Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 23. desember 2025 15:45 Medellín í Kólumbíu. Getty Íslenskur karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í Medellín í Kólumbíu, grunaður um kynferðisbrot gegn 16 ára gamalli stúlku. Meint brot átti sér stað aðfaranótt 6. desember síðastliðinn.
Greint er frá málinu á fjölmörgum kólumbískum vefmiðlum, þar á meðal Semana, Tele Medellín, El Colombiano og El Tiempo, sem allir byggja á upplýsingum frá saksóknaraembættinu (Fiscalía General de la Nación.) Íslendingurinn er nafngreindur á vefmiðlum ytra og kemur þar fram að hann heiti Högni Kjartan Þorkelsson og sé ferðamaður frá Íslandi. Fjölmargir kólumbískir vefmiðlar hafa birt mynd af Högna Kjartani.Saksóknaraembættið í Medellín Samkvæmt yfirvöldum í Kólumbíu hafði Högni Kjartan samband við stúlkuna í San Diego-hverfinu í miðborg Medellín og bauð henni peninga í skiptum fyrir kynmök, áður en hann fór með hana í íbúð í Simón Bolívar-hverfinu í vesturhluta borgarinnar, þar sem kynferðisofbeldið á að hafa átt sér stað. Hann var handtekinn skömmu eftir atvikið, eftir að stúlkan slapp úr íbúðinni og leitaði til lögreglu. Hörmulegar aðstæður í fangelsinu Samkvæmt skýrslum saksóknaraembættisins í Kólumbíu (Fiscalía General de la Nación) var stúlkan beitt kynferðislegu ofbeldi, og í sumum fréttum er einnig minnst á líkamlegt ofbeldi, svo sem barsmíðar. Lögð var fram ákæra á hendur Högna Kjartani í gærdag, fyrir alvarlegt kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi. Fram kemur að Högni Kjartan neiti sök í málinu. Dómarinn féllst þó á kröfu saksóknara og úrskurðaði hann í gæsluvarðhald í þágu rannsóknarhagsmuna. Í grein Semana kemur fram að fangelsið sem Högni Kjartan er vistaður í sé alræmt fyrir slæmar aðstæður, það sé yfirfullt og þrengslin slík að fangar neyðist til að sofa á gólfinu, ofan á pappakössum, eða þá standandi. Engar upplýsingar hafa komið fram um tengsl Högna Kjartans við stúlkuna fyrir atvikið, en í sumum fréttum er minnst á að hann hafi haft samband við hana í gegnum samfélagsmiðla. Þá hafa engar frekari upplýsingar komið fram um bakgrunn Högna Kjartans eða hvort hann hafi áður komið við sögu lögreglu.
Íslendingar erlendis Kólumbía Kynferðisofbeldi Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira