6 fríar klukkustundir og tæmdir biðlistar á leikskólum í Hveragerði Sandra Sigurðardóttir, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir og Njörður Sigurðsson skrifa 15. janúar 2026 13:00 Í upphafi kjörtímabilsins lagði meirihluti Okkar Hveragerðis og Framsóknar í bæjarstjórn Hveragerðisbæjar upp þá stefnu að bjóða upp á 6 klukkustundir gjaldfrjálst á leikskólum bæjarins. Þessi sýn er nú að raungerast frá 1. febrúar nk. eftir markviss skref í þá átt á kjörtímabilinu og er það mikið gleðiefni. Frá 1. febrúar nk. verða mánaðargjöld fyrir 8 klst. vistun einungis 8.800 kr. og með því hafa leikskólagjöld lækkað um 70% á kjörtímabilinu. Samhliða þessu hefur öllum börnum í Hveragerði verið tryggt leikskólapláss frá 12 mánaða aldri með því að biðlistar hafa verið tæmdir með opnun nýrra deilda á leikskólanum Óskalandi árið 2025. Okkar Hveragerði leggur mikla áherslu á málefni fjölskyldna og öflugir leikskólar sem geta þjónustað ört stækkandi íbúahóp á faglegan hátt er gott dæmi um það sem við viljum standa fyrir. -Fríar stundir óháð vistunartíma barns Rétt er að undirstrika að Hveragerðisleiðin í gjaldfrjálsum stundum á leikskóla gerir ekki ráð fyrir að aðrar og fleiri leikskólastundir, eða önnur þjónusta, hækki sem þessu nemur eins og virðist vera raunin í öðrum sveitarfélögum sem eru að fara svipaða leið. Kjósi foreldrar að nýta 6 eða færri stundir er það gjaldfrjálst og kjósi foreldrar að nýta fleiri en 6 stundir kostar sjöunda stundin 4.400 kr. og sú áttunda 4.400 kr. til viðbótar, eða samtals 8.800 kr. Aðgerðin hefur það einfaldlega í för með sér að leikskólagjöld lækka og hefur ekki önnur áhrif á starfsemi leikskólanna, vistunartíma í boði eða aðra gjaldaliði eins og fyrir hádegisverð og hressingu. Hveragerðisleiðin felur þannig í sér að öll börn fái 6 klukkustundir gjaldfrjálsar óháð því hve langur vistunartími barns er. -Fjölgun gjaldfrjálsra stunda skrefaðar áfram á kjörtímabilinu Með ákvörðun bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar á fundi sínum þann 8. janúar síðastliðinn var nánar tiltekið ákveðið að 5 stundir yrðu gjaldfrjálsar frá 1. janúar 2026 og 6 stundir yrðu gjaldfrjálsar frá 1. febrúar 2026. Fram að þessu hefur ein gjaldfrjáls stund tekið gildi á leikskólum bæjarins árlega yfir kjörtímabilið, eða með eftirfarandi hætti: -1 gjaldfrjáls stund haustið 2022 -2 gjaldfrjálsar stundir haustið 2023 -3 gjaldfrjálsar stundir haustið 2024 -4 gjaldfrjálsar stundir haustið 2025 -5 gjaldfrjálsar stundir 1. janúar 2026 -6 gjaldfrjálsar stundir 1. febrúar 2026 Þessi ákvörðun er mikið fagnaðarefni og öruggt að með henni, ásamt mörgum öðrum aðgerðum og ákvörðunum á kjörtímabilinu, færum við gott bæjarfélag í allra fremstu röð. -Framúrskarandi þjónusta og lífsgæði í Hveragerði Fulltrúar Okkar Hveragerðis í bæjarstjórn og nefndum Hveragerðisbæjar hafa unnið statt og stöðugt að því að tryggja íbúum framúrskarandi þjónustu og lífsgæði í bæjarfélaginu. Rík áhersla hefur verið á fjölskylduvænt samfélag sem mótar að mörgu leyti meginstefið í stefnumálefnum Okkar Hveragerðis og málefnasamningi núverandi meirihluta bæjarstjórnar. Unnið hefur verið markvisst að því að gera þessar áherslur að veruleika á kjörtímabilinu með margvíslegum stuðningi við fjölskyldur og börn. Um þetta hefur verið einhugur í meirihlutasamstarfi Okkar Hveragerðis og Framsóknar. Okkar Hveragerði mun á komandi árum halda áfram að leita leiða til að styðja enn betur við barnafjölskyldur í Hveragerði með gæðin í forgrunni. Hveragerði - bær í blóma! Höfundar: Sandra Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi Okkar Hveragerðis og forseti bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, b æjarfulltrúi Okkar Hveragerðis og v araformaður bæjarráðs Hveragerðisbæjar Njörður Sigurðsson, bæjarfulltrúi Okkar Hveragerðis Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Njörður Sigurðsson Hveragerði Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sandra Sigurðardóttir Mest lesið Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald Skoðun Er bara best að þegja? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson skrifar Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Hafnarfirði Örn Geirsson skrifar Skoðun „Hvaða plön ertu með í sumar?“ Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar
Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar