Aflinn verði verkaður annars staðar eftir breytingar stjórnarinnar Árni Sæberg skrifar 25. mars 2025 11:48 Heiðrún Lind Marteinsdóttir er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Vísir/Arnar Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi gagnrýna áform ríkisstjórnarinnar um breytingu á veiðigjöldum harðlega. Áformin hafa ekki verið kynnt en samtökin segja þau fela í sér tvöföldun veiðigjalds. „Það er þungur róður fram undan.“
Í fréttatilkynningu frá SFS segir að samtökin telji útfærslu gjaldtöku af sjávarútveginum áhrif hennar skaðlegri samfélaginu en flestar þær hugmyndir sem áður hafa komið fram. Breytingar á veiðigjaldinu verða kynntar á blaðamannafundi í fjármálaráðuneytinu klukkan 13. Fundurinn verður í beinni útsendingu hér á Vísi. „Auðlindagjaldtaka í sjávarútvegi hefur tekið allnokkrum breytingum frá því henni var fyrst komið á árið 2004, alla jafna í því augnamiði að hækka gjaldið. Í grundvallaratriðum hefur þó ávallt verið miðað við hlutfall af afkomu, það er raunverulegar tekjur veiða að frádregnum raunverulegum gjöldum sem til falla við þær. Ríkið tekur nú þriðjung af þessari afkomu í veiðigjald.“ Aflinn verði verkaður í Póllandi eða Kína Verði þessi breyting að veruleika, þá verði áhrifin dapurleg. Fyrirtækin muni þurfa að aðlaga sig að forsendum hinnar breyttu gjaldtöku og fylgja fyrirmynd Norðmanna. Tekjur veiða þurfi þá að aukast í takt við viðmið veiðigjaldsins, með þeim áhrifum að fiskvinnslur verði ósamkeppnishæfar. „Eins og reyndin er í Noregi, mun fiskur þá í verulegum mæli flytjast óunninn úr landi til ríkisstyrktra fiskvinnsla í láglaunalöndum á borð við Pólland og Kína. Verðmætasköpun hér á landi verður þar með minni, störfum í fiskvinnslu fækkar stórum og afleiddar tekjur þjónustu og iðnaðar verða hverfandi.“ Nýsköpun og tækniframfarir frá landvinnslu sjávarafurða, sem hingað til hafi orðið sérstakur útflutningsatvinnuvegur, muni drabbast niður. Ríflegar tekjur sveitarfélaga frá sjávarútvegsfyrirtækjum og fólki sem þar starfar muni dragast verulega saman og ríkissjóður muni verða af skatttekjum frá landvinnslu og fyrirtækjum sem þjónusta hana. „Niðurstaða þessarar tilraunar ríkisstjórnarinnar er því augljós. Samfélagið allt verður af tekjum og sjávarútvegur verður ekki sú lífæð landsbyggðar sem við þekkjum.“ Auka eigi óhagkvæmar veiðar Í tilkynningunni segir að að lokum megi velta fyrir sér um stund vegferð ríkisstjórnar í sjávarútvegsmálum, sem hafi í upphafi vegferðar sinnar lagt áherslu á verðmætasköpun. Á stuttum starfstíma sé því miður djúpt á þeirri framtíðarsýn. Óhagkvæmar veiðar eigi að auka, kolefnisgjald eigi að hækka, veiðar og vinnsla verði sundur slitin með tvöfölduðu veiðigjaldi og eignarhald verði blýhúðað enn frekar umfram aðrar atvinnugreinar. „Við þetta allt blandast síðan hættulegar aðstæður á erlendum mörkuðum með breyttri heimsmynd alþjóðaviðskipta og fyrirsjáanlegum efnahagslegum þrengingum á stærstu mörkuðum íslenskra sjávarafurða. Það er þungur róður fram undan.“ Heiðrún Lind er stjórnarmaður í Sýn sem á og rekur Vísi.
Sjávarútvegur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Byggðamál Mest lesið Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Viðskipti innlent Fleiri færðu lögheimili í ár Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Fleiri fréttir Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Sjá meira