Sport

Kristinn Gunnar sigur­vegari Bak­garðs­hlaupsins í Öskju­hlíð 2025

Garpur Ingason Elísabetarson og Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifa
Kristinn Gunnar Kristinsson kláraði 43. hringi í Öskjuhlíðinni.
Kristinn Gunnar Kristinsson kláraði 43. hringi í Öskjuhlíðinni. Vísir/Viktor Freyr

Kristinn Gunnar Kristinsson er sigurvegari Bakgarðshlaupsins í Öskjuhlíð árið 2025. Hann hljóp 43 hringi.

Hlaupið fór fram í Öskjuhlíð í Reykjavík og var ræst klukkan 9 á laugardagsmorgun. Sýnt var beint frá hlaupinau á Vísi og Stöð 2 Vísi alla helgina. 

Kristinn Gunnar hljóp 43 hringi eða 288 kílómetra en Mari Jaersk hljóp af stað með Kristni út í 43. hringinn en játaði sig sigraða snemma í brautinni. Kristinn stóð því uppi sem sigurvegari þegar kann kláraði 43. hringinn skömmu fyrir klukkan fjögur í nótt. 

Í Bakgarðshlaupi hlaupa keppendur 6,7 kílómetra hring á innan við klukkutíma og eru svo ræstir af stað að nýju þegar nýr klukkutími hefst. Þeir hlaupa svo eins marga hringi og þeir geta þar til aðeins einn stendur eftir sem sigurvegari og má þá ekki hlaupa lengra.

203 hlauparar hófu keppni klukkan níu í Öskjuhlíðinni.

Íslandsmetið í Bakgarðshlaupi er 62 hringir en Þorleifur Þorleifsson setti það í Elliðaárdalnum í október síðastliðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×