Mennskan er fórnarlamb Menningarstríðsins! - Tilvist fólks er aldrei hugmyndafræði eða skoðun! Arna Magnea Danks skrifar 17. september 2025 07:32 Trans fólk er 0,3% hér á landi samkvæmt heimildum heilbrigðisráðherra og fyrrum landlæknis, Ölmu Möller https://www.visir.is/g/20252775161d/mikillar-vanthekkingar-gaeti-a-thjonustu-vid-trans-born og samt er nánast daglega "skoðana" pistlar og fréttir sem fjalla um tilvist og tilverurétt okkar sem erum trans! Hvernig væri að ræða frekar um lausnir á raunverulegum vandamálum sem steðja að fólki? Vandamálum eins og súrnun hafsins við Íslands strendur og arðrán færra á sameiginlegri eign þjóðarinnar og lágkúrulegum viðbrögðum þeirra við hækkun veiðigjalda með að segja upp fiskverkunarfólki? Húsnæðisvanda lágtekjufólks og af hverju það má ekki byggja upp falleg og aðlaðandi staði á höfuðborgarsvæðinu fyrir fólk sem kýs að búa í hjólhýsum og/eða færanlegum smáhýsum? Auknum launamun kvenna gagnvart körlum? (vantar alveg tölur yfir laun kvára í þessu samhengi). Hvernig væri að auka vægi umræðu um raunverulegar lausnir í umhverfismálum vegna aukins hraða hnatthlýnunar, meðal annars vegna stríðsátaka í Úkraínu, borgarastyrjaldar í Súdan og þjóðarmorðs Ísraelsríkis gagnvart íbúum Gaza? NEI!! Í staðinn lætur fólk draga sig á asnaeyrunum inn í hatursfullar umræður öfgafólks um tilvist minnihlutahóps og hvernig téður hópur sé gífurleg og aðkallandi ógn í samfélaginu. Trans fólk er ekki nein ógn og það sjá öll þau sem vilja horfa á tölfræðilegar staðreyndir og hlusta á það sem vísinda og fræða samfélagið hefur haldið á lofti um trans fólk. Félag aðstandenda trans barna og ungmenna, sem vissulega eru til þó ákveðnir einstaklingar vilja halda öðru fram, hafa á sinni heimasíðu safnað töluvert af handhægum upplýsingum fyrir fólk, sem ég hvet öll til að skoða. https://transvinir.is/rannsoknir/ Þessi afvegaleiðing umræðunnar og þetta tilbúna menningar stríð þar sem agnarlítill minnihlutahópur er notaður sem tæki til að færa aftur kvenréttindi um áratugi og mannréttindi annarra minnihlutahópa einnig, er hverjum hugsandi manneskju til minnkunnar og það sem við sjáum deyja er mennskan sjálf sem býr innra með okkur öllum. Mannúð og samkennd verða minningar og innihaldslaus orð í framtíð þar sem hatur fær að dafna undir þeim fölsku flöggum að um sé að ræða "skoðanir" og gagnvirkar umræður um mismunandi "hugmyndafræði"! Trans fólk er fólk eins og annað fólk. Við erum fjölbreytt og allskonar. Greiðum skatta, eigum börn, vini og fjölskyldur. Og eins og öll önnur sem hér búa, þá dreymir okkur að búa við öryggi, ást og virðingu. Við erum þó einnig ólík öðru fólki að því leyti að við erum fólk sem höfum stöðugt þurft að berjast fyrir tilvist okkar og höfum stöðugt þurft að sýna fram á og sanna að við erum það sem við erum og það reynir á. Við erum EKKI "Skoðun" og EKKI "hugmyndafræði"! Okkar öryggi er stöðugt ógnað og það er ekki auðvelt að lifa þannig að taugakerfið er sífellt þanið til hins ítrasta þar sem hugurinn er fastur í ofurárvekni og við erum stöðugt að reyna að passa okkur á því að segja ekkert eða gera ekkert sem gæti orðið vatn á myllu þeirra sem vilja okkur helst útrýma. Við erum fólkið sem alltaf þurfum að vera málefnaleg, kurteis, rökföst, tilbúin að fræða og hafa allar staðreyndir og tengla á vísindagreinar sem sanna mál okkar á hreinu... Þetta er ótrúlega lýjandi og ekkert okkar myndi velja að vera trans ef við værum það ekki! Við erum fædd trans, alveg eins og fólk fæðist örvhent og með mismunandi lit augna. Við erum líka ótrúlega hugrökk og sterk, því við verðum að vera það til þess að lifa af. Við erum hrædd þegar við ferðumst. Við erum hrædd þegar við þurfum að nota almenningssalerni. Við þráum að geta farið í sund og líkamsrækt eins og annað fólk, og mörg okkar gera það, þrátt fyrir óttann. En ekkert af því sem flest fólk myndi telja sjálfsagt er sjálfsagt fyrir okkur. Það er munurinn á því að búa við ákveðinn réttindi og taka þeim sem sjálfsögðum og að tilheyra minnihlutahóp og þurfa að berjast fyrir þeim, stöðugt! Sem betur fer þá er það enn svo að við öll, hvaða kyni sem við tilheyrum, höfum flest öll fundið fyrir samhug og samkennd með öðrum. Við búum yfir tilfinningagreind sem við köllum mennsku sem gefur okkur dýrmæta innsýn og skilning inn í líf hvers annars og er lykilinn að velsæld og hamingju okkar sem samfélags. Samvinna er sprottinn upp úr þessari samkennd og án samvinnu hefði mannkynið dáið út fyrir löngu. Einmitt í ljósi sögunnar og því sem við getum lært af reynslu fyrri kynslóða, er þetta tilbúna menningar stríð svo einstaklega sorglegt, ekki bara fyrir okkur sem berjumst fyrir tilveru okkar á hverjum degi, heldur einnig fyrir mannkynið allt, því án þessarar mennsku erum við sem tegund dauðadæmd. Vöknum því upp og verum vakandi öll sem eitt og skiljum að í öllum stríðum, sama hvaða nafni þau nefnast, þá töpum VIÐ öll! Það er nefnilega ekkert VIÐ og ÞIÐ í slíkum hörmungum sem öll stríð eru, aðeins sársauki og sorg! Höfundur er leikkona, áhættuleikstjóri, kennari og LGBTQIA+ aktivisti Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Málefni trans fólks Hinsegin Arna Magnea Danks Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar