Selenskí segir nauðsynlegt að tryggja varanlegan frið Hólmfríður Gísladóttir skrifar 10. febrúar 2025 08:15 Úkraínumenn virðast viljugri en Rússar til að ganga að samningaborðinu en báðir aðilar hafa sett ákveðin skilyrði fyrir viðræðum. Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segist reiðubúin til að ganga til hvers konar viðræðna um endalok átaka að því gefnu að Evrópa og Bandaríkin skuldbindi sig til að styðja áfram við Úkraínu.
Þetta sagði forsetinn í samtali við ITV um helgina. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði við blaðamenn í gær að hann hefði átt samtal við Vladimir Pútín Rússlandsforseta um stöðuna í Úkraínu og að hann myndi eiga fleiri samtöl til að binda enda á stríðið. Sagðist hann telja að einhver árangur hefði náðst í þá átt. Þá sagði forsetinn fyrir helgi að hann teldi að Pútín stæði ekki á sama um mannfall á vígvellinum. Selenskí sagði hins vegar að það væri ekki nóg að komast að samkomulagi um endalok átaka nú, heldur þyrfti að tryggja varanlegan frið. „Frosin“ staða myndi leiða til þess að átök brytust út að nýju, sem yrði ósigur fyrir alla. Mike Waltz, þjóðaröryggisráðgjafi Trump, sagði í gær að diplómatar frá Bandaríkjunum myndu ferðast til Evrópu í vikunni til að eiga viðræður við aðila og ná þeim að samningaborðinu. Forsetinn væri reiðubúinn til að grípa til þvingana gegn Rússum til að fá þá til að semja. Mikhail Galuzin, aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands, sagði hins vegar að Rússar þyrftu að sjá einhver ákveðin skref stigin í átt að því að tryggja „lögvarða hagsmuni“ Rússlands, að „útrýma“ rót átakanna og að horfast í augu við „nýjan raunveruleika“.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira