Hraðbraut við fjöruna í Kópavogi - Kársnesstígur Ómar Stefánsson skrifar 15. janúar 2026 18:32 Í nútímaþjóðfélagi er farið að leggja meiri og meiri vigt á að hafa góð svæði fyrir útivist. En það er ljóst við lestur framlagðra gagna bæjarstjórnar Kópavogs um þennan stíg að hann skal leggja meðfram fjörunni og vera sem beinastur og greiðastur svo hægt sé að komast sem hraðast yfir. Guð forði okkur frá því að á honum séu beygjur. Því einn af ókostum í öðrum möguleikum fyrir stíginn eru að mögulega séu 3-4 beygjur á öðrum leiðum og því dæmdar ómögulegar. Ekki bara fallegt fólk í Spandex Það er ástæða fyrir því þessi stígur er ekki kallaður hjólastígur, hún er sú að ljóst er að í framtíðinni verður mesta umferðin um þessa stíga, vélknúin tæki hvort sem það er rafmagnsknúið eða bensín, ekki bara fallegt fólk á reiðhjólum í spandex göllum. Því miður fyrir þetta skemmtilega útivistarsvæði, verður þetta hraðbraut og ekkert annað. Hraðbraut fyrir öll þau vélknúnu farartæki sem, samkvæmt lögum, mega keyra eftir þessum samgöngustíg. Það er markmið Borgarlínu að auka umferð um þessa samgöngustíga og þá má gera ráð fyrir að þessi vélknúnu hjól og rafhlaupahjól sem mesta aukningin felst í. Það væri meira öryggi í því að leggja sérmerktar brautir við umferðargötum fyrir þessi farartæki. Mín einlæga von Það virðist ekki breyta neinu hvað fólki á Kársnesinu finnst! Ekkert tillit er tekið til þess að mörgum íbúum á Kársnesi þykir vænt um svæðið og vilja njóta útiverunar, nærveruna við fuglalífið og náttúruna. Ekkert tillit er tekið til þess verðmætis sem felst í því. Ekki nefnt einu orði að þetta er skilgreint sem útivistarsvæði. Á fundi bæjarstjórnar mátti heyra á máli formanns skipulagsnefndar að tillagan væri meitluð í stein. Engu að síður er það mín einlæga von að bæjaryfirvöld sjái að það eru aðrir möguleikar í stöðunni og að þessi vinsæla gönguleið verði áfram notuð til náttúru göngu og yndis. En ekki sem hraðbraut. Höfundur er fyrrverandi bæjarfulltrúi í Kópavogi og íbúi á Kársnesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skipulag Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Sjá meira
Í nútímaþjóðfélagi er farið að leggja meiri og meiri vigt á að hafa góð svæði fyrir útivist. En það er ljóst við lestur framlagðra gagna bæjarstjórnar Kópavogs um þennan stíg að hann skal leggja meðfram fjörunni og vera sem beinastur og greiðastur svo hægt sé að komast sem hraðast yfir. Guð forði okkur frá því að á honum séu beygjur. Því einn af ókostum í öðrum möguleikum fyrir stíginn eru að mögulega séu 3-4 beygjur á öðrum leiðum og því dæmdar ómögulegar. Ekki bara fallegt fólk í Spandex Það er ástæða fyrir því þessi stígur er ekki kallaður hjólastígur, hún er sú að ljóst er að í framtíðinni verður mesta umferðin um þessa stíga, vélknúin tæki hvort sem það er rafmagnsknúið eða bensín, ekki bara fallegt fólk á reiðhjólum í spandex göllum. Því miður fyrir þetta skemmtilega útivistarsvæði, verður þetta hraðbraut og ekkert annað. Hraðbraut fyrir öll þau vélknúnu farartæki sem, samkvæmt lögum, mega keyra eftir þessum samgöngustíg. Það er markmið Borgarlínu að auka umferð um þessa samgöngustíga og þá má gera ráð fyrir að þessi vélknúnu hjól og rafhlaupahjól sem mesta aukningin felst í. Það væri meira öryggi í því að leggja sérmerktar brautir við umferðargötum fyrir þessi farartæki. Mín einlæga von Það virðist ekki breyta neinu hvað fólki á Kársnesinu finnst! Ekkert tillit er tekið til þess að mörgum íbúum á Kársnesi þykir vænt um svæðið og vilja njóta útiverunar, nærveruna við fuglalífið og náttúruna. Ekkert tillit er tekið til þess verðmætis sem felst í því. Ekki nefnt einu orði að þetta er skilgreint sem útivistarsvæði. Á fundi bæjarstjórnar mátti heyra á máli formanns skipulagsnefndar að tillagan væri meitluð í stein. Engu að síður er það mín einlæga von að bæjaryfirvöld sjái að það eru aðrir möguleikar í stöðunni og að þessi vinsæla gönguleið verði áfram notuð til náttúru göngu og yndis. En ekki sem hraðbraut. Höfundur er fyrrverandi bæjarfulltrúi í Kópavogi og íbúi á Kársnesi.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar