Sandra tekin við af Guðbrandi Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 20. janúar 2026 07:33 Sandra tók sæti Guðbrandar á Alþingi í gær eftir að sá síðarnefndi sagði af sér þinmennsku. Sandra Sigurðardóttir tók í gær sæti á Alþingi í stað Guðbrands Einarssonar sem sagði af sér þingmennsku í síðustu viku. Sandra er þannig tekin við sem sjötti þingmaður Suðurkjördæmis og eini þingmaður Viðreisnar í kjördæminu. Forseti Alþingis tilkynnti um breytingarnar við upphaf þingfundar í dag, en líkt og kunnugt er sagði Guðbrandur af sér á föstudaginn í tengslum við tilraun hans til vændiskaupa árið 2012.
Guðbrandur greindi frá afsögn sinni í skriflegri yfirlýsingu til Vísis þegar Vísir hugðist fjalla um málið, en Guðbrandur var kallaður í yfirheyrslu á lögreglustöðina á Hverfisgötu árið 2012 vegna gruns um vændiskaup. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, las á þingfundinum í gær bréf frá Guðbrandi þar sem hann segir af sér þingmennsku, um leið og hún þakkaði honum fyrir sín störf fyrir hönd þingheims. „Ég óska honum fyrir hönd okkar allra velfarnaðar í framtíðinni,“ sagði Þórunn. Sandra hefur áður tekið sæti á þingi sem varamaður á Alþingi, en hún sagðist í samtali við Vísi í síðustu viku vera í áfalli vegna máls Guðbrandar. Hún kvaðst þó klár í slaginn til að taka sæti á Alþingi. Hún tók við sem framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar fyrir tveimur mánuðum en hún hefur jafnframt gegnt embætti forseta bæjarstjórnar í Hveragerði og verið varaþingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi þar til nú. „Þetta er spennandi en skrítið. Ég tek við sem framkvæmdastjóri þingflokks í nóvember, er nýbúin að koma mér fyrir og komast inn í þetta. En það hefur gefið mér enn betri innsýn í starfið og ég held ég sé bara klár í slaginn til að takast á við verkefnin,“ sagði Sandra meðal annars.
Alþingi Viðreisn Mál Guðbrands Einarssonar Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira