Reikna með talsverðri rigningu austantil Atli Ísleifsson skrifar 23. maí 2025 07:16 Hiti á landinu verður á bilinu sjö til sautján stig og verður hlýjast á Norðurlandi. Vísir/Vilhelm Á Grænlandshafi er nú hægfara lægð en skil hennar þokast austur yfir landið í dag með tilheyrandi sunnankalda eða -strekkingi og rigningu. Það dregur úr vindi vestantil með kvöldinu.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að búast megi við talsverðri rigningu á Suðausturlandi og jafnvel á Austfjörðum til kvölds en þar sem ekki hafi rignt í marga daga er ólíklegt að væta verði til nema góðs fyrir gróandann. Hiti verður á bilinu sjö til sautján stig og verður hlýjast á Norðurlandi. „Snýst síðan í fremur hæga suðvestanátt með stöku skúrum á vestanverðu landinu í kjölfar skilannna. Á morgun, laugardag lægir og styttir víða upp, en áfram lítilsháttar væta á víð og dreif. Hiti 8 til 14 stig. Svipað veður á sunnudag, en seinnipartinn hreyfist dálítið úrkomusvæði yfir Suðausturland,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Breytileg átt 3-8 m/s, en suðaustan 8-13 við norðausturströndina. Dálítil rigning austanlands fram eftir degi, en annars víða skúrir. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Á sunnudag: Norðaustlæg átt, 5-13 m/s og dálítil rigning á suðaustantil, en annars skúrir. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast sunnantil. Á mánudag: Norðlæg átt, 3-10 m/s og dálitlar skúrir og kólnar lítið eitt fyrir norðan. Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag (uppstigningardagur): Útlit fyrir breytilegar áttir með vætu á víð og dreif. Hiti yfirleitt 7 til 12 stig að deginum.
Veður Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Smávegis væta norðantil en bjart sunnantil Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Víða bjartviðri en líkur á þokulofti vestantil Milt veður ríkjandi og hiti að átján stigum Hið rólegasta veður og hiti að fjórtán stigum Veðrið stjórnast af lægð á Grænlandshafi Hitinn nær upp í tíu stig Rólegheitaveður og smá skúrir Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Logn í dag á undan storminum á morgun Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Þungfært víða um land Kalt í veðri miðað við árstíma Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Sjá meira