Hamas svarar vopnahléstillögunni sem Ísraelar hafa samþykkt Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 31. maí 2025 17:59 Hungursneyð er á Gasaströndinni. EPA Hamas liðar hafa að hluta til svarað vopnahléstillögu Bandaríkjanna sem lögð var fram fyrr í vikunni. Fulltrúar Ísrael hafa nú þegar samþykkt tillöguna.
Þrátt fyrir að Hamas hafi svarað tillögunni hafa þeir ekki ákveðið hver afstaða þeirra er. Hins vegar samþykktu þeir að frelsa tíu gísla í þeirra haldi og afhenda jarðneskar leyfar átján gísla. Einnig sögðust þeir vilja varanlegt vopnahlé, að allir Ísraelar yfirgefi Gasaströndina og loforð um óheft aðgengi mannúðaraðstoðar. Ekkert af þessum atriðum er í núverandi tilboðinu samkvæmt umfjöllun BBC. Talið óvíst að Hamas samþykki tilboðið Donald Trump, Bandaríkjaforseti, og Steve Witkoff, sérstakur erindreki forsetans í Miðausturlöndunum, lögðu tillöguna fram fyrir fulltrúa Ísraels sem samþykktu hana á fimmtudag. Þá var tillagan afhent Hamas liðum til skoðunar. Hún felst í því að Hamas frelsi tíu lifandi gísla og jarðneskar leyfar átján gísla auk sextíu daga vopnahlés. Gegn frelsun gíslanna verður palestínskum föngum Ísraela sleppt úr haldi. Á föstudag hafði BBC eftir háttsettum Hamas-liða að samtökin séu líkleg til að hafna tillögunni að vopnahléi þar sem tillagan uppfylli ekki grundvallarskilyrði þeirra. Átökin milli Hamas á Gasaströndinni og Ísraela hófust 7. október 2023 þegar Hamas gerðu árás á tónlistarhátíð í Ísrael þar sem tólf hundruð manns voru drepnir. Í átökunum hafa yfir fimmtíu þúsund Palestínubúa verið drepnir.
Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Palestína Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira