Vísað burtu af hóteli og svo handtekinn í sameign Hólmfríður Gísladóttir skrifar 29. september 2025 06:24 Lögreglu barst meðal annars tilkynning um slys á rafhlaupahjóli, þar sem ökurmaðurinn reyndist illa farinn í andliti og mögulega beinbrotinn. Vísir/Vilhelm Þrír gista fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu nú í morgunsárið en 58 mál voru skráð í kerfi lögreglunnar á vaktinni í nótt. Frá þessu er greint í yfirliti lögreglu.
Lögregla hafði meðal annars afskipti af einstakling sem var til ama á hóteli í miðborginni. Honum var vísað á brott og gekk hann sína leið. Nokkrum klukkustundum síðar var hann hins vegar handtekinn ásamt öðrum, þar sem þeir höfðu brotið sér leið inn í sameign í póstnúmerinu 102. Einn sparkaði í lögreglumann. Lögregla var einnig kölluð til vegna einstaklings sem var að sparka og lemja í bifreið sem hafði verið lagt í stæði í miðborginni. Ökumaður bifreiðarinnar var enn inni í bílnum og var sá sem óskaði eftir aðstoð. Grunaði, sem var undir áhrifum áfengis, virðist hafa brotið annan hliðarspegil bifreiðarinnar og var handtekinn. Tilkynnt var um þjófnað á hóteli í miðborginni og um slys, þar sem ökumaður rafhlaupahjóls datt. Var viðkomandi með töluverða áverka í andliti og þá lá grunur á um að hann væri beinbrotinn. Fór hann á bráðamóttöku. Lögreglu bárust einnig tvær tilkynningar um hávaða, annars vegar í heimahúsi og hins vegar fyrir utan skóla. Fólkið í heimahúsinu lofuðu að lækka en við skólann reyndust þar nemendur á ferð, sem voru að saga spýtu fyrir sýningu á vegum skólans. Nokkrir voru stöðvaðir í umferðinni og þá sinnti lögregla umferðarstjórn á Hafnafjarðarvegi/Vífilstaðarvegi, þar sem umferðarljós voru óvirk frá 20 til 21.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fleiri fréttir Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Sjá meira