Segir borgina refsa foreldrum til að mæta rekstrarvanda Árni Sæberg skrifar 22. október 2025 15:48 Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, undirritar umsögnina fyrir hönd félagsins. Vísir/Ívar Fannar Félag atvinnurekenda varar eindregið við því að tillögum stýrihóps Reykjavíkurborgar í leikskólamálum verði hrint í framkvæmd. Fjárhagslegir hvatar til þess að stytta dvalartíma barna á leikskóla séu í raun refsing.
Líkt og ítarlega hefur verið fjallað um undanfarið samþykkti borgarráð í byrjun mánaðar að senda stórtækar fyrirhugaðar breytingar á gjaldskrá leikskóla í Reykjavík í samráð. Samkvæmt breyttri gjaldskrá er gert ráð fyrir 25 prósenta afslætti á gjaldið sé barn sótt klukkan 14 eða fyrr á föstudögum, maímánuður verði ókeypis séu skráningardagar ekki nýttir og sérstakt gjald sett á hvern skráningardag, 4.000 krónur. Skráningardagar eru um 10 til 11 á ári og eru dagar í dymbilviku, milli jóla og nýárs og í vetrarfríi. Gert er ráð fyrir því í tillögunni að breytingarnar taki gildi um áramótin. Breytingunum er ætlað að tryggja meiri fyrirsjáanleika í þjónustu og fækka fáliðun en í greinargerð með tillögunni kemur til dæmis fram að 49 af 67 leikskólum Reykjavíkur þurftu að grípa til fáliðunar árið 2024, einhverjir þeirra skipulagðrar reglulegrar fáliðunar á til dæmis föstudögum. Á upplýsingasíðu um breytingarnar kemur einnig fram að misræmi sé í leikskólakerfinu því starfsmenn eigi einungis að vinna 36 klukkustundir en dvalartími barna sé að meðaltali rúmar 40 klukkustundir á viku. Þessum breytingum er ætlað að svara þessu misræmi og rétta það af. „Hvatar“ séu í raun refsing „Í tillögunum er lagt til að dvalartími barna á leikskóla verði styttur. Með fjárhagslegum „hvötum“, sem eru í raun refsingar, á að fá foreldra til að stytta vistunartíma barna sinna í því skyni að leysa úr rekstrarlegum vanda leikskóla Reykjavíkurborgar og mæta styttingu vinnutíma starfsmanna ríkis og sveitarfélaga, sem er langt umfram þá styttingu sem samist hefur um á almennum vinnumarkaði,“ segir í umsögn Félags atvinnurekenda í samráðsgátt Reykjavíkurborgar. Umsögnin er númer 53 af 55 umsögnum sem borist hafa á þeim tuttugu dögum sem breytingarnar hafa verið til samráðs. Heilsdagsvistun jafnréttismál Það hafi verið stórt jafnréttismál og mikið hagsmunamál atvinnulífsins í borginni þegar Reykjavíkurborg gat boðið öllum foreldrum barna á leikskólaaldri upp á heilsdagsvistun. Mæður hafi getað tekið fullan þátt á vinnumarkaði og fyrirtækin notið starfskrafta mæðra til jafns við feður. „Að lækka það þjónustustig, eða stórhækka verðskrána fyrir fulla vistun, vinnur gegn markmiðum jafnréttis og hagsmunum atvinnulífsins. Enn hefur ekki tekist að jafna launamun kynjanna að fullu. Hættan er því sú að það verði frekar mæðurnar, sem beri hallann af styttri vistunartíma og aftur verði kynt undir vítahring ójafnrar verkaskiptingar og launamunar kynjanna.“ Umferðin bæti ekki úr skák Þá ítrekar FA að vinnutími á almennum vinnumarkaði sé almennt lengri en hjá starfsmönnum sveitarfélaga. Foreldrar þurfi svigrúm til að komast til vinnu eftir að hafa komið börnum sínum á leikskóla og til að sækja þau að vistun lokinni. „Sá tími, sem fer í ferðalög milli heimilis, vinnustaðar og leikskóla lengist sífellt vegna aukinna umferðartafa í borginni, sem núverandi stjórnendur hennar gera lítið til að draga úr. Nýleg dæmi um að hundruðum milljóna króna sé varið til framkvæmda sem hægja á umferð eru umhugsunarefni.“ Auki streitu Loks segir í umsögninni að það að stytta vistunartíma barna með því að refsa foreldrum þeirra fjárhagslega fyrir að þiggja fullan vistunartíma eða halda því að fólki að börnin hafi í raun ekki gott af því að vera á leikskólanum á meðan foreldrar þeirra eru í vinnunni muni auka á streitu foreldra, skapa álag á vinnustöðum og þrýsta á hækkun launakostnaðar hjá fyrirtækjum. Á sama tíma og Reykjavíkurborg vilji þrengja að kostum foreldra í þessu efni leggist núverandi borgarstjórnarmeirihluti gegn því að fyrirtæki fái að stofna eigin leikskóla til að létta áhyggjum og byrðum af eigin starfsfólki. Það þyki FA veruleg mótsögn. „FA leggst því eindregið gegn þeim breytingum, sem stýrihópurinn leggur til og óskar þess að annarra leiða verði leitað til að mæta fjárhagsvanda leikskóla borgarinnar. Félagið er ævinlega reiðubúið til skrafs og ráðagerða með stjórnendum borgarinnar um forgangsröðun í fjármálum og aðgerðir til að bæta stöðu atvinnulífs í borginni.“
Leikskólar Skóla- og menntamál Reykjavík Borgarstjórn Atvinnurekendur Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Fleiri fréttir Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Sjá meira