarinnar, þrátt fyrir að ég vilji með engu móti vera í umferðinni. Leikskólamál eru ekki aðeins menntamál. Þau eru velferðarmál, þau eru greinilega samgöngumál. Við erum að tefja umferð með því að hafa þessa hluti í ólagi. Það er ótrúleg skerðing á lífsgæðum að sóa klukkutíma eða tveimur á dag í umferð þegar þú hefur tekið allar ákvarðanir í lífi þínu til þess einmitt að sleppa við að sóa tíma í bílaumferð. Af hverju njótum við ekki þeirra lífsgæða sem þétting byggðar átti að færa okkur? Ég er mikill fylgjandi þess að nýta reiti innan borgarmarkanna sem eru vannýttir, gömul iðnaðarsvæði sem hafa sinnt sínum tilgangi, eða bílastæðaflæmi á besta stað, til að byggja upp íbúðarhúsnæði í bland við verslun og þjónustu. Þetta er stefna sem er hornsteinn allra bestu borga Evrópu og Norðurlanda sem við viljum bera okkur saman við, sem við viljum nálgast að lífsgæðum. Með góðum og traustum almenninngssamgöngum fjölgum við möguleikum okkar að komast á milli staða, og tala ekki um bætta innviði til að hjóla eða ganga. Þetta er ekki síst lýðheilsumál eins mikið og þetta er lífsgæðamál. Að hreyfa sig, að hitta fólk, gott fyrir líkama og sál. Að styrkja hverfin með bættri nærþjónustu og fjölbreyttari verslun og afþreyingu, svo fólk þurfi ekki sífellt að reiða sig á einkabíl í hverju sem það gerir. Auðvitað þarf sumt fólk að gera það eða kýs það hreinlega. Það er líka fínt. En margt fólk væri mjög gjarnan til í að labba í bakaríið á morgnana, fara á kaffihús um helgar eða geta farið í klippingu innan hverfis. Þetta hefur til dæmis gengið gengið afar vel í Svíþjóð, en þar eru allar helstu borgir með sömu áherslur í borgarþróun og hafa verið í Reykjavík undanfarinn hálfa annan áratug. En þetta hefur ekki gengið nógu vel hjá okkur. Á þéttingarreitum vantar grunninnviði á borð við skóla og leikskóla, aðstöðu til íþróttaiðkunar fyrir börn og unglinga, aðgengi að almenningssamgöngum. Það hefur vantað kaupmanninn á horninu og kaffihúsið eða barinn á jarðhæð. En samt eru þetta lífsgæði sem við þráum flest. Flytjum inn dönerstarfsmenn Undanfarið hefur umræðan um borgarmál verið á leiðinni í ógöngur. Hún virðist að mestu snúast um bílastæði þrátt fyrir að engin borg í Evrópu bjóði upp á jafnmörg bílastæði og einmitt Reykjavík. Og það er greinileg þreyta í fólki, það er þreyta í borgarstjórn. Bæði í meirihlutanum, sem og minnihlutanum. Allt þetta þras og allar þessar falsfréttir, sem verða að allsherjar pirringi sem fyllir sístækkandi menningargjá sem bræðibeitur fjölmiðla magna svo upp. Ég er í öllu falli með tillögu að lausn. Ég ætla (því miður) ekki að flytja inn dönerstarfsmenn. Ég ætla ekki að flytja inn sænska velferðarkerfið heldur. En ég ætla að kjósa Pétur Marteinsson í prófkjöri Samfylkingarinnar því hann þekkir sænska velferðarkerfið nógu vel til að velja þaðan það besta og innleiða í Reykjavík. Hann þekkir að vera uppbyggingar- og rekstraraðili í Reykjavík og þekkir hvað þarf innan hverfa til að skapa raunveruleg gæði og kann þar með einnig að taka samtalið við aðra uppbyggingaraðila til að stefna að því sama. Hann hefur komið fram af einstökum heilindum og heiðarleika í sinni prófkjörsbaráttu, aldrei mælt slæmt orð um aðra frambjóðendur þótt á móti blási, heldur haldið sig við jákvæða og uppbyggilega umræðu þar sem málefnin eru í fyrirrúmi. Hann var fyrirliði í fótbolta og talar sem slíkur. Sem góða týpan af fyrirliða, sem skammar ekki heldur hvetur áfram. Og það er akkúrat þannig týpa af fyrirliða sem ég er viss um að Reykjavík hefur gott af. Þannig gæti samtalið milli borgarbúa, borgarstjórnar og uppbyggingaraðila jafnvel endað með tyrknesk-þýskum dönerstað á einhverju góðu horni. Og hver myndi ekki vilja það? Höfundur er borgarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn Teitsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Skoðun Af hverju eru íslenskir sprotar skráðir í Delaware? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Járn í járn Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun ESB margfaldar áhrif smáríkja: Dæmi frá Kýpur Dominic Scott skrifar Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason skrifar Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir skrifar Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert skrifar Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson skrifar Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem vandar sig ekki veldur skaða Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Loksins sameinuð! Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Næsta stafræna gjá Íslands er þegar að myndast Stefán Atli Rúnarsson skrifar Sjá meira
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar
Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar
Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar
Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun