Vill mikilvæga herstöð aftur og hótar Afgönum öllu illu Jón Ísak Ragnarsson skrifar 20. september 2025 23:48 Trump segir mikilvægt að Bandaríkjamenn fái aftur að stjórna Bagram flugskýlinu. AP Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að það muni hafa slæmar afleiðingar fyrir Afgana gefi þeir ekki eftir yfirráð yfir Bagram herstöðinni svokölluðu, sem áður var undir stjórn Bandaríkjamanna.
Bandaríkjamenn sækjast nú eftir því að endurheimta stjórn yfir herstöðinni, sem var mikilvæg hernaðarmiðstöð Atlantshafsbandalagsins í tvo áratugi, en hún var afhent afgönskum yfirvöldum skömmu áður en Talíbanar tóku yfir stjórn landsins. Trump hefur látið hafa eftir sér að mögulegt væri að endurheimta stjórn yfir svæðinu, en hann segir að Afganir þurfi á aðstoð Bandaríkjamanna að halda í öðrum málum. Þá sagði Trump á blaðamannafundi á fimmtudaginn að Bandaríkjamenn hefðu gefið Afgönum herstöðina og ekkert fengið í staðinn. Færsla Trumps á Truth Social. Í fyrri embættistíð Trumps á forsetastóli 2020 var unnið að samkomulagi við Afganistan sem fól meðal annars í sér að allir bandarískir hermenn skyldu yfirgefa landið, og var samningurinn að lokum undirritaður árið eftir þegar Joe Biden var við völd. Trump sagði í mars á þessu ári að hann hefði aldrei viljað missa Bagram, en hann segir mikilvægt að halda í stöðina vegna Kínverja. Kínverjar séu að framleiða kjarnorkuvopn í aðeins klukkutíma fjarlægð frá herstöðinni. Samkvæmt umfjöllun BBC liggur er ekkert staðfest í þeim efnum. Talíbanar hafa hafnað hugmyndum Trumps en í færslu á samfélagsmiðlum í dag sagði Trump að „slæmir hlutir“ muni gerast ef Talibanar skila ekki herstöðinni til Bandaríkjanna.
Afganistan Donald Trump Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira