Lífið

Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Birnir bauð í partý!
Birnir bauð í partý!

Tónlistarmaðurinn Birnir bauð í heljarinnar útgáfuteiti síðastliðið þriðjudagskvöld á skemmtistaðnum Nínu við Hverfisgötu, þar sem hann kynnti nýja bragðtegund af virknidrykknum COLLAB og nýju plötuna sína Dyrnar. Um hundrað manns mættu í teitið og skáluðu fyrir Birni.

Birnir var rúmlega tvítugur þegar hann skaust upp á stjörnuhimininn hérlendis með rappsmellnum Ekki Switcha. Hann hefur komið víða að í íslensku tónlistarlífi, unnið með ótal listamönnum á borð við Herra Hnetusmjör, Gusgus, Pál Óskar og Bríeti en hann og sú síðastnefnda unnu nýverið til tvennra verðlauna á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrir plötuna 1000 orð.

Tvær flugur í einu höggi

Birnir þróaði þessa nýju bragðtegund sem sameinar vínberja- og lime-bragð, auk þess að koma að hönnun dósarinnar, sem er silfurlituð með svörtum útlínum og mynd af honum sjálfum á framhliðinni. 

Má með sanni segja að Birnir hafi slegið tvær flugur í einu höggi, en gestir fengu að njóta vel valinna laga af plötunni í flutningi Birnis.

Meðal gesta voru tónlistarmaðurinn Birgir Hákon, raunveruleikstjörnurnar Ástrós Traustadóttir og Binni Glee, ofurskvísan Gugga í Gummíbát, og þjálfararnir og systurnar Arnfríður og Sandra Björg Helgadætur.

Ljósmyndararnir Elísbet Blöndal og Róbert Arnar mættu á svæðið og fangaðu stemninguna meðal gesta, sem skemmtu sér vel.

Ljósmyndarar: Róbert Arnar og Elísabet Blöndal

Fleiri fréttir

Sjá meira

×

Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.