Reon ræður inn hönnunarstjóra frá Spotify Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 5. júní 2025 16:11 Orri er nýr hönnunarstjóri Reon. Hulda Margrét Hugbúnaðarfyrirtækið Reon hefur ráðið Orra Eyþórsson í stöðu hönnunarstjóra. Orri mun leiða hönnunarstefnu fyrirtækisins, stýra hönnunarverkefnum og móta notendaupplifun í stafrænum lausnum Reon.
Í fréttatilkynningu segir að Orri komi til Reon frá Spotify, þar sem hann starfaði sem hönnuður. Hann býr yfir áratugs reynslu af stafrænum hönnunarmálum og hefur áður unnið fyrir og með fyrirtækjum á borð við Verna, IKEA, Marel og Nespresso, svo fátt eitt sé nefnt. „Við erum himinlifandi að fá Orra í teymið. Hönnun er lykilþáttur í þróun og árangri stafrænna lausna og grundvöllur þess að skapa traust og tengsl við notendur. Orri býr yfir mikilli reynslu og einstökum hæfileikum til að sameina nýsköpun við notendavæna nálgun, og við hlökkum til að fá hann með í næstu skref fyrirtækisins,“ er haft eftir Rósu Dögg Ægisdóttur, framkvæmdastjóra Reon. Þá segir að ráðning Orra marki mikilvægt skref í uppbyggingu teymis Reon, sem hafi á undanförnum misserum stækkað verulega með fjölbreyttum ráðningum á sviðum markaðs, sölu og vöruþróunar. „Það er fátt sem toppar það að koma aftur heim, og þá meina ég bæði til Íslands og til Reon sem hefur lengi verið eitt öflugasta hugbúnaðarhús landsins. Ég tók mín fyrstu skref í hönnun hjá Reon og það er virkilega spennandi að snúa aftur eftir rúm sjö ár í burtu og fá tækifæri til að leiða hönnunarsviðið á þessum spennandi tímum.” er haft eftir Orra Eyþórssyni, nýjum hönnunarstjóra Reon.
Vistaskipti Tíska og hönnun Tækni Mest lesið JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira