Skoðun

Mann­ekla á leik­skólum

Rakel Björk Benediktsdóttir Borg, Margrét Edda Gnarr og Hannes Daði Haraldsson skrifa

Stjórn foreldrafélags Múlaborgar vill taka undir orð foreldra barna á Brákaborg sem birtust í greininni „Í leikskóla er gaman – þegar það má mæta”.

Lokanir vegna manneklu hafa verið algengar á Múlaborg frá upphafi skólaársins haustið 2024, þ.e. eftir að sumarlokun ’24 lauk. Til að byrja með voru foreldrar/forsjáraðilar látnir vita af lokun með skilaboðum og/eða símtali sama morgun. Fljótlega varð ljóst að grípa þyrfti til frekari aðgerða og hafa lokanir því verið ákveðnar fram í tímann til þess að hafa einhvern fyrirsjáanleika á starfseminni.

Á þessu um hálfa ári hafa lokanir fyrir sérhvert barn verið 21 talsins. Tveir heilir dagar og 19 dagar þar sem sækja þurfti barn fyrir kl.12.00 á hádegi.

Það vakti því undrun stjórnarinnar þegar það birtist frétt þess efnis að stækka ætti leikskólann Múlaborg og fjölga þar plássum um 48-120. Í dag eru alls 128 börn í skólanum og er því um að ræða allt að tvöföldun á fjölda barna. Vissulega þarf að horfa til framtíðar og útbúa fleiri pláss fyrir stækkandi þjóð en nauðsynlegt er að horfa á þá stöðu sem uppi er og hefur viðgengist lengur en þetta hálfa ár sem talið er til.

Ekki hefur tekist að manna leikskólann fyrir það skólastarf sem á að vera starfrækt í dag, hvernig á þá að finna kennara fyrir þessa stækkun, þessi börn 48-120 til viðbótar við þau 128 sem vantar fleiri kennara nú þegar?

Í 21 skipti hafa foreldrar/forsjáraðilar þurft að gera ráðstafanir fyrir barnið því það getur ekki verið á leikskólanum vegna manneklu - starfsdagar og aðrar lokanir sem tilheyra venjulegu leikskólastarfi eru ekki inn í þessari tölu. Þetta eru 21 skipti fyrir foreldra/forsjáraðila 128 barna. Foreldrar og aðrir aðstandendur hafa mismikil tök á því að bregðast við þessum vanda. Það gefur hins vegar augaleið að þetta er ekki auðvelt fyrir neinn og algjörlega óboðleg staða.

Múlaborg er leikskóli án aðgreiningar sem sérhæfir sig í sameiginlegu uppeldi fatlaðra og ófatlaðra barna. Þar eru því börn sem eru sérstaklega viðkvæm fyrir breytingu á rútínu og þurfa að fá sína sérkennslu. Að halda uppi faglegu starfi í þessum aðstæðum fylgir mikið álag.

Skv. frétt Vísis frá 8. okt 2024 voru 140 pláss ónýtt vegna manneklu. Mannekla á leikskólum er ekki nýtt vandamál. Það kostar að uppræta vandamálið en eins og staðan er nú þá er álaginu og kostnaðinum velt yfir á foreldra/forsjáraðila. Gjöld eru felld niður fyrir skertan vistunartíma en það er klink miðað við það tekjutap sem heimilin hafa þurft að taka á sig vegna þessara síendurteknu lokana, þar ber sérstaklega að nefna þau heimili sem hafa ekki sterkt bakland og hafa því þurft að taka launalaust frí að öllu eða hluta í a.m.k.21 dag (aftur, þar sem starfsdagar eru fyrir utan þessa tölu). Hafa ber í huga að sumarleyfisdagar á vinnumarkaði eru yfirleitt á bilinu 20-30 talsins og duga þar með oft rétt fyrir þeirri leikskólalokun sem er á sumrin (sumarfríi barnanna).

Lokanirnar hafa einnig í för með sér breyttan vinnutíma starfsfólks og takmarkanir á sveigjanleika þeirra varðandi styttingu vinnuvikunnar, sem þrengir þar með að kjörum þeirra. Starfsmannaveltan veldur auknu álagi á alla, starfsfólk og börn.

Vert er að undirstrika að með þessum skrifum er ekki verið að gagnrýna stjórnendur Múlaborgar né heldur annað starfsfólk leikskólans, heldur þvert á móti. Þau eiga þakkir skilið og standa sig vel í erfiðum aðstæðum. Aðstæðum þar sem ekki eru veitt þau verkfæri sem til þarf til þess að styrkja starfið og halda utan um stöðugleika í því námi sem fram fer í leikskólanum.

Mannekla á leikskólum er ekki nýtt vandamál. Það þarf að ráðast að rót vandans og bæta kjör og vinnuumhverfi starfsfólks. Tóm pláss leysa ekki vandann, ekkert frekar en tóm loforð.

Höfundar sitja í stjórn Foreldrafélags Múlaborgar. 




Skoðun

Sjá meira


×