Eggert Aron kom inn af bekknum í tapi gegn Totten­ham

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Úr leik kvöldsins.
Úr leik kvöldsins. Marc Atkins/Getty Images

Eggert Aron Guðmundsson kom inn af bekknum hjá Elfsborg þegar liðið mátti þola 3-0 tap gegn Tottenham Hotspur í Lundúnum þegar liðin mættust í lokaumferð deildarkeppni Evrópudeildar karla í knattspyrnu.

Eggert Aron kom inn af bekknum undir lok leiks þegar staðan var orðin 2-0 Tottenham í vil. Dane Scarlett braut ísinn á 70. mínútu en gestirnir vörðust með kjafti og klóm. Þegar Elfsborg reyndi að jafna metin opnaðist vörn liðsins og Oyindamola Ajayi bætti við öðru marki Tottenham. Hinn 17 ára gamli Mikey Moore bætti svo þriðja markinu við í uppbótartíma.

Sigurinn þýðir að Tottenham endar í 4. sæti og er komið beint í 16-liða úrslit. Tapið þýðir hins vegar að Elfsborg endar í 26. sæti og kemst ekki í umspil um sæti í 16-liða úrslitum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira