Herra Hnetusmjör tekjuhæstur í Iceguys Agnar Már Másson skrifar 19. ágúst 2025 22:11 Strákasveitin Iceguys er sú langvinsælasta hér á landi þessi misserin. Róbert Arnar Tónlistarmennirnir í karlakvintettnum Iceguys juku flestir mánaðartekjur sínar milli ára samkvæmt Tekjublaðinu sem kom út í dag. Líklega þéna þeir þó meira í gegnum fyrirtæki sín en það sem fram kemur í blaðinu, en samkvæmt því mun Herra Hnetusmjör hafa verið tekjuhæstur í hópnum. Auk þess sem fram kemur í Tekjublaðinu má sjá á síðu Skattsins að tekjur félagsins Fegurð er glæpur ehf., sem er félag stofnað í kringum strákasveitina, hafi numið 4,5 milljónum króna í fyrra en hagnaðurinn nam 205 þúsundum króna. Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2024 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2023 sem var greiddur árið 2024. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við. Eigið fé félagsins var neikvætt um 1,4 milljónir króna þar sem félagið er enn að gera upp tveggja milljóna eftir tap árið 2023. Samkvæmt hlutafélagaskrá er tilgangur félagsins tónlistarflutningur, tónlistarútgáfa og tengd starfsemi. Jón og Frikki hlið við hlið Jón Ragnar Jónsson, betur þekktur millinafnslaus, er samkvæmt Tekjublaðinu með um 631 þúsund krónur í tekjur á mánuði og beint fyrir neðan hann í blaðinu er yngri bróðir hans, Friðrik Dór Jónsson, með 630 þúsund krónur. Tekjur þeirra aukast milli ára. Í fyrra var yngri bróðirinn metinn tekjuhærri en sá eldri, þar sem Friðrik var með 543 þúsund krónur á mánuði en Jón með 449 þúsund. Ekki er að finna ársreikninga JJMusic ehf., félags Jóns, inni á síðu Skattsins og því erfitt að sjá hve mikið hann hefur þénað í gegnum félagið síðasta árið. Hnetan í methagnaði Í blaðinu er Árni Páll Árnason, eða Herra hnetusmjör, talinn vera með um 1,1 milljón króna í mánaðartekjur og bætir við sig milli ára en í fyrra nam upphæðin 937 þúsund krónum. Hann er jafnframt tekjuhæsti rappari landsins. Kópbois ehf., félag í eigu Árna, hagnaðist aftur á móti um 66 milljónir króna á síðasta ári og rekstrartekjur námu tæplega 150 milljónum króna. Rúrík er á svipuðum stað en Aron bætir við sig Rúrik Gíslason, fyrirsæta og fyrrverandi knattspyrnumaður, mun hafa verið með um 935 þúsund krónur á mánuði í fyrra sem er svipað og árið á undan en þá nam upphæðin 943 þúsundum. Rúrik rekur aftur á móti félagið RG19 Viðburðir ehf. en ársreikningur þess félags fyrir síðasta ár liggur ekki fyrir. Árið 2023 nam hagnaður félagsins 31 milljón króna. Aron Can Gultekin fékk samkvæmt Tekjublaðinu greidd 735 þúsund krónur á mánuði árið 2024, sem er meira en árið á undan en þá mun hann hafa fengið um 531 þúsund krónur greiddar. Eins og með Rúrik á fyrirtæki Arons, sem heitir Trúpí ehf., eftir að birta ársreikning sinn fyrir 2024 hjá skattinum en árið 2023 námu tekjur félagsins rúmlega átta milljónum króna. Tekjur Tónlist Mest lesið Seðlabankinn lækkar óvænt stýrivexti Viðskipti innlent Skilja töskur eftir ef von er á kröftugum mótvindi Viðskipti innlent Stefna Jóni Þorgrími vegna Rauða heftarans Viðskipti erlent Lækkuðu vegna vaxtamálsins: „Lánakjör heimilanna hafa snarlega versnað“ Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja lækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Svona virka verndaraðgerðir ESB vegna kísilmálms Viðskipti innlent „Í fréttum lítur þetta allt saman nokkuð vel út, en...“ Atvinnulíf Hundrað þúsund í höfuðstólinn eru orðin að átján í dag Neytendur „Aumingjalegt skref“ í rétta átt Viðskipti innlent Selur hjörð en ekki jörð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lækkuðu vegna vaxtamálsins: „Lánakjör heimilanna hafa snarlega versnað“ „Aumingjalegt skref“ í rétta átt Fullt tilefni enda hafi aðstæður gjörbreyst á skömmum tíma Svona virka verndaraðgerðir ESB vegna kísilmálms Bein útsending: Rökstyðja lækkun stýrivaxta Seðlabankinn lækkar óvænt stýrivexti Skilja töskur eftir ef von er á kröftugum mótvindi Efnahagslegt tjón lítið ef nokkuð en öll prinsipp þverbrotin „ESB hefur nú sýnt klærnar og sitt rétta andlit“ Frá Sýn til Fastus Þrír forstöðumenn til starfa hjá Íslandsbanka Kortavelta á fljúgandi siglingu og vaxtalækkun ólíkleg „Það er verið að brjóta gegn grundvallaratriðum EES-samningsins“ „Varnarsigur“ að fá inn texta um samráð um áhrif tollanna Selur hjörð en ekki jörð Samþykktu verndartolla sem bitna á Íslandi og Noregi Orri einbeitir sér að bæjarmálunum og Kári tekur við Stjórnendur fyrirtækja svartsýnir Vigdís til Hringborðs hafs og eldis Hver er munurinn á séreign og samtryggingu? Óboðlegt að sitja undir íþyngjandi regluverki en njóta ekki ágóðans Ferðaþjónusturisar stefna á sameiningu Ráðinn nýr forstöðumaður hjá Origo Vonar að frestun fundarins marki stefnubreytingu „Loftslagsbanki“ veitir Veitum fimmtán milljarða króna lán Fríður nýr mannauðs- og gæðastjóri Lyfja og heilsu Pavel í baðstofubransann Segja ákvörðun um verndartolla enn slegið á frest Tveggja ára gamall umræðuþráður hafði áhrif á bókanir ferðaþjónustufyrirtækis Íbúar vilja fella úr gildi starfsleyfi Hygge vegna mengunar Sjá meira
Auk þess sem fram kemur í Tekjublaðinu má sjá á síðu Skattsins að tekjur félagsins Fegurð er glæpur ehf., sem er félag stofnað í kringum strákasveitina, hafi numið 4,5 milljónum króna í fyrra en hagnaðurinn nam 205 þúsundum króna. Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2024 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2023 sem var greiddur árið 2024. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við. Eigið fé félagsins var neikvætt um 1,4 milljónir króna þar sem félagið er enn að gera upp tveggja milljóna eftir tap árið 2023. Samkvæmt hlutafélagaskrá er tilgangur félagsins tónlistarflutningur, tónlistarútgáfa og tengd starfsemi. Jón og Frikki hlið við hlið Jón Ragnar Jónsson, betur þekktur millinafnslaus, er samkvæmt Tekjublaðinu með um 631 þúsund krónur í tekjur á mánuði og beint fyrir neðan hann í blaðinu er yngri bróðir hans, Friðrik Dór Jónsson, með 630 þúsund krónur. Tekjur þeirra aukast milli ára. Í fyrra var yngri bróðirinn metinn tekjuhærri en sá eldri, þar sem Friðrik var með 543 þúsund krónur á mánuði en Jón með 449 þúsund. Ekki er að finna ársreikninga JJMusic ehf., félags Jóns, inni á síðu Skattsins og því erfitt að sjá hve mikið hann hefur þénað í gegnum félagið síðasta árið. Hnetan í methagnaði Í blaðinu er Árni Páll Árnason, eða Herra hnetusmjör, talinn vera með um 1,1 milljón króna í mánaðartekjur og bætir við sig milli ára en í fyrra nam upphæðin 937 þúsund krónum. Hann er jafnframt tekjuhæsti rappari landsins. Kópbois ehf., félag í eigu Árna, hagnaðist aftur á móti um 66 milljónir króna á síðasta ári og rekstrartekjur námu tæplega 150 milljónum króna. Rúrík er á svipuðum stað en Aron bætir við sig Rúrik Gíslason, fyrirsæta og fyrrverandi knattspyrnumaður, mun hafa verið með um 935 þúsund krónur á mánuði í fyrra sem er svipað og árið á undan en þá nam upphæðin 943 þúsundum. Rúrik rekur aftur á móti félagið RG19 Viðburðir ehf. en ársreikningur þess félags fyrir síðasta ár liggur ekki fyrir. Árið 2023 nam hagnaður félagsins 31 milljón króna. Aron Can Gultekin fékk samkvæmt Tekjublaðinu greidd 735 þúsund krónur á mánuði árið 2024, sem er meira en árið á undan en þá mun hann hafa fengið um 531 þúsund krónur greiddar. Eins og með Rúrik á fyrirtæki Arons, sem heitir Trúpí ehf., eftir að birta ársreikning sinn fyrir 2024 hjá skattinum en árið 2023 námu tekjur félagsins rúmlega átta milljónum króna.
Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2024 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2023 sem var greiddur árið 2024. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við.
Tekjur Tónlist Mest lesið Seðlabankinn lækkar óvænt stýrivexti Viðskipti innlent Skilja töskur eftir ef von er á kröftugum mótvindi Viðskipti innlent Stefna Jóni Þorgrími vegna Rauða heftarans Viðskipti erlent Lækkuðu vegna vaxtamálsins: „Lánakjör heimilanna hafa snarlega versnað“ Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja lækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Svona virka verndaraðgerðir ESB vegna kísilmálms Viðskipti innlent „Í fréttum lítur þetta allt saman nokkuð vel út, en...“ Atvinnulíf Hundrað þúsund í höfuðstólinn eru orðin að átján í dag Neytendur „Aumingjalegt skref“ í rétta átt Viðskipti innlent Selur hjörð en ekki jörð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lækkuðu vegna vaxtamálsins: „Lánakjör heimilanna hafa snarlega versnað“ „Aumingjalegt skref“ í rétta átt Fullt tilefni enda hafi aðstæður gjörbreyst á skömmum tíma Svona virka verndaraðgerðir ESB vegna kísilmálms Bein útsending: Rökstyðja lækkun stýrivaxta Seðlabankinn lækkar óvænt stýrivexti Skilja töskur eftir ef von er á kröftugum mótvindi Efnahagslegt tjón lítið ef nokkuð en öll prinsipp þverbrotin „ESB hefur nú sýnt klærnar og sitt rétta andlit“ Frá Sýn til Fastus Þrír forstöðumenn til starfa hjá Íslandsbanka Kortavelta á fljúgandi siglingu og vaxtalækkun ólíkleg „Það er verið að brjóta gegn grundvallaratriðum EES-samningsins“ „Varnarsigur“ að fá inn texta um samráð um áhrif tollanna Selur hjörð en ekki jörð Samþykktu verndartolla sem bitna á Íslandi og Noregi Orri einbeitir sér að bæjarmálunum og Kári tekur við Stjórnendur fyrirtækja svartsýnir Vigdís til Hringborðs hafs og eldis Hver er munurinn á séreign og samtryggingu? Óboðlegt að sitja undir íþyngjandi regluverki en njóta ekki ágóðans Ferðaþjónusturisar stefna á sameiningu Ráðinn nýr forstöðumaður hjá Origo Vonar að frestun fundarins marki stefnubreytingu „Loftslagsbanki“ veitir Veitum fimmtán milljarða króna lán Fríður nýr mannauðs- og gæðastjóri Lyfja og heilsu Pavel í baðstofubransann Segja ákvörðun um verndartolla enn slegið á frest Tveggja ára gamall umræðuþráður hafði áhrif á bókanir ferðaþjónustufyrirtækis Íbúar vilja fella úr gildi starfsleyfi Hygge vegna mengunar Sjá meira