Innlent

Úr­skurðaður í gæslu­varð­hald vegna al­var­legrar stunguárásar

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir einum.
Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir einum. Vísir

Lögreglan á Suðurnesjum hefur handtekið einn einstakling eftir alvarlega líkamsárás í Reykjanesbæ. Árásarþoli var með alvarlega stunguáverka og er á sjúkrahúsi en líðan hans er stöðug. Einstaklingurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald.

„Lögreglan á Suðurnesjum fékk tilkynningu kl. 22:16 í gærkvöldi um alvarlega líkamsárás í Reykjanesbæ. Þegar lögreglumenn komu á vettvang ásamt sjúkraliði var ljóst að viðkomandi var með alvarlega stunguáverka og því fluttur til Reykjavíkur undir læknishendur,“ segir í tilkynningu á heimasíðu lögreglunnar.

Lögregla hóf strax leit og fannst einstaklingurinn á höfuðborgarsvæðinu fljótlega eftir miðnætti. 

Í tilkynningu seinnipart laugardags segir að einstaklingurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Krafa lögreglu fór fyrir héraðsdóm Reykjaness rétt eftir hádegi.

„Ástanda árásarþola er stöðugt en alvarlegt. Rannsókn málsins miðar vel áfram,“segir í tilkynningunni.

Rannsókn málsins er á frumstigi en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum er um að ræða einn árásarmann og eitt fórnarlamb. 

Fréttin var uppfærð kl 16:30 eftir að önnur tilkynning barst frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×