Körfubolti

Einn ný­liði í lands­liðinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kristrún Ríkey Ólafsdóttir fær sitt fyrsta tækifæri með íslenska A-landsliðinu í næsta mánuði.
Kristrún Ríkey Ólafsdóttir fær sitt fyrsta tækifæri með íslenska A-landsliðinu í næsta mánuði. vísir/anton

Benedikt Guðmundsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta, hefur valið tólf leikmanna hóp fyrir síðustu tvo leikina í undankeppni EM 2025.

Einn nýliði er í íslenska hópnum; Kristrún Ríkey Ólafsdóttir, leikmaður Hamars/Þórs. Hún er tvítug og hefur skilað 6,2 stigum og 7,6 fráköstum að meðaltali í leik í Bónus deildinni í vetur.

Ísland mætir Tyrklandi í Izmit 6. febrúar og Slóvakíu í Bratislava þremur dögum síðar.

Í síðustu landsleikjahrinu tapaði Ísland fyrir Slóvakíu, 70-78, en vann Rúmeníu, 77-73, þökk sé eftirminnilegri sigurkörfu Danielle Rodriguez.

Ísland er í fjórða og neðsta sæti F-riðils undankeppninnar með fimm stig. Efsta liðið kemst í lokakeppnina auk þeirra fjögurra liða sem eru með bestan árangur í 2. sætum riðlanna í undankeppninni.

Íslenski hópurinn

Anna Ingunn Svansdóttir - Keflavík 12 leikir

Agnes María Svansdóttir – Keflavík 4 leikir

Dagbjört Dögg Karlsdóttir - Valur 22 leikir

Danielle Rodriguez - Fribourg 2 leikir

Diljá Ögn Lárusdóttir - Stjarnan 8 leikir

Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir – Hamar/Þór 4 leikir

Eva Wium Elíasdóttir - Þór Akureyri 4 leikir

Kristrún Ríkey Ólafsdóttir – Hamar/Þór – Nýliði

Sara Rún Hinriksdóttir – Keflavík 30 leikir

Thelma Dís Ágústsdóttir - Keflavík 22 leikir

Þóra Kristín Jónsdóttir - Haukar 35 leikir

Tinna Guðrún Alexandersdóttir - Haukar 8 leikir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×