Appelsínugular og gular viðvaranir á aðfangadag Atli Ísleifsson skrifar 22. desember 2025 13:51 Svona verður staðan á hádegi á aðfangadag. Veðurstofan hefur gefið út gular og appelsínugular viðvaranir fyrir stærstan hluta landsins á næstu dögum. Appelsínugular viðvaranir verða í gildi á Vestfjörðum og á norðanverðu landinu vegna storms eða roks á aðfangadag.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Gular viðvaranir taka fyrst gildi á morgun, Þorláksmessu, á norðvestan-, vestan- og sunnanverðu landinu vegna talsverðrar eða mikillar rigningar. Norðantil taka gular viðvaranir sömuleiðis gildi vegna sunnan hvassviðris eða storms. Á aðfangadag eru svo gular viðvaranir víða í gildi, meðal annars á höfuðborgarsvæðinu og austantil, vegna hvassviðris, en víða annars staðar einnig vegna rigningar. Á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Miðhálendi taka appelsínugular viðvaranir gildi að morgni aðfangadags og gilda þær til klukkan þrjú síðdegis sama dag, en til miðnættis á Miðhálendi. Spáð er sunnan 18 til 25 metrum á sekúndu og rigningu en vindhviður munu geta farið yfir 40 metra á sekúndu við fjöll. „Hættulegt að ferðast vegna vinds, sérílagi fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir eru líklegir til að fjúka og staðbundið foktjón mögulegt,“ segir á vef Veðurstofunnar. Aðfararnótt jóladags eru svo gular viðvaranir í gildi á vestan og norðanverðu landinu til morguns.
Veður Jól Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Stinningskaldi og súld suðvestanlands Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Bjartviðri í flestum landshlutum Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Rigning og súld á öllu landinu Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Bjartviðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Hiti á bilinu sjö til tuttugu stig Vara við snörpum vindhviðum Vara við hvössum vindstrengjum Allt að átján stigum og léttskýjað vestanlands Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Lægð suður af landinu og hæð yfir Grænlandi Sjá meira