Google birtir lista yfir vinsælustu leitarorðin Lovísa Arnardóttir skrifar 5. desember 2025 11:52 Fólk leitaði að ýmsu á Google en mörg eigum við það sameiginlegt að hafa leitað upplýsinga um þetta fólk eða persónur á árinu. Vísir/EPA Google birti í dag vinsælustu leitarorðin á árinu 2025. Bæði birti fyrirtækið vinsælustu leitarorðin á alheimsvísu en einnig vinsælustu leitarorð einstakra landa. Ísland er ekki meðal þeirra landa. Flestir leituðu upplýsinga um Gemini, sem er gervigreindartæki Google. Í öðru sæti var Indland á móti Englandi í krikket og Charlie Kirk í því þriðja.
Þegar kemur að fréttum er Charlie Kirk einnig efstur á blaði og þegar hann var myrtur í september. Þá leitaði fólk mikið frétta um Íran. Í þriðja sæti eru lokanir opinberra stofnana í Bandaríkjunum en þeim var lokað í einn og hálfan mánuð í október og nóvember. Þá er í fjórða sæti kjör nýs páfa og í fimmta sæti skógareldar í Los Angeles. Listi Google er birtur hér. Mest leitaða fólkið David Anthony Burke, eða D4dv er sá sem flestir gúgluðu á árinu en hann er grunaður um að hafa í máli hinnar fimmtán ára Celeste Rivas sem fannst látin í framskotti Teslu-bifreiðar hans. Rivas hafði flúið að heiman rúmu ári fyrr og mögulega átt í sambandi við tónlistarmanninn áður en lík hennar fannst. Á eftir Burke er tónlistarmaðurinn Kendirck Lamar sem sá um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar í ár, svo Jimmy Kimmel, sem missti vinnuna fyrr á árinu og svo Tyler Robinson, sem skaut Charlie Kirk, og í fimmta sæti nýr páfi, Leó. Í áttunda sæti, og jafnframt fyrsta konan á lista, er Bianca Censori, eiginkona Kanye West sem mikið var fjallað um fyrr á árinu vegna klæðaburðar og sambands hennar við West. Í tíunda sæti er svo aðgerðasinninn Greta Thunberg. Á lista Google yfir atriði sem fólk leitaði að er einnig hægt að finna lögin sem flestir hummuðu eða söngluðu til leitarvélarinnar. Efst á lista er lagið Golden úr K-Pop Demon Hunters á Netflix. Efst fimm lögin eru þessi: Golden - HUNTR/X Ordinary - Alex Warren PASSO BEM SOLTO - ATLXS Anxiety - Doechii Pretty Little Baby - Connie Francis Þá er einnig hægt að finna hvaða sjónvarpsþætti, bækur, hlaðvörp og kvikmyndir flestir leituðu upplýsinga um. Vinsælustu sjónvarpsþættirnir voru Monster: The Ed Gein Story og Anora er kvikmyndin sem flestir leituðu upplýsinga um. Myndin vann verðlaun sem besta myndin á Óskarsverðlaununum í ár. Flestir leituðu svo upplýsinga um bókina Regretting You eftir Colleen Hoover en samnefnd kvikmynd kom út í ár. Flestir vildu vita eitthvað um hlaðvarpið The Charlie Kirk Show. Þau andlát sem vöktu mesta athygli á Google í ár var fyrst andlát Charlie Kirk, svo tónlistarmannsins Ozzy Osbournse, í þriðja sæti glímukappinn Hulk Hogan, í fjórða leikkonan Michelle Trachtenberg og í því fimmta leikkonan Diane Keaton.
Google Tækni Morðið á Charlie Kirk Bandaríkin Íran Óskarsverðlaunin Erlend sakamál Hollywood Bíó og sjónvarp Bókmenntir Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira