Upp­gjörið: Haukar - Grinda­vík 88-80 | Toppliðið endur­heimti tveggja stiga for­skotið

Kári Mímisson skrifar
468300809_28202608162657801_1977862660087158697_n
vísir/diego

Topplið Hauka tók á móti Grindavík í lokaleik 16. umferðar Bónus-deildar kvenna í körfubolta nú í kvöld. Eftir spennandi leik fór svo að lokum að Haukar unnu sanngjarnan sigur 88-80 og koma sér því í 26 stig og sitja einar á toppnum.

Þetta fór hægt af stað hér í Ólafssal nú í kvöld en um miðjan fyrsta leikhluta náðu heimakonur þó undirtökunum á leiknum leiddu eftir hann með 13 stigum. Grindavík hefur verið öflugt á leikmannamarkaðinum að undanförnu og tókst heldur betur að spila sig saman á skömmu tíma tókst að minnka muninn niður í þrjú stig þegar flautað var til hálfleiks. Daisha Bradford sem gekk nýverið til liðs við Grindavík var stórgóð í fyrri hálfleik og í raun getur liðið þakkað henni fyrir að munurinn var ekki meiri. Staðan í hálfleik 39-36 fyri Hauka.

Seinni hálfleikurinn var spennandi og Grindavík fékk tækifæri til að jafna leikinn og tókst í raun að halda sér inni í leiknum alveg fram að loka mínútunni en Haukastúlkur voru frábærar undir lokin og tókst að svara nánast alltaf strax í kjölfarið og Grindavíkurstúlkur gerðu sig líklegar. Lokatölur í Ólafssal 88-80 eins og áður segir.

Lið Hauka er að koma úr erfiðum tveimur leikjum gegn Þór Akureyri, einum í deild og öðrum í bikarnum. Haukastúlkur töpuðu báðum þessum viðureignum og því sætt að ná sigri hér í dag fyrir þær og komast yfir Þór Akureyri að stigum. Grindavík er áfram í veseni og þurfa að koma nýju leikmönnum sínum betur inn í liðið því þær hafa nú klárlega mannskapinn til að vera með gott lið fyrir úrslitakeppnina.

Atvik leiksins

Sofie Tryggedsson minnkaði muninn niður í eitt stig þegar fimm mínútur voru eftir en Haukar svöruðu um hæl örfáum sekúndum seinna þegar Diamond Battles setti niður þrist. Það verður seint sagt að þetta hafi verið tíðindamikill leikur. Grindavík hékk eins og áður segir alveg lygilega inni í þessu en þó svo að munurinn hafi ekki verið meiri þá var þetta næstum öruggt allan tíman skulum við segja.

Stjörnur og skúrkar

Hjá Grindavík voru þær Isabella Ósk Sigurðardóttir og Daisha Bradford sem voru fremstar meðal jafningja. Isabella var með 20 stig og 9 fráköst á meðan Bradfor var með 22 stig og 12 fráköst.

Hjá Haukum var það hin belgíska Lore Devos sem var best eins og svo oft áður í vetur. Devos var með 19 stig, 10 fráköst og 6 stoðsendingar. Þá átti Tinna Guðrún Alexandersdóttir fínan leik í dag en hún 20 stig og þrjú fráköst.

Dómararnir

Með þetta í teskeið og voru dómarastéttinni til mikils sóma hér í kvöld.

Stemning og umgjörð

Ég vil sjá fleiri mæta á leiki hjá Haukum en þetta. Emil er að elda eitthvað gott og Haukafólk þarf bara að sjá þessar stelpur sem eru væntanlega farnar að hugsa sér fallegt og fínt núna í vor.

Emil Barja fer yfir málin með sínum konum.Vísir/Diego

Emil Barja, þjálfari Hauka, var að vonum sáttur með sigur sinna kvenna nú í kvöld.

„Þetta var ágætt hjá okkur í dag. Maður vissi fyrir leikinn ekki alveg við hverju væri að búast þar sem þær eru með mjög nýtt lið. En alltaf ótrúlega gott að vinna.“

Haukar gáfu heldur betur tóninn í fyrsta leikhluta og leiddu með 13 stigum. Liðið var frábært á þessum kafla en Grindavík tókst að vinna sig inn í leikinn og hélt í við Hauka alveg fram að loka mínútunni. Er einhver skýring á því af hverju þið fallið svona niður á þessum tímapunkti?

„Ég veit ekki alveg hvað gerðist. Við hættum að vera nálægt þeim og gerðum þeim þetta auðvelt. Ég veit ekki hvort við höfum bara verið hissa hvað við vorum langt yfir svona snemma leiks. Mér fannst svarið í seinni hálfleik vera bara fínt og ég er ánægður með það. Við vorum í vandræðum með stóru leikmennina hjá þeim og mér fannst allar sem komu af bekknum standa sig virkilega vel í kvöld.“

Haukar eru núna komnar í 26 stig og sitja einar á toppnum þegar 16. umferðum er lokið. Það er því vert að spyrja Emil hversu langt hann og hans lið sé farið að horfa.

„Við reyndum náttúrulega bara að vinna alla leiki og getum í rauninni ekki hugsað um neitt annað en það. Næst er það hörkuleikur á móti Keflavík og horfum bara á hann og erum ekkert byrjuðu að hugsa um úrslitakeppnina eða neitt annað.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira