Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Samúel Karl Ólason skrifar 22. janúar 2026 15:56 Franskir hermenn á leið um borð í olíuflutningaskipið Grinch á Miðjarðarhafi í dag. Yfirvöld í Frakklandi Franskir hermenn gerðu í dag áhlaup um borð í olíuflutningaskip sem talið er tilheyra Skuggaflota Rússlands. Skipið var undan ströndum Spánar á Miðjarðarhafinu þegar hermennirnir fóru um borð en það var vegna gruns um að skipið væri ekki skráð löglega og mun sá grunur hafa reynst réttur.
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, segir að skipinu hafi verið siglt frá Rússlandi undir fölskum fána og nú sé verið að sigla því til hafnar í Frakklandi í samræmi við lög. „Við munum ekki sætta okkur við nein brot,“ skrifaði Macron. Hann segir Frakka og bandamenn þeirra staðráðna í að halda uppi alþjóðasamþykktum og tryggja að ekki sé brotið gegn refsiaðgerðum. Skuggaflotinn svokallaði sé notaður til að fjármagna stríðsrekstur Rússa gegn Úkraínu. We will not tolerate any violation.This morning, the French Navy boarded an oil tanker coming from Russia, subject to international sanctions and suspected of flying a false flag. The operation was conducted on the high seas in the Mediterranean,… pic.twitter.com/zhXVdzPx1r— Emmanuel Macron (@EmmanuelMacron) January 22, 2026 Í yfirlýsingu frá stjórnvöldum í Frakklandi segir að skipinu, sem ber nafnið Grinch, hafi verið siglt frá Múrmansk í Rússlandi. Fyrsta skipið sem Evrópuríki stöðvar á hafi Bandaríkjamenn hafa stöðvað og lagt hald á þó nokkur skip sem talin eru tilheyra skuggaflotanum en hingað til hafa ríki Evrópu ekki gert neitt slíkt. Fregnir hafa borist af því að það hafi verið til skoðunar í Evrópu og þá meðal annars í Bretlandi. Sjá einnig: Búa sig undir áhlaup um borð í skuggaskip Þetta er í fyrsta sinn sem stjórnvöld í Evrópu stöðva skip með þessum hætti úti á hafi en yfirvöld á Ítalíu stöðvuðu nýverið skuggaskip sem hafði verið siglt til hafnar þar og bar farm frá Rússlandi. Frakkar tilkynntu áhlaupið á sama tíma og Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, var í pontu í Davos í Sviss að gagnrýna ríki Evrópu fyrir að stöðva ekki skuggaskip Rússa. 📍Mediterranean | High sea intervention led by the French Navy to control the pavilion of an oil tanker ⚓ Rerouting at the demand of the public prosecutor - under escort by the @MarineNationale - to proceed to further inspection 🛡️ Operation conducted in cooperation with our… https://t.co/PG7ZjgoqPk pic.twitter.com/w9u2QYQBEw— The 🇫🇷 Joint Staff - Military operations (@FrenchForces) January 22, 2026 Stærðarinnar floti Hundruð skipa tilheyra skuggaflotanum en þeim hefur fjölgað mjög á undanförnum árum. Flotinn er talinn hafa flutt um 3,7 milljarða tunna af olíu í fyrra eða um sex til sjö prósent af heildarmarkaði síðasta árs. Mörg skipanna eru orðin gömul og eru slys nokkuð tíð. Þá eru mörg skipanna einnig ótryggð. Samkvæmt alþjóðasamþykktum um skipaflutninga eiga skip að vera skráð í tilteknum ríkjum og bera fána þeirra. Skip eru þá bundin reglum og lögum þeirra ríkja þar sem þau eru skráð. Kerfið var þróað til að tryggja að flutningaskip séu tryggð og að komið sé vel fram við áhafnarmeðlimi. Svokölluð skuggaskip notast oft við fána fátækra smáríkja og í mörgum tilfellum í skiptum fyrir greiðslur til þessara ríkja.
Frakkland Rússland Skipaflutningar Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Tengdar fréttir Gæti leitt til aukinnar íhlutunar í Atlantshafi Bandaríski herinn tók yfir stjórn rússnesks olíuflutningaskips í íslenskri efnahagslögsögu fyrr í dag eftir tveggja vikna eftirför og tóku rússneska áhafnarmeðlimi um borð fasta. Rússar hafa fordæmt aðgerðina og krafist þess að borgurum sínum verði skilað heim en því verða Bandaríkjamenn ekki við. 7. janúar 2026 20:04 Mest lesið Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Innlent Fleiri fréttir Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Sjá meira
Gæti leitt til aukinnar íhlutunar í Atlantshafi Bandaríski herinn tók yfir stjórn rússnesks olíuflutningaskips í íslenskri efnahagslögsögu fyrr í dag eftir tveggja vikna eftirför og tóku rússneska áhafnarmeðlimi um borð fasta. Rússar hafa fordæmt aðgerðina og krafist þess að borgurum sínum verði skilað heim en því verða Bandaríkjamenn ekki við. 7. janúar 2026 20:04