Halldór framlengir til ársins 2028 við Breiðablik Aron Guðmundsson skrifar 14. ágúst 2025 11:25 Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks. EPA/Jakub Kaczmarczyk Halldór Árnason, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks í fótbolta, hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2028.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Breiðabliki núna í morgun. Undir stjórn Halldórs varð liðið Íslandsmeistari árið 2024, á sínu fyrsta tímabili undir hans stjórn. „Það er mikil ánægja og gleði með störf hans og þann metnað sem Halldór hefur fyrir meistaraflokki karla og félaginu í heild sinni. Að tryggja áframhaldandi störf hans hjá Breiðabliki er mikilvægur hluti af áframhaldandi framgangi og uppbyggingu Knattspyrnudeildar Breiðabliks,“ segir í tilkynningu Breiðabliks. Halldór þakkar fyrir traustið sem að honum er sýnt. „Í Breiðabliki er mikill metnaður til að ná góðum árangri sérhvert ár en um leið er liðið byggt upp og mannað að stórum hluta á uppöldum leikmönnum. Þessi blanda gerir verkefnið ótrúlega spennandi og ég er þakklátur fyrir traustið sem Breiðablik sýnir mér með þessari framlengingu. Félagið hefur byggt upp einstakan og metnaðarfullan kúltur og ég hlakka til að halda áfram á þeirri braut á næstu árum.“ Sem fyrr mun Halldór standa í boðvanginum á Kópavogsvelli í kvöld þegar að Breiðablik tekur á móti Zrinjski Mostar í seinni leik liðanna í undankeppni Evrópudeildarinnar. Einvígið stendur jafnt, 1-1, eftir fyrri leik liðanna. Með sigri í einvíginu mun Breiðablik tryggja sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar hið minnsta. Með sigri fer liðið einnig í umspil við franska liðið Strasbourg um sæti í deildarkeppni Evrópudeildarinnar. Leikur Breiðabliks og Zrinjski Mostar hefst klukkan hálf sex í dag og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland.
Besta deild karla Breiðablik Íslenski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira