Lífið

Enn einn breski erfinginn í heiminn

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Prinsessan Beatrice og eiginmaðurinn Edoardo Mapelli Mozzi.
Prinsessan Beatrice og eiginmaðurinn Edoardo Mapelli Mozzi. EPA-EFE/NEIL HALL

Prinsessan Beatrice af Bretlandi er búin að eignast sitt annað barn, litla stúlku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bresku konungsfjölskyldunni þar sem segir að móður og barni heilsist vel.

Litla stelpan hefur þegar fengið nafn en hún heitir Athena Elizabeth Rose Mapelli Mozzi. Þetta er annað barnið hennar Beatrice og eiginmanns hennar auðjöfursins Eduardo Mapelli Mozzi.

Beatrice er barnabarn Elísabetar heitinnar Bretlandsdrottningar og dóttir Andrésar Bretaprinsar. Hún og Mozzi giftu sig svo athygli vakti í kyrrþey árið 2020.

Fyrir áttu þau Mozzi eina dóttur, hina þriggja ára gömlu Siennu. Þá á Mozzi átta ára gamlan son úr fyrra sambandi að nafni Wolfie. Að sögn fjölskyldunnar eru allir himinlifandi með nýjasta erfingjann, ekki síst Karl Bretakonungur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.