Tíminn er núna Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar 3. febrúar 2025 13:32 Við sem samfélag höfum aldrei staðið frammi fyrir stærri áskorun þegar kemur að réttmæti og áreiðanleika í opinberri umræðu og upplýsingaóreiðu. Samfélagsmiðlarnir okkar eru stútfullir af allskonar misvísandi upplýsingum og allskonar rugli – að þetta megrunarlyf sé það sem þú þarft, þetta app muni gjörbreyta skipulagningarhæfileikum þínum, eða að kötturinn sem sé að hlæja með þessu ungabarni sé raunverulega til, en ekki búinn til af gervigreind. Aragrúi af „skoðanagreinum“ vaxa eins og arfi á fréttamiðlum sem taka enga ábyrgð á innihaldi og áhrifum þeirra – jafnvel þegar viðhorf og „skoðanir“ sem eru þar settar fram eru á skjön við alla vísindalega þekkingu, rannsóknir, sérfræðiþekkingu og reynslu tiltekinna hópa sem eru gjarnan tekin fyrir undir formerki skoðana. Það ætti til dæmis að segja sig sjálft að það sé ekki skoðun að trans fólk sé vissulega til og að það að vera hommi eða lesbía sé eðlilegur hluti mennskunnar, og eigi að vera viðurkennt og virt af okkar samfélagi – enda er það í takt við vísindalega þekkingu, reynslu fólks og mannlega samkennd og hluttekningu. Við getum haft skoðanir á því hvort vegtollar séu góð leið til að byggja upp betri samgöngur eða ekki, eða hvort lúpína sé leiðin til landgræðslu. En hvort að það sé í lagi að fólk lifi sínu lífi eftir eigin sannfæringu, elski fólk af sama kyni eða gangi í gegnum langt og erfitt ferli til að vera það sjálft? Auðvitað ekki. Skoðanir okkar geta nefnilega verið byggðar á vanþekkingu, eða litaðar af röngum upplýsingum eða fordómum. Skoðanir okkar geta líka breyst – en hinsegin fólk breytir því ekki hver þau eru vegna þess að tilvist þeirra þóknast ekki einhverjum. Ég hætti ekkert að vera dóttir foreldra minna vegna þess að einhver manneskja skrifaði skoðanagrein á internetinu og kallaði mig karlmann. Þannig virkar ekki raunveruleikinn. Kraftur orðræðu Lengi hefur fólk í áhrifastöðum og jafnvel þjóðarleiðtogar nýtt sér misvísandi orðræðu og jafnvel áróður til að vinna sér inn vinsældir. Títt stef í pólitískum leik stjórnmálamanna er að mála ákveðna minnihlutahópa upp sem ógn við samfélagið og líf almennings til þess að geta í kjölfarið sett sjálfa sig fram sem bjargvætti okkar sem munu stöðva þessa hættu sem er á ferðum. Slíkt er líka oft notað til að hylma yfir önnur mál sem hafa mun meiri áhrif á daglegt líf og hagsmuni almennings. Athygli fólks er því oft beint að skáldaðri ógn, frekar en því sem virkilega skiptir máli. Skiptir það til dæmis virkilega máli að trans fólk fái að pissa þar sem þeim líður vel, þegar við stöndum frammi fyrir óafturkræfum loftslagsbreytingum og stjórnvöldum sem neita að gera eitthvað í því? Varla. En samt eru miklu fleiri greinar birtar á samfélagsmiðlum um klósettferðir trans fólks að meðtaltali. Í seinni heimstyrjöldinni voru gyðingar sá hópur sem var afmennskaður og sagður hættulegur samfélaginu. Aðrir hópar fylgdu vissulega með, svo sem innflytjendur, Rómafólk, hinsegin fólk og fatlað fólk. Frægt rannsóknarsetur í hinsegin fræðum var til dæmis lagt í rúst og bækur og rannsóknir brenndar í árdaga nasismans í Þýskalandi. Voðaverk Seinni heimsstyrjaldar áttu sér langan aðdraganda, það var ekki þannig að allt í einu væru komnar útrýmingarbúðir og 6 milljónum manna slátrað á einu bretti. Þessi þróun átti sér stað innan stjórnmálanna og í opinberri umræðu, þar sem hægt og rólega var grafið undan mennsku þessara hópa, og ramminn færður. Orðræða sem þótti fáránleg og öfgafull var allt í einu orðin samþykkt og færri og færri mótmæltu henni. Við vitum öll hvert það leiddi svo að lokum. Endurtekning sögunnar Sama þróun og varð fyrir seinni heimsstyrjöld hefur verið í gangi í töluverðan tíma í okkar samtíma. Öfgar í orðræðu og aðgerðum sem draga úr vernd og ala á tortryggni gegn ákveðnum samfélagshópum hafa færst í aukana. Orðræða sem hefði áður verið fordæmd harðlega er orðin samfélagslega samþykktari. Við getum tekið umræðuna um trans fólk og réttindi þeirra sem dæmi. Nýlega var Trump kosinn forseti Bandaríkjana, en í kosningarbaráttu hans lagði hann töluvert upp úr því að ráðast að trans fólki – þar sem þeim var lýst sem ofbeldisfullu fólki sem vill misþyrma konum og börnum. Í Bandaríkjunum hafa bækur um hinsegin málefni verið bönnuð í ýmsum fylkjum – meðal annars bók sem ég skrifaði ásamt maka mínum, sem er ætluð sem bók til að styðja trans ungmenni. Trump hefur heitið því að ná stjórn á „trans brjálæðinu“, og ein af fyrstu tilskipunum hans sem forseta var að banna trans fólki að breyta skilríkjum sínum. Þetta hefur haft í för með sér að trans fólk hefur til að mynda ekki getað uppfært vegabréf eða fengið þau endurnýjuð – og lýsir trans fólk þar að vegabréf séu gerð upptæk og þau svipt ferðafrelsi. Þetta er þróun sem er vel skjalfest í sögunni – en eitt af þeim skrefum sem nasistar tóku við útrýmingu gyðinga var að ógilda vegabréf þeirra svo þau gætu ekki flúið til öruggra svæða. Þetta gerðist 5. október 1938, og í kjölfarið var kerfisbundið grafið undan réttarstöðu gyðinga með lagasetningu, ofbeldi og ofsóknum. Ætlum við að leyfa sögunni að endurtaka sig á okkar vakt? Það hefur aldrei verið mikilvægara en nú að við séum á varðbergi, og fordæmum hatursfulla og fjandsamlega orðræðu í hvívetna. Við verðum að krefjast þess að orðræða og samfélagsleg umræða eigi sér stað á forsendum sannreyndra upplýsinga, og á forsendum mannlegrar reisnar og virðingar. Þar bera fjölmiðlar mikla ábyrgð, en þeir hafa oftar en ekki verið tannhjól í áróðursvélum öfgahópa, líkt og þeir voru í aðdraganda seinni heimsstyrjaldar. Vegna þess að þó að við á Íslandi séum ekki á jafn slæmum stað og til dæmis Bandaríkin, þá er þessi orðræða að smeygja sér inn í samfélagið okkar, í skoðanagreinar og í yfirlýsingar stjórnmálafólks og annara með áhrif í samfélaginu. Spurningin er því: Hvernig ætlum við að taka á þessari þróun? Ætlum við að leyfa henni að grassera áfram undir formerkjum málfrelsis og fölsku flaggi „skoðana“, eða ætlum við að setja mörk áður en það er um seinan? Hvenær ætlum við að grípa inn í og segja stopp? Ég hef oft heyrt fólk velta því fyrir sér hvað þau hefðu gert á tímum uppgangs nasisma og í aðdraganda seinni heimsstyrjaldar. Ef sú þróun sem á sér nú stað núna víðsvegar um heim heldur áfram þá þurfum við ekki lengur að velta því fyrir okkur, vegna þess að sú stund er núna. Það sem við gerum núna verður hluti af sögunni. Valið er þitt. Valið er okkar. Tíminn er núna. Höfundur er kynjafræðingur og sérfræðingur í málefnum hinsegin fólks. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir Hinsegin Málefni trans fólks Mest lesið Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson Skoðun Popúlismi formanns VR Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir Skoðun Dónaskapur Reykjavíkurborgar Lárus Blöndal Sigurðsson Skoðun Ég lofa að líta ekki undan Ingibjörg Magnúsdóttir Skoðun Íslensk orka er svarið við olíukrísunni Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun Ég ætlaði mér aldrei að verða leikskólakennari Ásta Möller Sívertsen Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mitt uppáhalds stefnumál? Systkinaforgangur Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ekki benda á mig Guðmundur Stefán Gunnarsson skrifar Skoðun Vönduð niðurstaða Feneyjanefndarinnar Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Horfumst í augu við staðreyndir Eyþór Fannar Sveinsson skrifar Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason skrifar Skoðun Græna gangan - göngum fyrir hafið Guðrún Hallgrímsdóttir,Maríanna Traustadóttir skrifar Skoðun 10 loforð til ungs fólks á besta stað í heimi, Hafnarfirði Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa er undirstaða sterks samfélags Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ég lofa að líta ekki undan Ingibjörg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar Skoðun Lýðfullveldi Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Árangur á vakt Framsóknar í Suðurnesjabæ Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Hvar er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Foreldrahús Kristín Davíðsdóttir skrifar Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar Skoðun Íslensk ofbeldismenning og réttarríkið Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Lykill að jöfnum tækifærum Isabel Alejandra Diaz skrifar Skoðun Jöfnuður, ábyrgð og uppbygging Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun „Selfies“ eru ekki hagsmunagæsla Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Dónaskapur Reykjavíkurborgar Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Sterkari saman Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Popúlismi formanns VR Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Snúum Reykjavík við Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun #ÉGLOFA að láta ekki allt brenna til kaldra kola Alfa Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun
Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar
Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar
Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar
Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun