Viðskipti innlent

Dómur kveðinn upp í Vaxtamálinu á morgun

Árni Sæberg skrifar
Sjö dómarar Hæstaréttar munu dæma í málin.
Sjö dómarar Hæstaréttar munu dæma í málin. Vísir

Dómur í máli lántakenda á hendur Íslandsbanka vegna meintra ólögmætra skilmála í samningum um óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum verður kveðinn upp klukkan 13:30 á morgun. Málið varðar tugmilljarða hagsmuni neytenda annars vegar og viðskiptabankanna þriggja hins vegar.

Þetta segir í tilkynningu á vef Hæstaréttar. Á morgun verða fjórar vikur liðnar frá því að málið var endurflutt en það hafði áður verið flutt í vor.Málið var tekið fyrir á ný og flutt aftur í því skyni að fá afstöðu aðila til nánar tilgreindra atriða. 

Sjö dómarar og engin viðkoma í Landsrétti

Málið er dæmt af öllum sjö dómurum réttarins, sem er aðeins gert í allra veigamestu dómsmálunum. Þá var málið tekið fyrir í Hæstarétti án viðkomu í Landsrétti, eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur hafi sýknað Íslandsbanka.

Í febrúar síðastliðnum voru stóru viðskiptabankarnir þrír sýknaðir í Landsrétti í þremur sambærilegum málum. Neytendastofa lagði þó Íslandsbanka í einu máli.

Auglýstu eftir fólki til að höfða mál

Málin fjögur snerust um skilmála bankanna vegna lána með breytilegum vöxtum. Eitt þeirra var höfðað af Neytendastofu en þrjú af einstaklingum. Einstaklingarnir nutu liðsinnis Neytendasamtakanna í málinu en þau höfðu auglýst eftir fólki til að taka þátt í málinu.

Samtökin telja að stærstur hluti lána með breytilegum vöxtum sé með ólöglegum skilmálum og að oftaka bankanna nemi um tveimur prósentustigum. Því séu það um 30 milljarðar króna á ári sem bankarnir taki of mikið til sín.

Í maí síðasta árs gaf EFTA-dómstólinn út ráðgefandi álit að beiðni Héraðsdóms Reykjaness og Landsréttar. Í því sagði að orðalag í skilmálum lána þyrfti að vera nægilega gagnsætt jafnvel þó það þætti málfræðilega skýrt og skiljanlegt. Skilmálarnir þyrftu að vera skiljanlegir þannig að almennur neytandi sem teljist sæmilega vel upplýstur og athugull gæti skilið aðferðina sem beitt væri við ákvörðun um útlánavexti.

EFTA-dómstóllinn áréttaði þó að það væri dómstóla á Íslandi að kveða á um hvort samningar með umræddum skilmálum haldi gildi sínu.

Í máli Neytendastofu á hendur Íslandsbanka var úrskurður áfrýjunarnefndar neytendamála, um að skilmálar bankans hefðu ekki verið nægilega skýrir, staðfestur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×