Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson, Soffía Pálsdóttir og Jakob Frímann Þorsteinsson skrifa 5. júní 2026 12:47 Sumarið er komið og því fylgir oft sérstök tilfinning um frelsi og von. Að geta verið úti að leika, upplifað skemmtileg augnablik og gott veður. Þegar skóla lýkur á vorin verður til aukinn frítími og frelsi í lífi barna og unglinga. Þessi tími er dýrmætur en hann kallar líka á ábyrgð samfélagsins. Skipulagt frístundastarf er mikilvægur vettvangur fyrir þroska, þátttöku og tengsl. Þar læra börn að vera með öðrum, taka tillit, leysa ágreining, æfa samskipti og finna að þau tilheyra hópi. Fyrir mörg börn er frístundastarfið sá staður þar sem vináttan styrkist, sjálfstraust vex og hæfileikar fá að njóta sín utan hins hefðbundna skólastarfs. Félagsleg þátttaka er ekki aukaatriði heldur ein af grunnforsendum vellíðunar. Börn sem upplifa að þau eigi stað, að á þau sé hlustað og að þau geti lagt sitt af mörkum eru líklegri til að dafna. Þess vegna skiptir skipulagt frístundastarf svo miklu máli. Í frístundastarfi Reykjavíkurborgar er lögð áhersla á að frístundastarf sé uppeldis- og menntunarvettvangur þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að þroskast í gegnum leik, samskipti og virka þátttöku. Niðurstöður úr Íslensku æskulýðsrannsókninni 2025 sýna meðal annars að aðeins 20–27% barna og unglinga í 6.–10. bekk hreyfðu sig í 60 mínútur eða meira alla daga í hverri viku. Það eitt og sér ætti að vekja okkur til umhugsunar. Þegar svo fá börn ná viðmiðum um daglega hreyfingu skiptir máli að samfélagið tryggi aðgengileg og skipulögð tækifæri til virkni. Það þarf einnig að hvetja börn til að fara út að leika með vinum sínum þar sem þau þurfa að leysa ágreining, leita sátta og búa til eigin reglur og fylgja þeim. Við þurfum líka að gefa börnum tækifæri til þess að upplifa skemmtilega staði úti og að fullorðnir séu þeim jákvæðar fyrirmyndir með því að vera sjálfir duglegir að fara út. Munum að láta veðrið ekki slá okkur út af laginu – það er yfirleitt verst í forstofunni og mun betra þegar við erum komin út. Hvetjum börn og unglinga til að fara út að leika með vinum sínum í sumar, förum með þeim í útivist og ýtum undir þátttöku þeirra í skipulögðu frístundastarfi. Við viljum líka minna foreldra á að foreldraábyrgðin fer aldrei í frí og við þurfum að gefa okkur tíma til að eiga samtöl við börnin okkar um virðingu, heilbrigð samskipti, samþykki og mörk. Í því skyni bendum við á verkefnið Verum klár á vefsíðunni www.reykjavik.is/verumklar. Höfundar eru sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, skrifstofustjóri frístundamála hjá Reykjavíkurborg og lektor í útimenntun við Menntavísindasvið HÍ. Heimildir Badura, P., Hamrik, Z., Dierckens, M., Gobiņa, I., Malinowska-Cieślik, M., Furstova, J., Kopcakova, J., & Pickett, W. (2021). After the bell: adolescents’ organized leisure-time activities and well-being in the context of social and socioeconomic inequalities. Journal of Epidemiology and Community Health. Ravn, R. L., & Clement, S. L. (2025). A systematic review of leisure time sports participation and adolescent well-being. World Leisure Journal. Íslenska æskulýðsrannsóknin 2025 Starfsskrá frístundamiðstöðva Reykjavíkurborgar (2015) Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Steinn Jóhannsson Frístund barna Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Skoðun Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Sjá meira
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun