Gular viðvaranir og svalri norðanátt beint til landsins Atli Ísleifsson skrifar 19. september 2025 07:12 Hiti á landinu verður á bilinu eitt til níu stig að deginum, mildast syðst. Vísir/Vilhelm Öflug hæð yfir Grænlandi og lægðasvæði austur af landinu beina áfram svalri norðlægri átt í landsins. Víða má búast við kalda eða strekkingi í dag en allhvassir eða hvassir vindstrengir verða undir Vatnajökli og á sunnanverðum Austfjörðum.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði skúrir eða él á Norður- og Austurlandi, en bjart að mestu í öðrum landshlutum. Gular viðvaranir eru í gildi á Austfjörðum og Suðausturlandi fram til klukkan 15 og 16 í dag þar sem reiknað er með að vindhviður gætu farið yfir 30 metra á sekúndu. Þannig geta skapast varhugaverðar fyrir vegfarendur með aftanívagna eða á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Hiti verður á bilinu eitt til níu stig að deginum, mildast syðst, en víða líkur á næturfrosti. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðvestan 10-18 m/s austanlands og lítilsháttar skúrir eða él fram eftir degi, en mun hægari og bjart að mestu í öðrum landshlutum. Hiti 2 til 9 stig yfir daginn. Vestan 3-10 um kvöldið og þykknar upp vestantil. Á sunnudag: Vestan og suðvestan 5-13 og rigning, en væta með köflum um landið sunnanvert. Hiti 4 til 10 stig, mildast við vesturströndina. Á mánudag (haustjafndægur): Suðlæg eða breytileg átt 3-10 og lítilsháttar væta, en rofar til á Norður- og Austurlandi. Hiti breytist lítið. Vaxandi suðaustanátt vestantil um kvöldið. Á þriðjudag: Suðaustlæg átt og súld eða rigning með köflum, en þurrt um landið norðaustanvert. Hiti 8 til 13 stig. Á miðvikudag: Suðlæg átt og skúrir, en léttir til á Norður- og Austurlandi. Hiti breytist lítið. Á fimmtudag: Suðaustanátt og rigning, en úrkomulítið norðaustantil.
Veður Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Lítil bjartsýni á úrslitastundu Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Trump boðar gjaldtöku á Hormuz-sundi Erlent Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Mest 27 gráður en Reykvíkingar þurfa að bíða Væta vestantil en hlýjast fyrir austan Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Gular veðurviðvaranir í kortunum Bjart og allt að tuttugu og fimm stig á Austurlandi Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Dregur úr vætu síðdegis og hiti að átján stigum Hitatölurnar hækka fyrir austan Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Víða allhvass vindur og úrkomubakki nálgast Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Allt að sautján stiga hiti Bjart og hlýtt sunnan heiða Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Hlýjast fyrir austan Kaldi eða strekkingur á suðvestan- og vestanverðu landinu Væta með stífri norðaustanátt Stíf norðanátt með rigningu víða um land Allvíða skúrir og lægð nálgast Víða rigning en hiti að átján stigum Úrkoma í flestum landshlutum í dag Úrkoma víða og hiti að sextán stigum Víða skúraleiðingar og hiti að fimmtán stigum Sextán stig en líkur á síðdegisskúrum Bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum Allhvasst suðaustantil og sums staðar rigning Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Hiti að átján stigum norðan og vestantil Austlæg átt og víða líkur á vætu 250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Sjá meira