Snorri og Donni Andri Þorvarðarson skrifar 18. janúar 2026 22:02 Snorri Másson komst í fréttir nýverið þegar hann móðgaðist yfir því að Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar, skyldi gagnrýna grín tilvonandi sendiherra Bandaríkjanna hér á landi um að Ísland ætti að verða 52. ríki Bandaríkjanna. Þarna fannst Snorra kollegi sinn bregðast of harkalega við og að orð hans hefðu hvorki einkennst af yfirvegun né stillingu. En bíðum nú við; sú var tíðin að aðdáendur Donald Trump hlógu að spádómum um að forsetinn kynni að vilja taka Grænland sama hvað tautar og raular, þetta væri sannarlega gott dæmi um veruleikafirringu andstæðinga hans. Nú hafa þeir vent kvæði sínu í kross og styðja landgræðgi Bandaríkjaforseta á norðurslóðum dyggilega. Það sem þeim fannst hlægilegt í gær er sjálfsagt í dag, allt eftir því hvaða línu leiðtoginn leggur. Yfirtaka Bandaríkjanna á Grænlandi virðist auk þess njóta þónokkurs stuðnings innan Miðflokksins. Þannig hefur Sveinn Óskar Sigurðsson, oddviti flokksins í Mosfellsbæ, lýst yfir eindregnum stuðningi við þær hugmyndir og kippir sér lítið upp við það hvað Grænlendingum kunni að finnast. Ætli Snorri og Sveinn hafi hugleitt hvað gerist næst ef Bandaríkin fá að gleypa Grænland? Hvað kæmi þá í veg fyrir að Ísland yrði næst á matseðlinum? Heimssýn Trump-stjórnarinnar er ekki neitt launungarmál. Ekki aðeins hefur forsetinn krafist þess að fá Grænland „á einn hátt eða annan“, heldur vildi Stephen Miller, háttsettur embættismaður í Hvíta húsinu, ekki útiloka að taka Grænland með herafli og sagði að vald og máttur væru það eina sem skipti máli í heiminum. Með öðrum orðum: Ef stærri ríki vilja undiroka þau minni þá er það sjálfsagt og eðlilegt. Raunin er að við stöndum á krossgötum í lýðveldissögu Íslands; það alþjóðaskipulag sem hefur verið við lýði frá lokum seinni heimsstyrjaldar er í molum og óvíst er hvað tekur við. Ef heimssýn Trump-stjórnarinnar rætist, þar sem alþjóðalög heyra sögunni til og réttindi smáríkja verða fótum troðin, þá mun lýðveldið Ísland vart verða langlíft. En þetta er nákvæmlega sú heimssýn sem undirlægjur Trump-stjórnarinnar hér á landi, í Miðflokknum og víðar, tala fyrir. Það er hjákátlegt að þetta sé fólkið sem hefur hrópað hvað hæst um fullveldi Íslands og notað hvert tækifæri til að skreyta sig með íslenska fánanum, nú talar það fyrir heimsmynd þar sem hann yrði í besta falli rykfallinn safngripur. Því er kominn tími til að almenningur krefji stjórnmálamenn á borð við Snorra Másson og meðreiðarsveina hans svara og spyrji hvar þeir muni standa ef Bandaríkin ógna fullveldi Íslands á sama hátt og þau ógna Grænlendingum nú. Munu þeir standa með ættjörð sinni, eða myndu þeir fylgja leiðtoganum vestanhafs? Hvar liggur hollusta þeirra ef á reynir? Höfundur er framhaldsskólakennari Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar