Mjódd framtíðar - hjarta Breiðholts Sara Björg Sigurðardóttir skrifar 13. janúar 2026 10:17 Mjóddin er miðja borgarinnar og hjarta Breiðholts. Tækifærið er núna til að endurhugsa, endurskapa og endurgera Mjóddina fyrir framtíðarborgina Reykjavík. Það er mikilvægt að ráðast í hönnunarsamkeppni um svæðið, fá inn nýja sýn, nýja þekkingu úr alþjóðlegum borgarþróunarverkefnum og þar með nýjar hugmyndir, nýja hugsun. Úr þessu getur sprottið ný og betri Mjódd. Um leið stefnum við að fyrsta flokks borgarumhverfi sem laðar að sér fjölbreytt mannlíf, þjónustu og atvinnulíf. Breytum bílastæðum í byggingar Framtíðar-Mjódd getur borið þétta, blómlega og blandaða byggð með fjölbreyttum íbúðum, verslun og þjónustu á þeim stöðum þar sem núna eru bílastæði, bílastæði og fleiri bílastæði. Í gegnum Mjóddina renna fimm til sex leiðir Borgarlínunnar bráðum í gegn á leið upp í Breiðholt, niður í Vogabyggð eða vestur í bæ. Bætt aðgengi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Uppbygging blandaðrar byggðar í Norður-Mjódd felur í sér fleiri íbúðir og aukna atvinnu- og þjónustustarfsemi, sem aftur bætir jafnvægið milli íbúa og atvinnutækifæra í Breiðholti, sem aftur eflir hverfið, því að það felst mikil lífsgæði í þ-ví að búa og vinna innan sama hverfis. Blómatorg, inngarðar og bílastæðahús Setjum bílana í bílastæðahús. Sköpum inngarða með skjóli, leikvöllum og rennandi vatni til leika með. Hönnum umhverfi sem laðar að fjölbreytt mannlíf, þar sem fleira fólk vill hittast, sitja úti þegar veður er gott og drekka kaffi ‒ og fleira. Fleira fólk skapar sterkari rekstrargrundvöll fyrir fjölbreytta þjónustu og atvinnulíf. Fallegt, snyrtilegt og mannvænt borgarumhverfi laðar að sér enn frekara mannlíf og ferðafólk. Við Breiðhyltingar höfum kallað lengi eftir umbótum á svæðinu. Þess vegna er mikilvægt fyrir Samfylkinguna að eiga öflugan liðsfélaga úr hverfinu, borgarfulltrúa sem getur haldið meiri Mjódd og betri Mjódd á lofti. Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, býr í Breiðholti, sækir þjónustu í Mjódd og óskar eftir 3. sæti í flokksvali jafnaðarmanna 24. janúar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sara Björg Sigurðardóttir Mjódd Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Sjá meira
Mjóddin er miðja borgarinnar og hjarta Breiðholts. Tækifærið er núna til að endurhugsa, endurskapa og endurgera Mjóddina fyrir framtíðarborgina Reykjavík. Það er mikilvægt að ráðast í hönnunarsamkeppni um svæðið, fá inn nýja sýn, nýja þekkingu úr alþjóðlegum borgarþróunarverkefnum og þar með nýjar hugmyndir, nýja hugsun. Úr þessu getur sprottið ný og betri Mjódd. Um leið stefnum við að fyrsta flokks borgarumhverfi sem laðar að sér fjölbreytt mannlíf, þjónustu og atvinnulíf. Breytum bílastæðum í byggingar Framtíðar-Mjódd getur borið þétta, blómlega og blandaða byggð með fjölbreyttum íbúðum, verslun og þjónustu á þeim stöðum þar sem núna eru bílastæði, bílastæði og fleiri bílastæði. Í gegnum Mjóddina renna fimm til sex leiðir Borgarlínunnar bráðum í gegn á leið upp í Breiðholt, niður í Vogabyggð eða vestur í bæ. Bætt aðgengi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Uppbygging blandaðrar byggðar í Norður-Mjódd felur í sér fleiri íbúðir og aukna atvinnu- og þjónustustarfsemi, sem aftur bætir jafnvægið milli íbúa og atvinnutækifæra í Breiðholti, sem aftur eflir hverfið, því að það felst mikil lífsgæði í þ-ví að búa og vinna innan sama hverfis. Blómatorg, inngarðar og bílastæðahús Setjum bílana í bílastæðahús. Sköpum inngarða með skjóli, leikvöllum og rennandi vatni til leika með. Hönnum umhverfi sem laðar að fjölbreytt mannlíf, þar sem fleira fólk vill hittast, sitja úti þegar veður er gott og drekka kaffi ‒ og fleira. Fleira fólk skapar sterkari rekstrargrundvöll fyrir fjölbreytta þjónustu og atvinnulíf. Fallegt, snyrtilegt og mannvænt borgarumhverfi laðar að sér enn frekara mannlíf og ferðafólk. Við Breiðhyltingar höfum kallað lengi eftir umbótum á svæðinu. Þess vegna er mikilvægt fyrir Samfylkinguna að eiga öflugan liðsfélaga úr hverfinu, borgarfulltrúa sem getur haldið meiri Mjódd og betri Mjódd á lofti. Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, býr í Breiðholti, sækir þjónustu í Mjódd og óskar eftir 3. sæti í flokksvali jafnaðarmanna 24. janúar.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar