Víkingar vilja finna nýtt nafn á Safamýrarsvæðið og biðja um hjálp Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2025 13:30 Víkingar eru Íslandsmeistarar karla í fótbolta og tryggðu sér titilinn í Víkinni. Þeir ráða einnig fyrir gömlu Safmýri Framara. Vísir/Diego Víkingar vilja eyða öllum tengingum við Fram í Safamýrinni með því að finna nýtt Víkingsnafn á svæðið. Víkingar fengu beiðni um að senda inn hugmyndir á samfélagsmiðlum félagsins.
Víkingar tóku yfir Framsvæðið í Safamýri sumarið 2022 þegar Framarar fluttu endanlega upp í Úlfarsárdal sunnan Úlfarsfells. Svæðið hefur alltaf verið þekkt sem Safmýri og mjög tengt Fram. Víkingar tóku mannvirkin í Safamýri í gegn innan sem utan og í framhaldinu voru settar upp nýjar merkingar þar sem allt var málað í Víkingslitunum. Nú ætla Víkingar að stíga lokaskrefið og nefna svæðið upp á nýtt. Á fundi aðalstjórnar Knattspyrnufélagsins Víkings þann 18. nóvember var samþykkt að skipa nafnanefnd sem falið var það hlutverk að kalla eftir og fara yfir hugmyndir/tillögur um nýtt nafn á íþróttasvæði Víkings í Safamýri. Nafnanefndin mun strax opna fyrir tillögur frá Víkingssamfélaginu um nýtt nafn fyrir íþróttasvæði Víkings í Safamýri og óskar eftir því að allar tillögur liggi fyrir eigi síðar en 14. desember næstkomandi. Nafnanefnd mun í kjölfarið gera tillögu/tillögur um nýtt nafn til aðalstjórnar félagsins. Í nafnanefndinni sitja þau Björn Bjartmarz, Nanna Guðmundsdóttir, Ásdís Jóna Sigurjónsdóttir, Ágúst Ingi Jónsson og Valgerður Arnardóttir. Öllum tillögum skal skila inn undir nafni og skal með fylgja með stuttur rökstuðningur fyrir tillögunni. View this post on Instagram A post shared by Knattspyrnufélagið Víkingur (@vikingurfc)
Besta deild karla Besta deild kvenna Víkingur Reykjavík Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn „Takk fyrir ástina“ Fótbolti Fleiri fréttir Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Gerði sínu gamla liði mikinn grikk Leik lokið: ÍBV – Keflavík 6-1 | Flugeldasýning í fyrsta sigri Eyjamanna Grótta í toppbaráttu, Ægir vann aftur og Vestri fagnaði í Breiðholti Öll mörkin: Sjáðu þrennu varamannsins og sturlunina á Akureyri Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings