Árásir á olíuvinnslu í Rússlandi bíta Samúel Karl Ólason skrifar 26. ágúst 2025 13:01 Frá ráðstefnu um olíuvinnslu í Rússlandi. Langar biðraðir hafa myndast við bensíndælur víða í Rússlandi að undanförnu og verð hefur hækkað verulega. EPA/MAXIM SHIPENKOV Ítrekaðar árásir Úkraínumanna á olíuvinnslustöðvar í Rússlandi á undanförnum vikum, hafa dregið verulega úr framleiðslugetu Rússa á eldsneyti. Fregnir berast af löngum biðröðum við bensínstöðvar í Rússlandi en sala á olíu og olíuvörum er ein allra mikilvægasta tekjulind rússneska ríkisins og er hún notuð til að fjármagna stríðsrekstur Rússa í Úkraínu.
Refsiaðgerðir og viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi gera ráðamönnum þar erfitt um vik með að laga þá innviði sem þarf að laga og viðhalda vinnslustöðvum. Samhliða þessu eru ráðamenn í Bandaríkjunum að þrýsta á Indverja og Kínverja að draga úr kaupum sínum á olíu frá Rússlandi, þó með tiltölulega litlum árangri. Árásir hafa verið gerðar á að minnsta kosti tíu olíuvinnslur en samkvæmt útreikningum Reuters hefur það komið niður á framleiðslu Rússa um að minnsta kosti sautján prósent. Það samsvarar um 1,1 milljón tunna á dag. Útreikningar Wall Street Journal skila svipuðum niðurstöðum og segir miðillinn að árásir Úkraínumanna hafa neitt Rússa til að draga úr framleiðslunni um að minnsta kosti þrettán prósent. Einnig hafa árásir á lestarkerfi Rússlands og flugvelli þvingað Rússa til að ferðast meira um á bílum, sem leitt hefur til aukinnar eftirspurnar eftir eldsneyti. Verð í methæðum Rússar hafa takmarkað útflutning á eldsneyti og skammtað það í nokkrum héruðum landsins. Eins og áður segir hafa myndast langar biðraðir við eldsneytisstöðvar í Rússlandi og hefur eldsneytisverð náð methæðum. Heildsöluverð á bensíni hefur til að mynda hækkað um 45 prósent í Rússlandi á þessu ár, samkvæmt WSJ, jafnvel þó heimsmarkaðsverð á olíu hafi lækkað töluvert á sama tíma. Um fjórðungur tekna rússneska ríkisins kemur til vegna sölu á olíuafurðum og jarðgasi. Refsiaðgerðir hafa þvingað Rússa til að selja þessar vörur með miklum afslætti, að miklu leyti til Kínverja og Indverja, en einnig til ríkja í Evrópu. Tekjurnar eru notaðar til að fjármagna hergagnaframleiðslu og til að greiða hermönnum fyrir þjónustu. Rússar hafa getað notað háar bónusgreiðslur til að fá þúsundir manna til að skrifa undir samning verið herinn og hefur þeim því gengið vel að fylla upp í raðir sínar, þrátt fyrir mikið mannfall. Ungverjar reiðir yfir árásum Árásir Úkraínumanna á olíuinnviði í Rússlandi hófust árið 2023, samhliða þróun Úkraínumanna á langdrægum sjálfsprengidrónum. Ríkisstjórn Joes Biden, þáverandi forseta Bandaríkjanna, var í fyrstu mótfallinn þessum árásum vegna mögulegra áhrifa á olíuverð í heiminum. Úkraínumenn höfðu þess vegna takmarkað árásir sínar á olíu og gasleiðslur í Rússlandi, sem notaðar eru til að flytja vörurnar um langar vegalengdir. Það hefur breyst og hafa nokkrar slíkar árásir verið gerðar. Meðal annars á leiðslur til Evrópu, en það hefur reitt ráðamenn í Ungverjalandi og Slóvakíu, sem kaupa enn mikið magn af olíu og jarðgasi frá Rússlandi, til reiði. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, gaf í skyn um helgina að árásir á olíuleiðslu til ríkjanna myndu halda áfram, ef Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, léti ekki af mótmælum sínum gegn mögulegri inngöngu Úkraínu í Evrópusambandið. Utanríkisráðherra Ungverjalands og Úkraínu hafa í kjölfarið deilt opinberlega á samfélagsmiðlum, þar sem þeir hafa gagnrýnt hvor annan. I will reply in a Hungarian manner.You don’t need to tell the Ukrainian President what to do or say, and when. He is the President of Ukraine, not Hungary.Hungary’s energy security is in your own hands. Diversify and become independent from Russia, like the rest of Europe. https://t.co/G0JPu5xYHo— Andrii Sybiha 🇺🇦 (@andrii_sybiha) August 24, 2025 Framleiða eigin vopn til árása í Rússlandi Fregnir hafa borist af því að ríkisstjórn Donalds Trump, núverandi forseta Bandaríkjanna, hafi meinað Úkraínumönnum að nota bandarískar stýriflaugar til árása í Rússlandi og hafa árásirnar því hingað til nánast eingöngu verið gerðar með úkraínskum drónum. Úkraínumenn vinna þó hörðum höndum, með stuðningi bakhjarla í Evrópu, að því að koma upp umfangsmikilli framleiðslu á eigin stýriflaugum. Vonir standa til að fjöldaframleiðsla þeirra geti hafist á þessu ári og gæti þeim einnig verið beint að rússneskum olíuvinnslustöðvum á næstu mánuðum. Stýriflaugarnar fara bæði hraðar en drónarnir og geta borið stærri sprengjur og þar af leiðandi geta þær valdið meiri skaða. Í viðtali við WSJ segir sérfræðingur í úkraínskri hugveitu sem veitir stjórnvöldum þar í landi ráðgjöf, að verið sé að nota hvað Rússland sé stórt. Það sé veikleiki sem feli í sér að Rússar geti ekki varið alla hluta landsins. Þeir eigi ekki nægjanlegt magn af loftvarnarkerfum. Vara við samdrætti Hagvöxtur hefur verið tiltölulega mikill í Rússlandi en hann er að mestu til kominn vegna aukinnar hergagnaframleiðslu. Mikil verðbólga, háir vextir og refsiaðgerðir hafa þó slæm áhrif á rússneska hagkerfið og búast sérfræðingar við mun minni hagvexti en í fyrra. WSJ segir rússneska embættismenn vara við mögulegum samdrætti á næstunni. Sérfræðingar og greinendur telja þó að eldsneytisvandinn, þó hann versni töluvert, muni ekki koma verulega niður á stríðsrekstri Vladimírs Pútin, forseta Rússlands, eða breyta markmiðum hans.
Rússland Úkraína Bensín og olía Ungverjaland Hernaður Mest lesið Vaktin: Mikilvæg fundarhöld í Washington Erlent Hneykslan meðal kennara vegna rangfærslna Ingu í Kastljósi Innlent Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Erlent Stóri-Boli boðar breytingar og klassískt vetrarveður Innlent Kannast ekki við lýsingar leigubílstjóra Innlent Kaus að styðja karlasamtök í stað lögreglu Innlent Verði að bregðast við vinsældum meintra iðnaðarmanna á Facebook Innlent Trump segir Nielsen í vondum málum Erlent Trump sýndi verkamanni puttann Erlent Baráttan um Samfylkinguna í borginni nálgast suðumark Innlent Fleiri fréttir Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Síðustu ellefu ár þau hlýjustu í mælingasögunni 32 látnir eftir að krani féll á lest í Taílandi Rannsaka ásakanir á hendur Iglesias Sautján prósent Bandaríkjamanna styðja innlimun Grænlands Vaktin: Mikilvæg fundarhöld í Washington Tveir látnir eftir árekstur strætisvagna Reyna að tala Trump til og óttast afleiðingar árása Bandaríkjastjórn kemur barnaníðsefni Musk til varnar Mengunarreglur taka ekki lengur tillit til dauðsfalla og heilsu Starmer boðið sæti í „friðarstjórn“ Trump Trump segir Nielsen í vondum málum Trump heitir íhlutun ef stjórnvöld hefja aftökur Trump sýndi verkamanni puttann Keyptu tæki sem gæti útskýrt Havana-heilkennið Fundurinn í Washington gæti reynst örlagaríkur „Við veljum Danmörku“ Að minnsta kosti þrjú þúsund látnir í Íran Búa sig undir áhlaup um borð í skuggaskip Fá Andrés Önd til að bjarga læsi barna Borgin ber enga ábyrgð í Gufunesbruna og stjórnarmaður í Truenorth segir tjónið óbætanlegt Vance ætlar að sitja fundinn með Løkke og Rubio Farið yfir skandalinn í Minnesota: Vopnvæðir fjársvik til að refsa „bláum ríkjum“ Hótar Musk frekari sektum bregðist hann ekki við barnaníði Lögðu hald á tíu tonn af kókaíni nærri Kanaríeyjum Kynnir sér möguleika varðandi Íran og leggur toll á vinaríki klerkastjórnarinnar Machado heimsækir Hvíta húsið á fimmtudag Vara Evrópuríkin við því að taka á móti embættismönnum frá Taívan Þvert nei Grænlendinga við yfirtöku Bandaríkjanna Trump ósáttur við orð olíuforstjórans og vill útiloka hann Sjá meira