Danir tilbúnir að senda friðargæsluliða Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 10. mars 2025 18:11 Engar raunverulegar framkvæmdaáætlanir liggja fyrir. EPA Danir eru tilbúnir að senda friðargæsluliða til Úkraínu náist samkomulag um vopnahlé við Rússland. Engar raunverulegar áætlanir liggja fyrir um framkvæmd þess þó að sögn utanríkisráðherra.
Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra og Troels Lund Poulsen varnarmálaráðherra tilkynntu þetta eftir fund með utanríkisnefnd þingsins. Þar gerðu þeir grein fyrir afstöðu ríkisstjórnarinnar og hlutu stuðning þingsins. „Það er mikilvægt að við í Evrópu sendum rétt skilaboð bæði til Pútíns og Washington. Það er það sem við gerum með því að segja: Komi til þess að evrópsk viðvera verði nauðsynlegt til að hægt verði að koma á samkomulagi um vopnahlé eða friðarviðræður er Danmörk tilbúin í þeim efnum,“ hefur danska ríkisútvarpið eftir Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra. Troels Lund Poulsen varnarmálaráðherra segist ekki sjá fyrir sér að Atlantshafsbandalagið komi til með að taka af skarið og senda friðargæsluliða að landamærunum heldur muni fjöldi einstakra landa ákveða að sýna stuðning sinn með þessum sama hætti og Danmörk. „Ég held að allir hafi áttað sig á því að Bandaríkjaforseti vilji að stríðinu ljúki hratt. Enginn óskar þess heitar en Úkraína. Við óskum þess einnig. En því skal ljúka á réttan hátt,“ segir Lars Løkke Rasmussen.
Danmörk Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent Fleiri fréttir „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Sjá meira